Skjalasafn fyrir febrúar, 2009

Í fréttum er þetta helst…

21. febrúar, 2009

… Arney Vaka verður 2ja ára gömul eftir 1 mánuð og 5 daga! Ótrúlegt en satt!  Mér finnst að það ætti að banna það hvað tíminn líður hratt og litla barnið mitt stækkar hratt! Stóra barnið mitt er líka orðin ótrúlega fullorðin og dugleg!

Það sem af er árinu hefur alltof mikill tími farið í veikindi. Eyrnabólgur, berkjubólgu, gubbupest og ýmislegt skemmtilegt.  Á tímabili var þetta farið að fara ansi mikið í skapið á litla veikindapésanum en eftir rúmar tvær vikur á góðu róli er hún búin að taka gleði sína á ný og er ekkert að kippa sér upp við gubbupestina sem nú hefur verið að hrjá hana. Hún er nú samt ekki alltof kát, myndi að sjálfsögðu frekar vilja fara á Hlíðina sína en lætur sig hafa það.

Snjórinn vakti mikla lukku á heimilinu, amk hjá eldri kvenpeningnum.  Arney Vaka hafði í fyrstu ekkert gaman af þessu og eftir fyrstu almennilegu sleðaferðina sagði hún söguna þannig að mamma hefði verið að renna, Elvar að henda (snjóboltum sko) og Erla að passa Nennu.  Það var alveg spurning hvort að Sagan eða mamman hefðu meira gaman af snjónum og undir lokin þegar snjórinn kvaddi var pabbinn orðinn pínu gramur á bilaða fætinum.  Hann er samt allur að koma til og hver veit nema hann geti farið út að renna ef það kemur meiri snjór!

Arney Vaka steig stórt skref um helgina og gisti hjá ömmu sinni í fyrsta sinn.  Hún var nú alveg með eitthvað vesen en þetta gekk nú allt mjög vel í heildina fyrir utan ræs&sjæn kl.6:30.  Hún er líka alveg á því að fara með prinsessusængina aftur til ömmu og gista en bara seinna ;)  Saga duglega er orðin mjög sjóuð og farin að biðja um þetta að fyrra bragði sem er stórt skref fyrir stelpu sem þurfti andlegan undirbúning í nokkra daga.  Hún vaknaði bara einn daginn og var búin að ákveða að þetta vildi hún og síðan er mikið talað um að gista hjá ömmu!

Ég er í leyfi frá leikskólanum núna og er á fullu í verknámi.  Þar að auki er ég líka að skrifa lokaritgerð og í einum áfanga enn í skólanum svo það er ekki mikið um dauðar stundir þessa dagana.  Þetta er samt allt ótrúlega spennandi og mikið gaman hjá mér, svona fyrir utan þegar litlar stelpur bresta í grát þegar mamma á að læra.  Stóra stelpan mín er ótrúlega dugleg og umburðarlynd yfir þessum lærdómi og talar um að í sumar, þegar ég verði orðin “froskur” þurfi ég aldrei að læra :)  Jiiii hvað það verður ljúft! Ef ég þekki sjálfa mig rétt verð ég samt fljót að finna mér eitthvað annað að gera í staðinn en tilhugsunin er samt ótrúlega ljúft!

Látum þetta gott heita í bili, ég set alltaf inn myndir af og til.