2ja ára …

Ég skrifaði þennan póst á afmælisdaginn hennar Arneyjar en var að ljúka við hann núna!

Takk fyrir það . .. ótrúlegt en satt, litla Vakan okkar er 2ja ára gömul í dag! Mér finnst svo ótrúlega stutt síðan að hún fæddist og var pínulítil. Núna er þetta bara státin 2ja ára gömul stúlka sem við erum ótrúlega heppin að eiga!  Við erum ótrúlega lánsöm með hana. Hún er kostulegur karakter hún Arney Vaka og það er endalaust gaman að fá að fylgjast með henni í dagsins önn.  Hún var sannkallað ljós fyrstu mánuði ævinnar og við þurftum afskaplega lítið fyrir henni að hafa.

Ég væri ekki að segja satt ef ég segði að hún væri sama ljósið og hún var í fyrstu. Þegar hún öðlaðist nægan hreyfiþroska til að koma sér úr stað kom í ljós að litla kroppnum hennar býr óþrjótandi orka og þrek.  Hún er alltaf að, hún er dugleg og ef hún er ekki á fullu út um allt og upp um allt þá er hún sennilega sitjandi einhvers staðar á góðum stað með góða bók í hönd.  Þrátt fyrir að vera vel virk þá á hún auðvelt með að dunda sér. Það er líka ótrúlega gott að eiga góða fyrirmynd í þeim efnum.

Undanfarnar vikur og mánuði þakka ég reglulega fyrir hvað barnið er vel gerð.  Það er svo sannarlega gott að barnið er búið svona miklu jafnaðargeði því að það auðveldar okkur öllum þessi endalausu veikindi sem eru að hrjá hana.  Hún heldur alltaf haus og alveg ótrúlegt hvað þessi veikindi virðast lítið fá á hana.  Hún er þó vissulega orðin þreytt á þessu núna og þá fyrst og fremst inniverunni en lái henni hver sem vill.  Mér finnst það í góðu lagi, ég veit ekki hvert ég væri komin í sömu sporum.

Hún er búin að eiga frábært afmælisseason enda búin að vera vel spennt.  Systir hennar er náttúrulega fætt afmælisbarn og Arney Vaka hefur beðið þessa dags í nokkrar vikur.  Kórónan sem hún fékk á leikskólanum var sérlega spennandi og var varla tekin niður fyrr en vel var liðið á veisluna. Hún naut þess í botn að láta syngja fyrir sig afmælissönginn, bæði á vinafundi fyrir framan allan leikskólann og eins í veislunni í gær.  Pakkarnir voru í miklu uppáhaldi sem og auðvitað barbapabba kakan sem hún beið spennt eftir því að borða. Síðan var boðið upp á lseikjó og ís sem vakti líka lukku hjá litla matargatinu.

Arney Vaka er frábær.  Það er líka ótrúlega skemmtilegt hvað þær systur eru ólíkar. Við höfum stundum sagt að þær séu eins og svart og hvítt og ef ég hefði vitað það í upphafi með þær, þá hefði margt orðið auðveldara - ég hefði bara alltaf reiknað með þveröfugu við það sem reynslan með Sögu sagði mér. Þrátt fyrir að vera ólíkir persónuleikar þá er Arney Vaka að verða líkari og líkari stóru systur sinni og það er svo sannarlega ekki leiðum að líkjast.  Mér finnst hún ómótstæðileg í dag, í nýjum Dóru kjól sem hún fékk í afmælisgjöf frá systur sinni, með endalaust magn af hori og augun fljótandi í hausnum því auðvitað fagnaði hún tímamótunum með flensu.  Þrátt fyrir flensu ætla ég að leyfa mér að fullyrða að afmælisbarnið hafi notið dagsins og daganna á undan eins og best var á kosið :)

Svara