Sumarfrí :)
13. júlí, 2009Við erum loksins komin í langþráð sumarfrí
Yndislegt alveg, enda kærkomið að fá smá rólegheitatíma eftir það sem á undan er gengið enda búið að vera nóg að gera hjá okkur. Saga Guðrún var búin að bíða spennt eftir þessu, alvege síðan að sumardagurinn fyrsti var í apríl - enda fannst henni rökrétt að ætla að sumarfríið hæfist þegar að sumarið kæmi. Arney Vaka er kannski ekki alveg jafn spennt en henni líkar þetta nú ágætlega enn sem komið er. Mér segir þó svo hugur að hún verði farin að sakna kennaranna sinna og krakkanna á leikskólanum áður en vikan er úti enda með eindæmum hrifin af þessu fólki öllu! Svo hrifin að hún hrópar á þau upp úr svefni og þegar eitthvað bjátar á!
Þetta er alveg nýtt fyrir okkur að eiga svona sumarfrí heima við. Þetta er nú ekki nema í þriðja sinn sem við Óli fáum sumarfrí og höfum alltaf farið út hingað til stóran hluta þess. Stefnan er sett á að vera duglegur að vera úti með stelpurnar og sinna ýmsu smálegu hérna heima. Við ætlum líka í einhverjar útilegur og nokkrar styttri ferðir og síðan sennilega í sumarbústað í tæpa viku. Ég segi það ekki, okkur langar auðvitað óskaplega að fara út en sem stendur er rigning þar og blíða hér, og aldrei að vita nema að við reynum að skreppa í stutta ferð í vetur bara í staðinn. Akkúrat núna er ágætt að vera heima og hlaða batteríin. Stelpurnar eru búnar að vera eins og ljós að leika sér, heyrist varla í þeim klukkutímunum saman hérna heima og leika sér ótrúlega vel og fallega saman. Auðvitað slettist upp á vinskapinn eins og gengur en langoftast eru þær góðar vinkonur og flottar saman. Hið klassíska systkinasamband, bara gaman að þeim! Arney Vaka er líka í fyrsta sinn farin að passa upp á systur sína, í sundi í gær sagði hún öllum að þetta væri sko systir sín og bara systir henanr mátti koma á eftir henni í rennibrautina og var í rosa knúsustuði. Það er ágætt að það er ekki alltaf bara í hina áttina.
Það er fullt af myndum sem bíða eftir því að vera settar inn á netið, gerist ábyggilega einhvern tímann í sumarfríinu.