Skjalasafn fyrir janúar, 2009

Upphaf ársins

14. janúar, 2009

Eitthvað fór nýja árið öfugt af stað hjá Arneyju Vöku en hún er búin að liggja veik eiginlega allan tímann. Hún byrjaði á því að fá magapest og háan hita á þriðjudaginn. Það kom samt fljótt í ljós að hún var með eitthvað meira en bara það og á fimmtudag og föstudag var hún svakalega veik. Aðfaranótt föstudagsins stóð mér nú bara ekki á sama um litla skottið mitt, svo lasin var hún :(
Á mánudaginn kom í ljós að hún hefur sennilega fengið RS-vírusinn og slæma eyrnabólgu og mikla berkjubólgu í kjölfarið á því … svo er hún náttúrulega full af astma og fær alveg fullan skammt af pústi þessa dagana og pensillín að auki. Það er nú ekki skemmtilegur kokteill en hún er búin að liggja veik í átta daga og bara mjög ólík sjálfri sér í alla staði. Hún er samt öll að koma til en er með einhverja smá hitavellu en orðin sjálfri sér lík.

Arney Vaka er búin að vera mikið lasin, bæði í fyrravetur og svo aftur núna í vetur. Við getum samt þakkað fyrir hvað barnið er vel að skapi farin og hún hefur alltaf brosað í gegnum tárin og borið sig vel. Þetta er í rauninni í fyrsta skipti fyrir utan ælupestina í haust sem hún týnir brosinu sínu og góða skapinu. Þó það nú væri enda engin smá veikindi í þetta sinn. Einnig minnkaði matarlystin hennar verulega þó að hún hætti nú aldrei alveg að borða. Hún fór í blóðprufu á mánudagsmorguninn og þar sýndi hún hjúkrunarkonunni hvurslags snillingur hún er. Hjúkkan byrjaði á því að bjóða mér að fara með hana eitthvað annað þar sem hún var frekar óörugg að taka prufu úr svona litlum æðum. Ég sagði henni, sannleikanum samkvæmt að við skyldum bara prófa af því að Arney hefði farið áður í blóðprufu og staðið sig ótrúlega vel og hún væri sko ekki vön að kveinka sér að óþörfu. Viti menn, það var ekki einu sinni spenna í kroppnum hennar á meðan hún fylgdist með konunni fylla þrjú glös að blóði. Sömu sögu var ekki að segja um mömmu hennar sem fékk nú léttan svima yfir þessu öllu saman :) Konan átti ekki til orð yfir því hvað hún væri seig og sveimér þá ef að Arney Vaka hafi ekki hjálpað henni í að verða öruggari við að taka blóð úr svona krílum :)

Núna er Arney Vaka að hjálpa pabba sínum að elda matinn, hún er hrikalega sæt með svuntu og allt saman. Henni finnst þó öllu meira spennandi hvað Saga Guðrún er að gera. Hún situr við hliðina á mér og er að vinna verkefni í Geitungnum. Hún hefur síðan hún átti afmæli haft brennandi áhuga á því að lesa og skrifa og er ótrúlega dugleg. Hún er bæði einbeitt og samviskusöm og þekkir orðið alla stafina og með góðri hjálp getur hún lesið einföld orð. Það er áreiðanlega ekki langt í að hún verði læs ef hún heldur svona áfram.

Saga Guðrún hefur þroskast mikið í vetur og hefur bætt miklu við sig í orðaforða og málskilningi þó að það hafi svosem ekki vantað neitt upp á þar á bænum :) Um síðustu helgi náði hún líka nýjum áfanga þar sem hún ákvað að fyrra bragði að fara og gista hjá ömmu sinni. Auðvitað var það ekkert mál og allir ánægðir með helgina. Arney Vaka hafði það gott í dekri og kósi með mömmu og pabba og naut þess að vera ein með þeim. Bakaði pizzu með pabba. Það var nú svolítið krúttlegt að um nóttina skældi hún svolítið eftir Sögunni og skreið upp í rúmið hennar og þóttist ætla að sofa þar. Það varð nú ekkert úr því en hugsunin var krúttleg engu að síður! Saga hafði það að sjálfsögðu ótrúlega gott líka í dekri í Kópavoginum og er alveg á því að hún ætli að gista bráðum aftur.

