20. júlí, 2008
Við mæðgurnar erum komnar til Noregs og erum svo sannarlega að hafa það gott. Ferðalagið gekk mjög vel þrátt fyrir að Arney Vaka hafi verið sjálfri sér lík og svo sannarlega látið hafa fyrir sér. Við höfðum ekki verið lengi í flugstöðinin þegar tveir útlendingar voru búnar að heillast upp úr skónum og mynda hana í bak og fyrir. Hún gerði sér svo lítið fyrir og nældi sér í klósettburstann á klósettinu í Leifsstöð mömmu sinnar til mikillar skelfingar :S Meira ógeðið !! Í flugvélinni svaf hún svo sem betur fer í svona klukkustund og var alveg í essinu sínu síðari hluta ferðar. Hún er snillingur í að velja sér stund og stað og hljóp bara á bleyjunni um flugvélina á meðan ég gerði örvæntingarfulla tilraun til þess að ráða við gripinn… Það þarf varla að minnast á það að Saga Guðrún var sjálfri sér lík og eins og draumur í dós. Þessi stelpa reddaði ferðalaginu algjörlega - spurning hvort við hefðum komist á áfangastað ef þær systur væru báðar eins og Arney Vaka í fyrirferð.
Við höfum svo haft það ósköp gott. Við vorum svo heppnar að frænka hennar Ídu Maríu, hún Jóhanna er búin að vera með okkur frá því strax á fimmtudag. Þær voru nú ekki lengi að verða vinkonur og þvílíkt gaman. Hún fór samt heim til sín áðan og það er bókað mál að við eigum eftir að sakna hennar helling. Saga Guðrún berjastelpa er búin að upplifa alveg heilmikið. Hún er búin að tína rifsber, bláber, hindber og sjá að auki kirsuber og plómur og síðan fann hún meira að segja eplatré í garðinum. Áðan reyndi hún svo að veiða maura og það gekk ekki betur en það að það skreið á hana maur og það líkaði minni konu sko ekki! Við sáum norskar kindur og svona sem eru nú frekar furðulegar. Í dag er svo alveg frekar fínt veður á okkar mælikvarða, þó að það sé nú ekki alveg glampandi sól þá fórum við á róló í morgun og enduðum bara á bol og pilsi og nutum sko góða veðursins. Spáin segir okkur svo að það sé von á góðu og við erum bara bjartsýnar.
4 athugasemdir »
7. júlí, 2008
Á bænum er sérlega andlaus móðir sem eyddi góðum tíma í að uppfæra myndaalbúmið í kvöld. Ansi hreint margar myndir sem ég hlóð inn, í nýtt albúm í júní og tvö undir júlí.
Stelpurnar eru yndislegar sem aldrei fyrr og við erum duglegar að knúsa og kyssa litlu snúlluna okkar hana Ídu Maríu sem er aldeilis ánægð með þessar flottu frænkur sem hún á. Systurnar eru líka í skýjunum með Steinu frænku og eru jafnvel hrifnari af henni svona í borði þó að það sé klárlega Ída í orði. Stelpurnar fara í sumarfrí eftir viku og aðeins 10 dagar þar til við förum út. Það verður nú viðbrigði fyrir Arneyju að verða pabbalaus í heila viku þegar “baba” er vinsælasta orðið þessa dagana. Bíðum spennt eftir að mamma og Saga komist í daglega notkun en þess getur varla verið langt að bíða
Annars nenni ég ekki þessu blaðri - myndirnar tala sínu máli :D Munið síðan að kvitt hefur aldrei drepið neinn
Engar athugasemdir »
24. júní, 2008
Þrátt fyrir að nú sé sumar hafa pestirnar ekki alveg kvatt okkur hér í Sólheimunum. Í þetta skiptið er það sú óvinsælasta en litlasta skottan er með upp og niður :( Hún ætlar líka að taka góðan tíma í þetta því þetta hófst á föstudagskvöldið og tók svo góða pásu þar til á mánudagskvöld og hélt svo áfram í dag. Vonandi er þetta þó búið núna … eru komnir 8 tímar án ælu og slatti farinn ofan í hana síðan þá. Hún ákvað í gær að feta í fótspor systur sinnar með skrautleg sundlaugarafrek og í stað þess að kúka í laugina eins og Saga var vön að gera ældi hún. Það vildi svo vel til að þetta var nú bara mest vatn sem hún hafði gleypt í köfunarleiðangri.
