Páskapáska…
Mér finnst páskafríið bara rétt hafa stungið inn nefinu og ég væri svo til í eins og tvo daga í viðbót. Þetta var kannski líka í snubbóttara lagi því heilmikill lærdómur og leiðindaveikindi settum sinn svip á þetta frí okkar. Við náðum nú samt alveg að gera helling
![]()
![]()
Saga Guðrún er orðin svo STÓR! Á miðvikudaginn gisti Sigríður Björg hjá okkur og það er nú ekkert lítið afrek að fá vinkonu í gistingu í fyrsta sinn. Trillurnar þrjár brölluðu ýmislegt - stóru stelpurnar fóru einar út að leika, þær hjálpuðust allar að við að elda sjóræningjapylsur og salat, síðan var kózýkvöld með ís og MammaMia. Daginn eftir rifu vinkonurnar sig á fætur eftir það sem okkur fannst helst til stuttur nætursvefn og stuttu síðar bröltum við Arney á eftir þeim og bjuggum til páskakonfekt. Síðan var aftur farið út að leika, farið í búningaleik og svona ýmislegt brallað! Soffía fékk Sögu svo lánaða og þær fóru í sund og fengu í sog svona skemmtilegt eftir það svo það var vel heppnaður dagur
Hún var alveg alsæl með að hafa vinkonu sína hjá sér og litla systirin talaði stanslaust um “Bibbiti Bött” sína eftir heimsóknina. Henni finnst nú soldið súrt að vera ekki jafnstór og þær og finnst stundum halla svolítið á sig. Við ætlum að endurtaka leikinn fljótlega og þá ætlar Saga að gista hjá þeim og þá helgi förum við einmitt á Kardimommubæinn! Ótrúlega spennandi og mikil tilhlökkun! Við erum að lesa bókina núna og þó að hún hafi þráast við í fyrstu vegna hræðslu við ræningjana er hún alveg sokkin á kaf í söguna núna. Mér finnst stóra stelpan mín hafa þroskast ótrúlega mikið á stuttum tíma og í páskafríinu er hún bæði búin að æfa sig að lesa og reikna og gengur stórvel
Það er ekki að spyrja að dugnaðinum í þessari stelpu enda er hún með snert af fullkomnunaráráttu og gerir hlutina almennilega ef hún gerir þá á annað borð. Nú er hún komin í sumarfrí í dansskólanum og fékk að launum viðurkenningarskjal sem hún var frekar stolt af. Hún tók líka þátt í nemendasýningunni hjá ÍR og stóð sig ótrúlega vel
Hún hefur haft rosalega gaman af þessu og lært alveg ótrúlega mikið. Það hefur a.m.k. komið mér mikið á óvart hversu mikið hún virðist kunna og ég stend hana þó nokkuð oft í því að taka létt spor hérna heima við. Síðan dreymir stúlkunni um að læra að spila á fiðlu og er búin að tala um það síðan um áramót. Fótbolti er líka á óskalistanum hjá henni svo hún er ansi opin fyrir hinum ólíklegustu hlutum :) Hún er farin að leika sér svolítið hérna á leikvellinum fyrir utan hjá okkur og þar er mikið af lífi þessa dagana.
