Jóla jóla jóla …
Ótrúlegt en satt, þessi blessuðu jól eru komin einu sinni enn. Hér á heimilinu er allt að smella og það var frekar mikið spennt Saga sem fór að sofa og getur ekki beðið eftir að klukkan verði ca. 20 á morgun. Í gær komst hún nefnilega að því að það væri ekki ráðist á pakkana strax kl.18 og óx tilhugsunin eitthvað í augum að eiga að borða jólamatinn og GANGA FRÁ áður en ráðist væri á flóðið. Við fyrstu sýn virðast þessi jól ekki gefa síðustu jólum neitt eftir og eru pakkar nær allsstaðar á heimilinu. Við settum jólatréð upp í dag en klukkan var orðin svo margt að við ákváðum að fresta skreytingunum þar til í fyrramálið. Það verður því spennandi spari morgunmatur í morgunmatinn, auk þess sem mér sýnsit jóli hafa fært þeim óvenju veglega gjöf í skóinn þessa nóttina. Síðan ætlum við að skreyta tréð áður en við förum til ömmu & afa í pakkaheimsókn.
Systurnar hafa átt góðan desember mánuð. Arney hefur verið svolítið lasin en hress eins og alltaf með því. Saga hefur mikið gaman af jólasveinunum og öllu því sem þeim fylgir og er í fyrsta sinn að skilja jólin svona almennilega. Hún hefur talið niður af miklum móð og spáð í pakkana. Mér fannst ansi magnað þegar hún stóð á gati yfir því hvað hana langaði eiginlega í í jólagjöf. “Ég veit bara ekki hvað það er því að ég á nefnilega eiginlega allt.” Saga Guðrún fór á tvö jólaböll og stóð sig eins og hetja. Var ekki til í dæminu að hún væri smeyk við sveinka og á síðara jólaballinu sem var haldið í dansskólanum þá bað hún jólasveininn ein og óstudd hvort hún gæti fengið nammipoka fyrir litlu systur sína líka. Arney missti af því fjöri þar sem hún var lasin heima. Yndislega stóra systirin sem alltaf hugsar um litluna sína. Arney Vaka var mjög spennt fyrir sveinka en í of miklu návígi missti hún aðeins kúlið. Fór samt ekkert að skæla en svona já, munaði ekki miklu að hún beygði af.
Arney Vaka hefur þroskast ótrúlega síðustu vikur og er farin að tala mjög mikið. Í byrjun desember byrjaði hún að segja þriggja orða setningar og er farin að setja saman allt að fimm orð núna. Henni liggur mikið á hjarta og það væri hrein lygi að segja að henni lægi lágt rómur. Hún er óþekkari en nokkru sinni fyrr og ennþá frumlegri og skemmtilegri en hingað til. Það ætti engum að leiðast í kringum hana Vöku okkar. Pabbi hennar kom að henni um daginn þegar það var búið að vera hljóð ískyggilega lengi og þá var mín kona að skrúbba klósettið að utan með klósettburstanum! Hjálpleg þessi elska vitandi að mamma hennar hefði nóg af gera!
Pabbinn er enn á hækjum og losnar ekki við gipsið fyrr en milli jóla og nýárs. Við vonum að minnsta kosti að það verði tekið þá því þetta er að verða ansi þreytt fyrir alla aðila. Hann er samt ótrúlega duglegur eins og alltaf en er samt orðinn doltið þreyttur á þessu eins og gefur að skilja.
Jæja, ég er svona að ná mér niður eftir hamaganginn og er að hugsa um að skríða í rúmið. Það verður ræs hjá okkur í fyrramálið svo að það sé tryggt að Arney nái góðum miðdegislúr svo að hún verði fullu fjöri um kvöldið. Sennilega verður Sagan líka látin leggja sig svo að allir verði kátir og hressir.
Við segjum þá bara gleðileg jól og setjum vonandi inn myndir um hátíðarnar.