Arney Vaka er algjör sundgarpur. Sund er klárlega það skemmtilegasta sem hún veit og eru Grafarvogslaugin og nýja sundlaugin í Mosó í miklu uppáhaldi. Hún fór ábyggilega svona 150 ferðir í rennibrautinni í vaðlauginni í Mosó og fór líka í stóru rennibrautirnar með miklum ánægjuhljóðum og dembir sér á milli lauga sama hvað. Það er ekki margt sem hún hræðist þessi stelpa þegar það kemur að sundinu og hún hefði alveg verið til í stóru rennibrautina í Laugardalnum í gær ef mér hefði ekki fundist of langt upp fyrir hana
Saga Guðrún vill stanslaust vera úti. Úti að hjóla, úti að hoppa eða úti að leika við Kjartan sem er nýi vinur hennar. Hann býr hérna í húsinu hjá okkur og þau eru rosalega miklir vinir. Göngutúrar eru líka í miklu uppáhaldi - hvort sem það er með litlu systur í bandi eða ekki. Henni finnst það gjörsamlega óviðjafnanlegt að fara með Arneyju Vöku í göngutúr í bandi, hlær og hlær. Eiginlega finnst henni systir sín og uppátækin hennar bara ótrúlega fyndin og það er frekar skemmtilegt að horfa upp á þær. Saga bíður spennt eftir morgundeginum - eða næstu nótt því þá koma langþráðu frænkur hennar til landins. Sögulúsin var frekar miður sín þegar við pökkuðum niður rúminu hennar til að gera pláss fyrir frænkurnar … hafði miklar áhyggjur af því hvar hún ætti að sofa … barnið hefur ekki sofið í sínu eigin rúmi í einhverja mánuði. Síðan kom í ljós að hún stefnir á að sofa inni í herbergi með þeim - spurning hversu lengi það endist hjá henni
Jæja, litli ælupésinn er vaknaður og ég ætla að stinga mér upp í til hennar og halda í draumalandið.
Engar athugasemdir »
11. júní, 2008

Það er nú meiri bongóblíðan í Reykjavík þessa dagana. Við gerum að sjálfsögðu okkar besta í að njóta veðursins og það hefur nú gengið alveg ágætlega þrátt fyrir að aðrir eins dagar hafi aldrei komið hjá okkur. Það er svo mikið að gera í kringum okkur að mamman á bænum getur varla hugsað heila hugsun. Á svona stundu er sko ótrúlega gott að eiga tvær litlar skvísur sem eru endalaust tilbúnar að kyssa og knúsa og gefa manni svo ótrúlega margt með því einu að vera þær sjálfar. Án efa yndislegustu systur í heiminum og ég ríkasta konan
Það þarf nú ekkert sérlega stóra hluti til að gleðja litlar sálir og t.d. að fá að borða grillaða hamborgara út í garði var hápunktur vikunnar til þessa. Sund, fótboltaleikur, róló og gönguferðir auk útiveru á leikskólanum gerir það að verkum að við erum að verða ferlega brúnar og sætar og sumar freknóttari en aðrir. Pabbi tölvukall er ekki jafnduglegur að vera úti og við enda ekki svo heppinn að vera á leikskóla en hann þarf auðvitað margfalt styttri tíma tila ð taka lit en við hinir.
Arney er alveg stórkostleg stelpa sem er svo dugleg á leikskólanum. Vissulega kvartar hún aðeins og svona en það er sko allt í nösunum á henni. Þessi montrófa rigsar alsæl og brosandi út að eyrum inn á hverjum einasta morgni og er bara flott sko :D Ég er svo ótrúlega ánægð með hana!
Já, ég hef enga orku til að halda þessu áfram - ætla að reyna að sofa og safna kröftum fyrir næstu lotu.
Engar athugasemdir »
17. maí, 2008
…í bili. Vegna nokkura athugasemda þá er myndaalbúmið óvirkt í bili. Vonandi verður það lagað á næstu dögum. Þeir sem illa geta beðið verða bara að kíkja í heimsókn
Uppfært: Komið í lag!
Engar athugasemdir »
15. maí, 2008
Jibbí :) Hér er sko kátt í kotinu því að í gær fengum við þær frábæru fréttir að Arney Vaka er komin með pláss á leikskólanum og byrjar í júní :) Það er alveg frábært og allir hlakka til! Við fórum með Sögu í gærmorgun og hún settist aðeins á borðið með litlu krökkunum og nartaði í cheerios og var ekki til í að fara heim. Ég held að litla skottið sé bara mjög tilbúin og á klárlega eftir að njóta sín vel í góðum félagsskap á Hlíð
Annars er sumarið að fara mjúkum höndum um okkur - eftir nokkrar klukkustundir verð ég búin að skila öllum verkefnum og komin í sumarfrí fram á mánudag. Þá byrja ég að vinna og það finnst Sögu ekki síður spennandi en að systir hennar sé að koma á leikskólann. Sumarið leggst ótrúlega vel í okkur t.d. er ekki nema einn og hálfur mánuður í að Ída María litla skott komi og við fáum að knúsa hana og tveir mánuðir þangað til að við verðum í blíðunni í Bergen
Reyndar eru búin að vera mikil og óþolandi veikindi hér í gangi síðustu tvær vikurnar og Sagan sú eina sem hefur staðið þau af sér. Nú er þau þó búin og viðað reyna að gleyma þeim þar sem við ætlum ekkert að verða veik í allt sumar! Bara vera úti í blíðunni og fara í sund og hjóla og svona
Sumarkveðjur
Soffía sem á bráðum tvær leikskólastelpur
Engar athugasemdir »
1. maí, 2008
Ójá það er sjaldan logn í Sólheimunum hjá okkur.