![]()
Það er alltaf sama sagan endalausa með litlu skessuna okkar. Hún fékk flensu fyrir 10-15 dögum og lá í átta daga. Á miðvikudaginn fórum við með hana einn stuttan hring úti í kerru og á fimmtudaginn fékk hún að fara á smá flakk. Aðfaranótt föstudagsins hélt sagan svo áfram þar sem Gullfoss og Geysir voru mættir í heimsókn af fullum krafti og það var ansi hreint aum Arney Vaka sem við áttum þann daginn! Litla lúsin okkar hafði þá lítið sem ekkert borðað í 10 daga og er farin að láta á sjá! Litla bollan er sko ekki mikil bolla lengur. Það er líka almennt mjög ólíkt henni að missa matarlystina á þennan hátt þar sem hún elskar að borða og er eitt það mesta matargat sem við höfum kynnst. Ég man ekki til þess að hún hafi hætt að borða í veikindum áður nema þegar hún fékk 5 daga ælupest í haust, þá hætti hún að borða á fjórða degi. Þessi gubbupest stóð sem betur fer stutt og við fórum með hana út að labba á laugardaginn, svona aðeins til að létta lundina hennar sem er orðin ansi þung á inniveru og leiðindum. Ég veit að ég myndi ekki láta mér detta í hug að hanga inn svona lengi og vera til friðs eins og ég ætlast til af henni. Mikið óskaplega verður gott fyrir hana að komast á Hlíðina sína á morgun þar sem skapið á henni er orðið ansi stirt. Það hlaut að koma að þessu, þó fyrr hefði verið en þetta er líka lengsti tíminn sem hún hefur verið fjarverandi i vetur. Hún er nánast orðin altalandi og hefur mikið til málanna að leggja. Ég bjóst við því að hún kæmist hreinlega ekki að en hún er þannig týpa að hún kemur sér alltaf að. Hún hefur eytt miklum tíma í að púsla og er ótrúlega dugleg í því, hún þekkir orðið alla litina (er samt ekki 100% klár á ljótu litunum sko) og telur upp í 13. Hún er líka mjög upptekin af stöfunum eða öllu heldur einum staf. Hún smitast auðvitað af systur sinni en fyrir Arneyju er bara einn stafur og það er auðvitað A. Áðan kom hún inn í stofu ansi laumupúkaleg á svip og hafði þá stolið öllum A segulstöfunum af ísskápnum því “Nenna á a.”
![]()
Stelpurnar fengu sitthvort páskaeggið frá ömmu Eddu og var mikil spenna. Saga var farin að hafa alvöru áhyggjur af því að fá ekki páskaegg þar sem vinkona hennar talaði mikið um sitt og Saga hafði ekki séð sitt eigið. Það var því ansi hamingjusöm skotta sem fann páskaegg þar á föstudaginn langa. Við ákváðum að kaupa handa þeim páskagjöf í staðinn fyrir meira súkkulaði enda standa páskaeggin þeirra hálfétin inn í skáp. Arney Vaka hefur ekki snert á sínu, hún bragðaði nokkra mola af sælgætinu og hrækti þeim svo út úr sér og snerti ekki á skelinni. Saga var aðeins duglegri en áhuginn er nú ekkert svakalegur. Svo það var nú eins gott að þær fengju egg! Þær hafa líka fylgst með páskaliljunum af áhuga undanfarna viku eða svo og af miklum áhuga! Vorið er að fara vel í mannskapinn og við erum komin með stól og borð á svalirnar þar sem Sagan sat og teiknaði í dag. Arney átti ekki til orð þegar ég sagði henni frá því þegar hún vaknaði og var steinhissa á þessu þegar hún sá það. Hún var sannfærð um að ég væri að bulla
![]()
Núna er lokaspretturinn hjá mér í skólanum. Næstu vikur verða örlítið strembnar en við Saga erum ótrúlega spenntar fyrir því þegar ég “þarf aldrei aftur að læra.” Hún spurði mig um daginn hvort ég færi þá aldrei aftur í skóla. Ég þorði nú ekki alveg að lofa því en sagði henni að það yrði ábyggilega svolítið langt í það. Ég er nú sannfærð um engu að síður að það verði fljótt að venjast og sennilega erfiðara að byrja aftur þegar þar að kemur. Við ætlum svo að fara í sumarbústað í maí með góðum vinum og hafa það gott. Síðan er bara þetta venjulega sumarstúss framundan, synda, hjóla, leika, grilla
Saga sér sumarið í hyllingum og hlakkar mikið til að borða hamborgara í garðinum. Það gerðum við nefnilega einu sinni í fyrra og það er henni í fersku minni. Hún ætlar sko bara að hlaupa með hamborgarann niður í garð af svölunum til þess að borða hann þar. í fyrstu fannst henni afleit hugmynd að ætla að borða uppi á svölunum en ég held að sú hugmynd hafi unnið á í dag þegar borðið og stólarnir voru settir upp.