Myndapakki

Á bænum er sérlega andlaus móðir sem eyddi góðum tíma í að uppfæra myndaalbúmið í kvöld.  Ansi hreint margar myndir sem ég hlóð inn, í nýtt albúm í júní og tvö undir júlí.

Stelpurnar eru yndislegar sem aldrei fyrr og við erum duglegar að knúsa og kyssa litlu snúlluna okkar hana Ídu Maríu sem er aldeilis ánægð með þessar flottu frænkur sem hún á.  Systurnar eru líka í skýjunum með Steinu frænku og eru jafnvel hrifnari af henni svona í borði þó að það sé klárlega Ída í orði.  Stelpurnar fara í sumarfrí eftir viku og aðeins 10 dagar þar til við förum út.  Það verður nú viðbrigði fyrir Arneyju að verða pabbalaus í heila viku þegar “baba” er vinsælasta orðið þessa dagana.  Bíðum spennt eftir að mamma og Saga komist í daglega notkun en þess getur varla verið langt að bíða :)

Annars nenni ég ekki þessu blaðri - myndirnar tala sínu máli :D  Munið síðan að kvitt hefur aldrei drepið neinn :D

Svara