Týnd og tröllum gefin

Tjah, við erum ekki týnd og tröllum gefin en tölvuáhuginn er það svo sannarlega.  Á bænum hefur verið meira en nóg að gera.  Við erum komin heim frá útlöndum og flutt :D  Fluttum inn á mánudaginn og so far so good.  Stelpurnar eru í fínu formi og alltaf samar við sig - bestar af öllum og endalaust sætar :)

Ég veit að margir eru farnir að sakna mynda en ég er bara algjörlega áhugalaus um þetta batterí eins og er en hver veit nema ég taki við mér þegar mig vantar afsökun til þess að komast hjá því að læra?  Skólinn er byrjaður af fullum krafti og oh my, vona bara að börnin mín þekki mig um jólin :D

Ætla að koma stelpunum í háttinn hér í kotinu okkar og reyna svo að koma einhverju í verk :D

2 athugasemdir við “Týnd og tröllum gefin”

  1. Steinunn og Thelma Lind skrifaði:

    Hæhæ, ég segi aftur innilega til hamingju með nýju íbúðina. Vonandi á ykkur eftir að líða vel þar. Gangi þér vel í skólanum. Ég bíð spennt eftir nýjum myndum.

    kveðja úr Grafarvoginum

  2. Ólöf skrifaði:

    Hæ,hæ

    nýa íbúðinn ykkar er rosa flott
    vona að ykkur muni líða
    vel í henni.

    bless,bless
    p.s hlakka til þess að sjá myndir

Svara