Heppnust :)
9. maí, 2009Arney Vaka var svo ótrúlega heppin í dag að henni var boðið í leikhús með engum fyrirvara! Það sem betra var að leikhúsferðinni fylgd í jeppanum hans Elvars og með ekki amalegri fylgdarlið en “Lehlu og Dajel Beeeeda.” Þau fóru að sjá “Skoppa og Skrítla í söng-leik.” Við Óli fórum svo og sóttum hana í leikhúsið og það voru sko frekar kátir krakkar sem komu rjóð í kinnum og brosandi út að eyrum úr leikhúsinu. Þau skötuhjú sátu stjörf upp við sviðið alla sýninguna og skemmtu sér stórvel. Eftir sýninguna var Erlu hinsvegar ekki til setunnar boðið því Arney Vaka ætlaði bara að drífa sig fram eins og allir hinir og eins gott að stoppa stúlkuna af. Auðvitað voru teknar myndir af þeim með S&S og þetta var mikil upplifun. Eftir á mátti stundum ekki á milli sjá hvort hafði verið meira spennandi hjá Vökunni, að fara í stóra bílinn hans Elvars eða sjá Skoppu og Skrítlu.
Annars verð ég bara að koma því að, ég er BÚIN með skólann og núna er bara beðið eftir einkunnum og geri fastlega ráð fyrir því nema eitthvað fáránlegt hafi gerst að ég útskrifist eftir rúman mánuð. Þetta er yndisleg tilfinning og þrátt fyrir að vera fáránlega þreytt eftir að hafa byrjað að vinna og snúa sólarhringnum við er frelsið óneitanlega yndislegt :) Saga er líka voða fegin að ég sé hætt að læra og Vakan líka. Þó hann hafi ekki hátt um það held ég að Óli sé það nú eiginlega líka, enda búið að vera frekar mikið álag hér á heimilinu, eiginlega síðan í nóvember bara.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni, en smá comment drepur engan