Arney Vaka

Arney lítil

Ég heiti Arney Vaka og kom í heiminn á fimmtudagseftirmiðdegi, eða kl.16:50 þann 22.mars 2007. Ég var rúmar 15 merkur og 52 cm og með ótrúlega mikið dökkt hár með gylltum strípum. Ég vakti mikla athygli fyrir hárprýðina :)

Fyrstu mánuðina var ég svo róleg og vær að fólk var alveg undrandi á mér. Ég skuldaði mömmu það samt pínuponsu því það gekk sko ekki lítið á meðan hún var að baka mig. Þetta var svo sannarlega lognið á undan storminum því mamma og pabbi þurfa sko að hafa miklu meira fyrir mér en nokkru sinni systur minni.  Það er nú samt auðvitað hið besta mál þar sem ég er hraust og kát.

Nú er ég orðin 2ja ára og er með munninn fyrir neðan nefið.  Þegar ég loksins ákvað að byrja að tala gerðist það ansi hratt og ég sver mig í kvenlegginn í fjölskyldunni minni og þaga sjaldan. Ég er afskaplega jafnlynd en hef svo sannarlega stórt skap. Ég er lei

Arney fjara

kskólastelpa fyrir allan peninginn og elska leikskólann minn og allt sem honum viðkemur.  Mér finnst gaman að vera úti og ég er mikill dundari þegar þannig ber við.  Bækur, dúkkur og kubbar eru í miklu uppáhaldi hjá mér og ég hef mikinn áhuga á stöfunum eins og stóra systir mín. Ég er búin að læra alla litina og er ansi lunkin að telja. Auk þess er ég ferlega dugleg að púsla þegar ég tek mig til.