Pabbinn á bænum fór í árshátíðarferð til London um síðustu helgi. Arney Vaka ákvað að þá væri rétti tíminn til þess að kíkja í fyrstu heimsóknina sína á slysó en af einskærri tillitssemi við mömmu sína þá var hún bara að prófa viðbrögðin og svona. En það var doltið skelkuð mamma sem kallaði ömmu og afa út á föstudagskvöldið þegar Vakan hafði hrunið á stofuborðið með munninn með tilheyrandi blæðingu og látum. Þegar blæðingin gekk niður stóð eitthvað út úr tannholdinu á henni og eftir að amma og afi höfðu kíkt á áverkana og nágranninn líka þá stukkum við pabbi með hana á slysó. Það reyndist svo bara vera poppmaís sem stóð þarna föst og var það mikill léttir :) Arneyju líkt að leika svona á okkur
Við áttum annars yndislega helgi mæðgurnar. Borðuðum með Erlu og Daníel á föstudeginum áður en ósköpin dundu yfir. Á laugardeginum fórum við síðan í dagferð á Akranes og áttum frábæran dag með Soffíu og Sigríði Björgu. Arney var í paradís á Langasandi og æfði sig að ganga á sandinum og vinkonurnar tvær voru sjálfum sér líkar og dunduðu sér vel :) við fórum líka í sund og vorum boðin í vöfflukaffi til ömmu og afa hennar Sigríðar Bjargar sem síðar reyndist hápunktur ferðarinnar hjá Sögu Guðrúnu rjómabollu. Þegar við renndum í bæinn kom Ólöf til okkar og við höfðum kózý kvöld. Sunnudagurinn var fullskipaður með tveimur matarboðum, sundferð og heitapotts ferð og voru sælar systur sem sofnuðu afar snemma á sunnudagskvöldið
Á þriðjudaginn varð Saga Guðrún svo 3 1/2 árs. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt - þessi litla monsa er orðin risastór og bara yndislegust. Í tilefni dagsins sigraði hún loksins klósettdjöfulinn eftir langa bið og var miiiikil hamingja á bænum sem hefur haldist síðan óslitin. Í tilefni þess er hún farin að fara að sofna í sínu rúmi á kvöldin og vill helst hætta að sofa með bleyju um leið líka. Það sem maður fullorðnast við svona afrek! Við fórum svo á miðvikudaginn í 3 1/2 árs skoðunina og þar fékk hún toppeinkunn. Ekki það að við höfum átt von á öðru en hún skemmti sér líka mjög vel hjá hjúkrunarfræðingnum. Píslin sem hún er er bara 94,5 cm á hæð og 14,6 kg. Það munar 4,3 kílóum á þeim systrum og 15,5 cm miðað við síðustu mælingar hjá Arneyju Vöku.
Nú er 6 daga frí á Klömbrum og á morgun ætlar Saga að koma með mér í heimsókn á leikskólann minn. Þess hefur verið beðið með óþreyju eftir að hún var veik á opnu húsi þar en ég var þá búin að lofa því að taka hana með. Á morgun er jafnframt síðasti dagurinn minn í vettvangsnáminu og verkefnavinna og fyrirlestur framundan þar til um miðjan maí þegar ég er búin í skólanum. Þá á ég bara eitt ár eftir sem er ótrúlega lítið þar sem fjögur ár voru dálítið óyfirstíganleg í upphafi 
Annars erum við þessa dagana í að krossa putta og vona að Arney Vaka verði Klambrari á næstu mánuðum - eða amk komist inn á Klambra en hún er eiginlega fæddur Klambrari. Henni leist amk rosalega vel á Hlíðina á opnu húsi í síðustu viku og tilvonandi leikskólafélaga sína líka. Stelpurófan er svo flott og fín í þessu umhverfi að það hálfa væri nóg - hún er afskaplega öruggur krakki núna þegar hún virðist vera búin að yfirstíga smá aðskilnaðarkvíðakast sem tók nokkra mánuði að ganga yfir
Eins og venjulega er ég búin að hlaða inn mörgum myndum undanfarna daga
2 athugasemdir »
20. apríl, 2008
Við höfum nú aldeilis átt æðislega helgi í þetta skiptið. Nóg að gera enda leiðist okkur nú afar sjaldan því það er mikið fjör með tvær brjálaðar skottur

Í gær fórum við í göngu/hjóla/vagnaferð en öll dekk voru að verða loftlaus. Saga hjólaði eins og mesti garpur þegar dekkin voru orðin full af lofti og Arney fékk að prófa sætið á mömmuhjóli og líkaði það vel. Arney bragðaði á sandinum (og mamman gladdist yfir að hafa hreinsað kassann af sígarettu stubbum og öðrum aðskotahlutum um síðustu helgi) og fannst hann ógeðslegur. Við Saga fórum svo í leiðangur til að kaupa vindgalla og versla í matinn og hittum Skoppu og Skrítlu á opnunarhátíð Holtagarðanna. Saga var að sjálfsögðu sæl að hitta þær og skemmti sér mjög vel :) Við elduðum síðan góðan mat um kvöldið og Maja og Iðunn komu í heimsókn og fóru með okkur í gönguferð í ísbúðina og Saga Guðrún sýndi þeim hjólalistirnar.



