Gleðilegt ár

Gleðilegt kæru vinir, ættingjar og auðvitað leyndir aðdáendur! Við fjölskyldan (ég hef ákveðið að hætta að kalla okkur litlu fjölskylduna þar sem við erum nú bara þónokkuð mörg) fögnuðum áramótunum á Álftanesinu eins og er orðið að hefð hjá okkur.  Amma og afi voru með okkur og þetta var ljúft kvöld með góðum mat og frábærum félagsskap.  Við kveiktum á stjörnuljósum og handblysum og var það mjög skemmtilegt.  Þegar Óttar Már skaut upp einu rakettunni  sem við fjárfestum í hlupu systurnar grenjandi inn í hús og höfðu ekki gaman af.  Innan frá voru þessar sprengingar þó bara allt í lagi og enginn ótti sást á Arneyju.  Þær vöktu sprækar hérna fram eftir nóttu og eru ansi undirleitar í dag.

Við áttum líka auðvitað yndisleg jól, í miklum tengslum við náttföt, át og leti.  Systurnar gerðu öllum fallegu jólagjöfunum sínum góð skil og vöktu voru afar ánægðar með allt sem þær fengu.  Þær fengu svona sittlítið af hverju s.s. bækur, leikföng, föt, teppi, kodda og ýmislegt fleira.  Við fengum fullt af góðum gestum og heimsóttum fullt af skemmtilegu fólki.  Pabbinn losnaði við gipsið og er byrjaður að staulast um og Arney raðaði inn nýjum orðum og flóknari setningum.  Sagan liggur yfir yfir stöfum og orðum og langar mikið til að læra að lesa.  Ég lagði mig sérstaklega fram um að liggja í leti og gera sem allra minnst til að safna kröftum.  Á mánudaginn ætla ég svo að byrja af alvöru :)

Í dag fórum við litla fjölskyldan í bíó.  Arney Vaka var að fara í sína fyrstu bíóferð en hún er mikil áhugamanneskja um sjónvarp og allt sjónvarpsefni.  Það voru ansi spenntar systur sem trítluðu í Smárabíó að horfa á vinkonur sínar Skoppu og Skrítlu.  Það er skemmst frá því að segja að þær skemmtu sér ótrúlega vel.  Arney hafði alveg þol í myndina og var í raun mun brattari en Saga.  Saga er viðkvæm fyrir hávaðanum í bíó en það var sú litla sko ekki.  Svo skemmdi auðvitað ekki fyrir að fá popp en hún raðaði í sig poppinum nær alla myndina og afrekaði að hella úr pokanum á gólfið sér til mikillar hrellingar.  Hún var ekki sérstaklega sátt með það að fá ekki að týna poppið aftur upp í pokann.  Sem betur fer var hún þó ekki eini bíógesturinn sem gerði sömu hlutina þarna í dag :) Á morgun er alvara lífsins þar sem ég þarf að mæta í vinnu en stelpurnar ætla að eiga einn dag enn í fríi með pabba og byrja á mánudaginn í leikskólanum.  Saga er hæstánægð með jólafríið en ég held að Arney Vaka væri meira en til í að koma með mér og fara á Hlíðina sína.

Afmælisbarn gærdagsins fær svo frá okkur risastórt knús og kossa og saknaðarkveðjur.  Við vitum að frændur og frænkur og amma og afi í Noregi stjönuðu við hana en ó boj, hvað við hefðum verið til í að leggja hönd á plóginn við það verkefni :) Ída María 1 árs

Svara