Talandi um orðaforða og málskilning þá er Arney Vaka farin að tala ótrúlega mikið. Hún er farin að segja nokkurra orða setningar og er þ.a.l. komin með sinn eigin gullkornatengil hérna til hliðar. Ég reyni að setja inn eins og ég man eftir en hausinn er eitthvað að stríða mér eins og fyrri daginn og virðist stundum vera hálfgert gatasigti. Ég settí þó nýtt inn hjá Sögu í gær :)

Pabbinn á bænum er orðinn mjög brattur að ganga með staf oger allur að koma til. Í næstu viku verður fjarlægt ein skrúfa og þá fer þetta að verða eðlilegt. Þegar hann náði í Sögu á leikskólann í dag var einn drengur á deildinni sem sagði: ,,þarna kemur gamall karl!” Dálítið broslegt - en heilmikið skegg og stafurinn hefur villt honum sýnir! Reyndar héldu börnin á þessari sömu deild að ég væri allt frá 13 ára og upp til fertugs fyrir nokkrum árum þegar ég vann þarna inni. Svo kannski er það bara það :D

Jæja, þetta voru bara nokkrir punktar sem ég mundi eftir. Vonandi fer Vakan að komast á leikskólann en hún hefur bara mætt einn dag eftir áramót. Það er nú frekar lélegt og ég þykist viss um að hún sakni leikskólans og vina sinna þar.

Gleðilegt ár

3. janúar, 2009

Gleðilegt kæru vinir, ættingjar og auðvitað leyndir aðdáendur! Við fjölskyldan (ég hef ákveðið að hætta að kalla okkur litlu fjölskylduna þar sem við erum nú bara þónokkuð mörg) fögnuðum áramótunum á Álftanesinu eins og er orðið að hefð hjá okkur.  Amma og afi voru með okkur og þetta var ljúft kvöld með góðum mat og frábærum félagsskap.  Við kveiktum á stjörnuljósum og handblysum og var það mjög skemmtilegt.  Þegar Óttar Már skaut upp einu rakettunni  sem við fjárfestum í hlupu systurnar grenjandi inn í hús og höfðu ekki gaman af.  Innan frá voru þessar sprengingar þó bara allt í lagi og enginn ótti sást á Arneyju.  Þær vöktu sprækar hérna fram eftir nóttu og eru ansi undirleitar í dag.

Við áttum líka auðvitað yndisleg jól, í miklum tengslum við náttföt, át og leti.  Systurnar gerðu öllum fallegu jólagjöfunum sínum góð skil og vöktu voru afar ánægðar með allt sem þær fengu.  Þær fengu svona sittlítið af hverju s.s. bækur, leikföng, föt, teppi, kodda og ýmislegt fleira.  Við fengum fullt af góðum gestum og heimsóttum fullt af skemmtilegu fólki.  Pabbinn losnaði við gipsið og er byrjaður að staulast um og Arney raðaði inn nýjum orðum og flóknari setningum.  Sagan liggur yfir yfir stöfum og orðum og langar mikið til að læra að lesa.  Ég lagði mig sérstaklega fram um að liggja í leti og gera sem allra minnst til að safna kröftum.  Á mánudaginn ætla ég svo að byrja af alvöru :)

Í dag fórum við litla fjölskyldan í bíó.  Arney Vaka var að fara í sína fyrstu bíóferð en hún er mikil áhugamanneskja um sjónvarp og allt sjónvarpsefni.  Það voru ansi spenntar systur sem trítluðu í Smárabíó að horfa á vinkonur sínar Skoppu og Skrítlu.  Það er skemmst frá því að segja að þær skemmtu sér ótrúlega vel.  Arney hafði alveg þol í myndina og var í raun mun brattari en Saga.  Saga er viðkvæm fyrir hávaðanum í bíó en það var sú litla sko ekki.  Svo skemmdi auðvitað ekki fyrir að fá popp en hún raðaði í sig poppinum nær alla myndina og afrekaði að hella úr pokanum á gólfið sér til mikillar hrellingar.  Hún var ekki sérstaklega sátt með það að fá ekki að týna poppið aftur upp í pokann.  Sem betur fer var hún þó ekki eini bíógesturinn sem gerði sömu hlutina þarna í dag :) Á morgun er alvara lífsins þar sem ég þarf að mæta í vinnu en stelpurnar ætla að eiga einn dag enn í fríi með pabba og byrja á mánudaginn í leikskólanum.  Saga er hæstánægð með jólafríið en ég held að Arney Vaka væri meira en til í að koma með mér og fara á Hlíðina sína.

Afmælisbarn gærdagsins fær svo frá okkur risastórt knús og kossa og saknaðarkveðjur.  Við vitum að frændur og frænkur og amma og afi í Noregi stjönuðu við hana en ó boj, hvað við hefðum verið til í að leggja hönd á plóginn við það verkefni :) Ída María 1 árs