Afmæli ársins
Við héldum upp á 4ra ára afmælið hennar Sögu Guðrúnar í dag. Dagsins hafði verið beðið af mikilli eftirvæntingu og hann stóð heldur betur undir væntingum. Við fjölskyldan áttum yndislegan dag með yndislegu fólki og það var heldur betur sæl stelpa sem er aaaaalveg að verða 4ra ára sem fór í háttinn. Fjölmargar myndir voru teknar en ég er alltof þreytt til að setja þær inn í bili. Hérna má þá sjá afmælisstelpuna okkar með bestustu vinkonum sínum :) Ótrúlega yndislegar stelpur :) Önnu Petreu hefur Saga þekkt frá fæðingu eða svo gott sem, Tinnu Mjöll frá því hún var nokkurra vikna og Sigríði Björgu er hún búin að vera með nánast á hverjum degi í þrjú ár :) Þetta er sko lánsöm stelpa sem við eigum
Knús og kossar frá ansi hreint meyrri móður
Soffía

27. október 2008 kl.20:02
Til hamingu með afmælið;)
27. október 2008 kl.20:55
Æðislega mynd af flottustu stelpunum í bænum ;o)
29. október 2008 kl.10:07
Til hamingju með 4 ára skvísuna.
Bara svo langt að fara skilluru 
Við erum aaaaaalveg á leiðinni í heimsókn til ykkar
Kv
Hófý og Hafrún