Ótrúlegt en satt…
Ég á bágt með að átta mig á því hvað tíminn líður hratt. Það hefur mikið verið um að vera hjá okkur og ekki allt jafnskemmtilegt en systurnar taka þessu með jafnargeði og standa sig vel á erfiðum stundum. Elsku amma Bogga dó í síðustu viku og þó að það hafi nú verið fyrirsjáanlegt er þetta að engu síður erfiðir tímar enda hún amma alveg einstök kona. Saga Guðrún líkist henni ömmu sinni að því leyti að hún má aldrei missa af veislu og fór strax að hlakka til erfidrykkjunnar. Það er náttúrulega bara fyndið :) Núna er stúlkan líka orðin svo stór að það er ýmislegt sem þarf að ræða og takast á við með henni en hún hefur nú tekið þessu með ró og lítið spurt. Við fjölskyldan hittumst öll í kjötsúpu daginn sem amma var kistulögð og síðan var ég með smá útskriftarveislu um helgina svo það er nóg af veislum í kringum þær og það finnst þeim sko ekki neitt lítið gaman. Arney Vaka sagði meira að segja í gær þegar við Óli vorum að tala um að fara til Maju að sækja restina af dótinu frá veislunni: “nú er veisla?”
Uppáhalds litla frænka okkar kom um seinustu helgi og hafa þær mæðgur að sjálfsögðu búið hjá okkur. Systurnar sætu fengu nýtt rúm um daginn, koju sem er með 120 cm koju niðri og svo mjórri efri koju og lofuðu frænkum sínum fúslega að fá hana lánaða. Það er mikil spenna í að rífast um að sofa á gólfinu í mömmu og pabba herbergi en það er sú litla sem hefur vinninginn, þú hún virðist liggja kyrr þar í stað þess að vera á fullri ferð með endalaust vesen upp í rúminu okkar. Það gekk nú ótrúlega vel miðað við allt að láta hana sofa í nýja rúminu sínu en til að byrja með sofa þær saman í neðri kojunni. Arney Vaka hefur sofið upp í hjá okkur frá fæðingu en var aldeilis tilbúin til þess að flytja sig um set þegar kojan var komin upp. En aftur að frænkumálunum. Systurnar eru alsælar og eru ótrúlega góðar báðar tvær við litlu frænku sína og Steina frænka er auðvitað líka vinsæl. Saga er afskaplega glöð að hafa hana hjá sér því þær eru miklar vinkonur og eiginlega ótrúlegt hversu mikil tengsl eru á milli þeirra miðað við hversu langt er á milli þeirra svona 350 daga á ári. Ída María er sérlega hrifin af bókasafni systranna og rúminu þeirra og fannst ekki heldur leiðinlegt að fá lánaða stubbasæng og kodda. Það er stundum örlítið stirt á milli yngri frænknanna en þær þurfa bara að venjast hvor annarri.
Stelpurnar eru auðvitað alltaf á leikskólanum og eru jafn ánægðar þar og alltaf. Ég er þar náttúrulega líka og í dag var fyrsti dagurinn minn eftir útskrift :) Ég er samt auðvitað búin að vera þarna frá því að ég kláraði skólann. Arney Vaka hefur verið erfið í skapinu og er aftur komin með ónot í magann og leiðindi. Ekkert finnst að barninu og við reynum bara að vera þolinmóð. Hún er svo allt öðruvísi að skapi farin en systir hennar og ekki síður ákveðin og við höfum á stundum staðið á gati yfir henni og hvernig á að taka á henni. Hún er samt svo fáránlega fyndin og skemmtileg á stundum og langoftast er hún ekki til vandræða. Maður er bara vanur svo ólíkum hlutum með systur hennar. Hún Arney Vaka er farin að tala út í eitt og það er alveg sama hvort aðrir séu að tala á sama tíma eða ekki. Eins og systir hennar var er hún mikið upp á H-ið og setur H fremst í ansi mörg orð. Hún er algjör söngfugl og er á fullu í ímyndunarleik. Hún er lánsöm að eiga Sögu fyrir systur því Saga hefur mikla þolinmæði gagnvart henni. Þær leika sér mikið saman og Saga hefur kennt henni ótrúlega margt. Þær eru oftast í mömmuleik og þar sem báðar vilja vera mömmur eru gjarnan mamma og stjúpmamma í hverjum leik. Enginn vill vera litla barnið og enn síður pabbinn. Ég held að hvorug þeirra viti hvað stjúpmamma er en ef það virkar fyrir þær þá er það gott mál! Þegar þær eru ekki í mömmuleik þá er búningaleikir og hverskonar lita- og teikni iðja afskaplega vinsæl.
Við förum í sumarfrí eftir þrjár vikur. Það verður ótrúlega ljúft og við ætlum að ala manninn hér á Íslandi þetta sumarið. Okkur dauðlangar auðvitað út til Os en það kemur sumar eftir þetta sumar. Það er svo ótrúlega margt í gangi í kringum okkur og við viljum vera til staðar fyrir fólkið okkar auk þess sem að ferðalög hafa nú oftast verið hagstæðari en þetta sumarið
Við stefnum á styttri ferðalög innanlands bara og svo er auðvitað hægt að gera alveg ótalmargt í nágrenni borgarinnar. Saga Guðrún er búin að bíða eftir því frá því á sumardaginn fyrsta að fara í sumarfrí en mig grunar að eins og venjulega verði hún farin að sakna Klambra innan skamms. Í fyrra vorum við nánast allt fríið okkar úti svo það var nóg við að vera svo það verður öðruvísi núna að vera heima við.
Þó að ég sé nú frekar treg við að skrifa hérna inn reyni ég að setja inn myndir reglulega. Það gerist þó ekki meðan mæðgurnar í Norge eru hérlendis því þá er enginn samviskusamlega að reka á eftir mér. Af og til detta inn gullkorn
Látum þetta gott heita í bili.
Kveðja
Soffía þroskaþjálfi.
23. júní 2009 kl.19:49
ooh svo gaman hjá ykkur sakana allra ekkert smá og er mjög svekkt ad hitta steinunni og ídu ekki :’(,
kossar og knús frá mér <3