Stjarnan hún Arney
Ég held að Arney Vaka hafi fæðst stjarna. Hún er amk snillingur í því að stela senunni hvar sem hún kemur. Hún fór í 18 mánaða skoðun í gær og þegar ég reyndi að sannfæra hjúkrunarkonuna um að hún væri eiginlega ekkert farin að tala þá sýndi hún og sannaði hversu rugluð mamman er. Hún gekk að fötunum sínum og týndi þau á gólfið með tilheyrandi útskýringum: “galli, sokkar,skór, peysa og húfa.” Svo stóð hún bara sjálf og lyfti upp samfellunni til að láta hlusta sig og strauk hárið frá eyrunum á meðan ég sat í makindum mínum í stól langt frá þegar læknirinn skoðaði hana. Hún er alveg hreint ótrúleg.
Við fórum líka í búð á Skólavörðustígnum í dag þar sem er afskaplega mikið af fallegum leikföngum. Við komum þar síðast í sumar þegar að Steinunn og Ída voru með okkur en Arney hafði greinilega engu gleymt. Klæddi sig úr húfu og úlpu, heilsaði konunum í búðinnni með risastóru brosi og kom sér fyrir við uppáhaldsleikfangið. Það er svona leikfang sem glerkúlur er látnar renna niður með skemmtilegu hljóði og í fallegum litum. Það sem hún dundaði sér, brosandi út að eyrum við að leika sér og heilla starfsfólkið. Taldi fyrir þær glerkúlurnar og var bara ótrúlega fyndin. Þegar við svo komum út þá barði hún í gluggann og hrópaði bless og sendi fingurkossa og alles.
Það má líka til gamans bæta við að stjarnan okkar er tæp 12 kg og 86 cm samkvæmt nýjustu mælingum :) Ótrúlegt hvað er stutt síðan að hún var bara svona:

Það er sko ekki ofsögum sagt að hún brosi ofan í maga þetta yndi
Svo er annað stórt mál á heimilinu. Í dag eru fimmtán dagar í að hún Saga Guðrún verði 4ra ára. Ég trúi því bara ekki að það séu að verða komin fjögur ár frá því að hún fæddist. Það gerðist í gær en samt er svo ótrúlega margt búið að gerast síðan.



15. október 2008 kl.21:38
Hún Arney er nú meiri gormurinn!
Minns er enn að bíða eftir að albúmið ykkar lifni við (einni sem finnst gaman að skoða myndir