Skjalasafn fyrir ágúst, 2008

Í rigningu ég syng…

3. ágúst, 2008

Jæja, þá er farið að rigna í Bergen en við erum nú heldur betur sátt við það í þetta sinn! Eftir alveg gríðarlegan hita og steikjandi sól er kærkomið að fá smá vætu. Við heyrðum braka í garðinum þegar loksins fór að rigna.  Það má því segja að við höfum fengið allt litrófið fyrir utan snjó - sól og blíðu, sólarlausa blíðu, hávaðarok, þrumuveður og ábyggilega eitthvað sem ég er að gleyma.

Við erum búin að hafa það gríðarlega gott hérna úti.  Við fjárfestum í sundlaug í garðinn sem er búin að vera í mikilli notkun og systurnar sætu hafa notið sín í botn úti í garði að sulla og bulla.  Saga Guðrún fékk líka hlaupahjól og Ída María lánaði Arneyju Vöku þríhjól með svona stöng á svo þær hafa ferðast svolítið á þeim farartækjum hérna.  Miðbærinn í Os hérna sem Steinunn og Valdemar búa hefur fengið að njóta návistar okkar töluvert og sérstaklega bryggjan hér.  Það er mikil umferð af ýmisskonar bátum sem eru að taka bensín og svona og mikið líf hjá svona bátafólki í blíðu eins og hefur verið.  Saga Guðrún hefur verið gjörsamlega heilluð, hún hefur þvílíkan áhuga á bátunum og því sem þá snertir og gæti sjálfsagt verið niðri á bryggju meira og minna.  Þetta kom okkur eiginlega svolítið á óvart þessi áhugi en höfum mjög gaman af þessu að sjálfsögðu.  Við fórum síðan í vikunni á bátaleigu öll fjögur auk Valdemars og fórum á svona lítinn árabát út á lítið vatn hérna í nágrenninu og sló það í gegn.  Litla skrudda hafði samt ekki alveg þolinmæðina í svona ferðalag enda sama og ekkert action, sú stutta hékk bara á borðstokknum og vildi sulla og brölta um allan bátinn sem var ekki alveg það sem mamman (sem var klárlega skelkuðust um borð) hafði í huga.  Saga stakk upp á því að henda okkur bara í land og skutla Arneyju heim og koma svo aftur.  Við urðum ekki við þeirri ósk en einn morguninn síðar í vikunni fóru Saga og Valdemar tvö saman út á kanó eða indíánabát eins og hún kallar það og hún naut sín rosalega vel.  Var farin að klifra um í bátnum og setjast á borðstokkinn og alveg í essinu sínu.  Hún hefur líka mikinn áhuga á sjónum og öllum þeim faratækjum og dýrum sem þar er en þegar við heimsóttum Sædýrasafnið könnuðumst við meira við stelpuna okkar þar sem hún hafði mjög takmarkaða ánægju af því.  Arney Vaka aftur á móti var rosalega hrifin og spennt þar.  Áður en við komum hafði Steinunn keypt fiðrildaháf fyrir Sögu Guðrúnu og þegar við röltum niður að sjó einn daginn veiddum við meðal annars krabba í hann :)  Ótrúlega spennandi líf.  Við erum síðan búin að kíkja í Bergen sentrum líka og Saga sannaði það að hún er með fílsminni :) Alveg ótrúlegur þessi krakki!

Arney Vaka hefur þroskast alveg ferlega hérna úti.  Ég var farin að örvænta, hélt að barnið ætlaði aldrei að segja neitt að ráði þar sem hún hafði jú ósanngjarnan samanburð við Sögu sem var mjög fljót til að byrja að tala.  En núna talar Arney Vaka út í eitt á óskiljanlegu máli en það er að sjálfsögðu byrjunin.  Hún segir: mamma, pabbi, Saga, Ída, Steina, nammnamm og ís til dæmis :) Til gamans má geta að “meira nammnamm” þýddi Valdemar í fyrsta ferðalaginu hennar Sögu hingað til Noregs svo það er soldið fyndið að Arney sé að ná tökum á því hérna núna.  Hún segir líka brauð, borða, búið, ber, súpa, meira, takk, datt og ábyggilega meira sem er gleymt og grafið núna. 

Frænkurnar þrjár eru líka alveg yndislegar.  Saga er frábær barnapía ekki eldri en hún er og hefur endalaust ofan af fyrir litlu frænku sinni.  Ída María líka alveg dýrkar hana og finnst hún klárlega flottust.  Það er ekki alveg sömu söguna að segja með Arneyju þar sem hún hefur ekki alveg sama vald á hreyfingunum og Saga og fer svolítið oft yfir strikið hjá litlunni.  Sambúðin við hundana gengur líka rosalega vel og ekki að sjá að hinar 49 vikur ársins séu þær báðar hræddar við hunda.  Arney er ekkert smeyk og á það til að vera óþarflega harðhent en Saga er frekar smeyk við þau þegar þau bregða út af vananum, en Garpur er mjög hrifinn af Sögunni eins og flest öðru kvenfólki í fjölskyldunni :) 

Nú styttist í heimför en við komum heim í vikunni.  Það verður að sjálfsögðu erfitt að fara en Saga er farin að hlakka til að komast á leikskólann og saknar vina sinna mjög mikið.  Það eru líka að fara í hönd spennandi tímar heima á Íslandi því við erum að fara að flytja um næstu mánaðamót og því nóg að gera að pakka niður og henda og henda aðeins meira og helst henda pínulítið meira líka :)  Við vorum að kaupa okkur íbúð og erum rosalega spennt að fara að koma okkur fyrir!  Höfum reyndar pínu áhyggjur af því að íbúðin verði hálftóm svona til að byrja með enda 35 fermetrum og nokkrum herbergjum stærri en við erum í núna!  Síðan fer víst að byrja skólinn hjá mömmunni og þegar maður hugsar út í veturinn þá verð ég alveg ótrúlega fegin að eiga svona meðfærileg börn og góðan mann :) 

Úff og púff sko, ætlaði bara rétt að skrifa smá línu en það varð víst aðeins meira en það en so be it :) 

Kveðja úr rigningunni
Soffía.

Ps. Hversu fáránlegt er það að Saga Guðrún verður 4 ára tæpa þrjá mánuði?  Já eða að litla nýfædda barnið mitt sé 17 mánaða? Úffpúff sko