Í dag byrjuðum við svo daginn á því að fara í leikhúsið að sjá Skoppu og Skrítlu. Saga hafði beðið þessa með mikilli eftirvæntingu og Arney Vaka var að fara í fyrsta sinn. Systurnar urðu sko ekki fyrir vonbrigðum og skemmtu sér ótrúlega vel. Við Saga höfðum svo planað skemmtilegan dag með Soffíu og Sigríði Björgu og pabbi kom og sótti litluna sína til að stelpudagurinn gæti gengið betur. Leiðin lá úr leikhúsinu á kaffihús þar sem bleikur snúður hvarf ofan í Söguna og kíktu svo á mávana á tjörninni. Það er sko hreinlega ekkert skemmtilegt að fara á tjörnina og gefa máfunum, eymingja endurnar þora ekki að borða brauðið!


Eftir það lá leiðin á skauta. Það hefur staðið til lengi og jafnvel þó að Sögu hafi ekki litist á blikuna í vikunni var þetta stórskemmtilegt. Það kom mér á óvart hvað Saga var dugleg á skautunum, hún var með svona grind og hélt sér í hana til að byrja með en svo var hún bara ágætlega brött miðað við aldur og fyrri störf á renna sér ein :) Við eigum sko án efa eftir að endurtaka þetta á næstunni. Eftir skautana kíktum við í Húsdýragarðinn og fórum aftur á kaffihús til að hlaða batteríin


Í kvöld fékk Arney Vaka í fyrsta skipti að sukka aðeins í mataræðinu. Samt ekki svo en ég bjó til avocado súkkulaðimús með bönunum, kókosolíu og kakói ásamt smá agave sírópí og litlan fékk smakk. Þetta fannst henni sko heldur betur gott og fékk að borða þetta sjálf sem var sennilega hálft gamanið. Það þarf varla að taka fram að Saga sætindagrís var ekki hrifin af svona hollustudóti og bara frekar súr þar sem kvöldmaturinn var kláraður með loforði um súkkulaðimús.

Jæja, ég ætla þá að hætta að þykjast vera að læra og leyfa pabbanum að fara að vinna. Það er sko nóg að gera á stóru heimili og því unnið og lært á undarlegum tímum. Ég held ég skríði bara í bælið með litlu Vökunni minni sem er eiturhress að æfa sig í að ganga. Það gengur langbest hjá henni í rólegheitunum á kvöldin þegar Saga sefur en þá notar hún labbið lang mest. Kannski hún óttist að vera hlaupin niður sem gæti hreinlega alveg gerst. Annars er “hæ” mikið uppáhaldsorð og mikið notað og Óli heyrði hana í kvöld segja “hæ Saga” þar sem hún stóð við rúmið og reyndi að ná sambandi við grjótsofandi uppgefna systur sína
1 athugasemd »
18. apríl, 2008
Já litli göngugarpurinn okkar er sko ekkert venjuleg! Hún er orðin rosalega dugleg að ganga hérna inni en hefur líka með þessari nýju færni orðið enn kræfari í klifrinu. Áðan greip ég hana þegar hún datt niður úr glugganum í Sögu herbergi og í gær gerði hún nokkuð góða tilraun til þess að klifra upp rennibrautina í garðinum. Andlitið ber afrekunum glöggt merki en daman er ansi marin eftir allskonar föll…
Já nú er víst kominn tími til þess að endurraða í barnaherberginu og hækka viðbúnaðarstigið, ég held að við munum neyðast tilað brynja okkur fyrir fleiri óhöppum enda tók Saga fáa sénsa í lífinu
Engar athugasemdir »