Skjalasafn fyrir nóvember, 2008

Laugardagur til lukku? …Já eða ekki

16. nóvember, 2008

Yndislegustu systurnar … á þessari mynd eru þær algjörlega sjálfum sér samkvæmar.

Annars lentum við og sérstaklega pabbinn í óskemmtilegri lífsreynslu um helgina. Hann og Saga voru á leiðinni í dansskólann í gærmorgun og það vildi ekki betur til en það að þau voru á hraðferð, pabbi tekur hana í fangið og voila - flýgur á hausinn í hálkunni.  Tja eða á hausinn … hausinn var sem betur fer heill en það var ekki alveg það sama að segja um vinstri fótinn á honum.  Hann lá sárkvalinn út á bílastæði þar sem yndislega hjálpsamt fólk kom að og hlúði að honum og hringdi á sjúkrabíl og reyndi að tjónka við Sögu sem var algjörlega sturluð úr hræðslu.  Ekki varð upplitið betra á Arneyju þegar við komum æðandi út og þær voru afskaplega hræddar og slegnar yfir þessu öllu saman.  Arney varð sérstaklega reið þegar sjúkrabíllinn keyrði í burtu með pabba hennar :(  Á slysó kom svo í ljós að hann hafði tvíbrotið ökklann og farið úr lið og í gærkvöldi fór hann svo í aðgerð til að hægt væri að púsla þessu saman upp á nýtt!  Hann fékk að koma heim upp ur hádegi í dag en er frekar kvalinn og ómögulegur. Stelpunum líst ekkert á þetta ástand en venjast því örugglega fljótt.  Nú tekur við strembinn tími - lokaspretturinn í skólanum hjá mér fyrir jólin og pabbinn þarf fyrst og fremst að láta sér batna.  Þetta mun að öllum líkindum taka einhverjar vikur og við ætlum að vera duglegar að passa upp á hann og dekra við greyið okkar!  Arney Vaka er kannski ekki alveg á sömu bylgjulengd þar sem hún er þegar búin að gera tilraun til að ræna hækjunum sem henni finnst afar spennandi.

Kveðjur úr Fífuselinu þar sem aldrei er neitt með kyrrum kjörum

4ra ára

4. nóvember, 2008

Þessi gullfallega stelpa er akkúrat 4ra ára á þessari mynd.  Hún var eins og gefur að skilja búin að bíða stóra dagsins með mikilli eftirvæntingu og átti yndislegan afmælisveislu á sunnudeginum áður.  Hún naut hans út í ystu æsar í faðmi fjölskyldunnar og allra þeirra frábæru vina og ættingja sem við eigum.  Afmælisdagurinn sjálfur var líka kærkomin, hún var stjarna dagsins á leikskólanum og loksins hætt að vera 3ja ára.  Það var sunginn fyrir hana afmælissöngurinn, hún var borðþjónn, það var flaggað fyrir henni og síðast en ekki síst fékk hún Latabæjarborðbúnað í tilefni dagsins.  Eins og alltaf fékk hún heilmikið af fallegum gjöfum og hefur verið ótrúlega dugleg að dunda sér með þær síðan.  Systir hennar naut sín líka í afmælinu en þegar afmælisdagurinn sjálfur rann upp vildi hún sem minnst um þetta tala og fannst umræðuefnið greinilega orðið þreytt.

Mér finnst ótrúlegt að Sagan mín sé orðin 4ra ára.  Hún er svo stór og dugleg og klár og síðast en ekki síst skemmtileg.  Hún er frábær krakki í alla staði og með ólíkindum að við eigum svona velheppnaðan einstakling.  Ég er svo ótrúlega stolt af því að eiga þessa stelpu og hún hefur kennt mér endalaust margt.  Afmælisdagurinn í ár eins og alltaf var einhvers konar milestone fyrir mig.  Ég verð eitthvað svo ótrúlega meyr og klökk og finnst svo aðeins meira til dætra minna koma þá daga en hina.

Smá syrpa frá 29.október síðustu ár…

29.október 2004

29.október 2005

29.október 2006

29.október 2007

29.október 2008.

Þó að afmælisdagurinn sé klárlega dagurinn hennar Sögu þá má ekki gleyma litlu systurinni yndislegu sem er svo hrikalega veik með upp og niður að ég hef ekki vitað annað eins.  Hún er búin að æla ábyggilega 30x síðasta sólarhringinn og það er skelfilegt álag fyrir ekki stærri kropp.  Hún á allra okkar samúð þrátt fyrir að við séum búin að koma því á hreint að smit innan hússins sé ekki æskilegt.

Leyfum henni að klára þessa afmælisfærslu en þetta er einmitt nýji myndavélasvipurinn hennar

Kveðja
Soffía