Um okkur

Við erum tvær systur og heitum Saga Guðrún og Arney Vaka. Við erum langflottustu stelpur í heimi að mati foreldra okkar sem eru að sjálfsögðu algjörlega hlutlaus í þessum efnum. Saga Guðrún er stóra systirin – hún fæddist 29.október 2004 á Landspítalanum í Reykjavík. Hún var “fashionably late” og lét bíða eftir sér í tvo daga. Litla systirin er svo Arney Vaka og hún fæddist líka á Landspítalanum, tveimur árum, fjórum mánuðum og þremur vikum seinna eða þann 22.mars 2007. Hún var ákaflega samvinnuþýð og hlustaði á mömmu sína og tók forskot á sæluna og kom fimm dögum á undan áætlun öllum til mikillar ánægju.

Við systur eigum heima í Reykjavík, nánar tiltekið í 109 Reykjavík og okkur finnst það alveg æðislegt. Við eigum heima með mömmu okkar henni Soffíu og pabba okkar honum Óla. Við eigum stóra fjölskyldu og fullt af yndislegum vinum og vinkonum! Saga Guðrún hefur frá upphafi verið dugleg við að baða sig í athygli og Arney gefur henni ekkert eftir í þeim efnum.

Á daginn erum við systurnar ásamt mömmu í leikskólanum okkar sem heitir Klambrar.  Deildin hennar Arneyjar heitir Hlíð og deildin hennar Sögu heitir Teigur.  Við erum báðar miklar leikskólastelpur enda ekki annað hægt þegar maður er á svona frábærum leikskóla.  Okkur finnst svo sannarlega ekki slæmt að hafa mömmu til taks í leikskólanum og henni finnst það heldur ekki leiðinlegt að geta fylgst með stelpunum sínum í amstri dagsins.  Þetta gerir hlutina nú líka töluvert einfaldari að það séu bara tveir staðir á hverjum morgni til að skila heimilisfólkinu á í staðinn fyrir þrjá eða fjóra :)

Mamman er búin að vera ótrúlega samviskusöm með þessa heimasíðu síðan í október 2004. Í upphafi var hugmyndin að deila gleði,sorgum og tárum með fjarlægum ættingjum og vinum en núna er þetta kannski mest fyrir hana sjálfa gert. Henni finnst alveg ótrúlega gaman að rifja upp ýmislegt sem annars hefði ábyggilega fallið fljótt í gleymsku! Þið sem heimsækið síðuna njótið bara góðs af því hvað þessi skrýtna kona hefur gaman af því að skrifa um okkur! Myndaalbúmið er öllu vinsælla en foreldrarnir eru með myndadellu – pabbinn með myndavéladellu og mamman er dugleg við að fyrirskipa myndatökur hér og þar og býr jafnvel til tilefnin ef því er að skipta. Okkur finnst að lesendur eigi að vera duglegir að kvitta fyrir sig … þá kannski verðum við duglegri við að kvitta fyrir okkur þegar við kíkjum á aðra í netheimum.