Skjalasafn fyrir september, 2008

Bókaormar

22. september, 2008

Sumir myndu segja að dætur okkar ættu ekki langt að sækja það að vera bókaormar.  Þær sitja langtímunum inn í nýja svefnherberginu sínu og fletta bókum.  Sú eldri hefur verið mikill bókaormur nánast frá fæðingu en litla skottan er að uppgötva dásemdir bókanna þessa dagana.  Hún fer ofurvarlega við að fletta Emmu bókunum sem eru í miklu uppáhaldi og mikið óskaplega finnst henni þetta skemmtilegt sport.

Þegar Saga Guðrún var lítil skráðum við hana í bókaklúbb, nýlega sagði ég upp áskriftinni þar sem mér fannst nóg um magnið af bókum á heimilinu og vissi hreinlega ekki hvar ég ætti að koma þeim fyrir.  Þar sem að bókaaðdáunin er mjög algeng í fjölskyldunni og önnur börn vaxin upp úr barnabókunum hafa þær einnig fengið mikið gefins.  Svo kann mamma þeirra heldur ekki að segja nei og hefur t.d. ekki tímt að láta gefa bækur sem hafa tilfinningalegt gildi sem eru merktar með nafni og síma 9 ára Soffíu.  Safnast þegar saman kemur og í dag ákváðum við að raða í hilluna í nýja herberginu.  Ég er sveimér þá að hugsa um hvort við þurfum ekki hreinlega bókasafn, ég ætti kannski að setja tvöfaldan bílskúr á framtíðarplanið og hugsa um að innrétta helminginn sem bókastofu ??

Ég taldi gróflega hvorki meira né minna en 220 bækur í barnaherberginu.  Ég vil taka það fram að ég fór ekki inn í svefnherbergi eða önnur herbergi þar sem einnig leynast bækur til að telja nú örugglega allt saman.  Ó nei, mér blöskraði svo magnið af bókum að ég ákvað að láta þessi 220 stk duga í bili.

Týnd og tröllum gefin

4. september, 2008

Tjah, við erum ekki týnd og tröllum gefin en tölvuáhuginn er það svo sannarlega.  Á bænum hefur verið meira en nóg að gera.  Við erum komin heim frá útlöndum og flutt :D  Fluttum inn á mánudaginn og so far so good.  Stelpurnar eru í fínu formi og alltaf samar við sig - bestar af öllum og endalaust sætar :)

Ég veit að margir eru farnir að sakna mynda en ég er bara algjörlega áhugalaus um þetta batterí eins og er en hver veit nema ég taki við mér þegar mig vantar afsökun til þess að komast hjá því að læra?  Skólinn er byrjaður af fullum krafti og oh my, vona bara að börnin mín þekki mig um jólin :D

Ætla að koma stelpunum í háttinn hér í kotinu okkar og reyna svo að koma einhverju í verk :D