Saga Guðrún

Saga glæný

Ég heiti Saga Guðrún og er 4ra ára skvísa. Ég fæddist á Landspítalanum á föstudagskvöldi, 29.október 2004 á slaginu 22. Ég var ekki nema 12 merkur og 52 cm, löng og mjó. Ég var óttaleg títla og er ekkert svakalega stór ennþá. En margur er knár þótt hann sé smár og það á svo sannarlega vel við mig! Ég er rosalega hress og kát stelpa.

Saga sól

Yfirhöfuð hef ég rosalega gaman af lífinu og tilverunni. Mér finnst ótrúlega skemmtilegt að vera í leikskólanum, leika úti, klippa, teikna, ég elska að fara í sund, gönguferðir og finnst líka mjög skemmtilegt að hjóla. Ég er alveg frábærasta stóra systir í heimi og er yfirleitt alltaf þolinmóð og góð við litlu systur mína. Ég er algjör dúkkumamma og elska að vera í dúkkuleik. Svo finnst mér alveg ofboðslega gaman að dansa og vil alltaf vera í pilsum og kjólum sem dansa (útleggist sem snýst í hringi eða sveiflast vel). Ég byrjaði í danskóla haustið 2008 og finnst það alveg ótrúlega skemmtilegt og mig dreymir um að spila á fiðlu.  Það þarf varla að spyrja að því en bleikur er uppáhaldsliturinn minn og ég ætla að verða mamma þegar ég verð stór.