Sveitasæla
20. júlí, 2008Við mæðgurnar erum komnar til Noregs og erum svo sannarlega að hafa það gott. Ferðalagið gekk mjög vel þrátt fyrir að Arney Vaka hafi verið sjálfri sér lík og svo sannarlega látið hafa fyrir sér. Við höfðum ekki verið lengi í flugstöðinin þegar tveir útlendingar voru búnar að heillast upp úr skónum og mynda hana í bak og fyrir. Hún gerði sér svo lítið fyrir og nældi sér í klósettburstann á klósettinu í Leifsstöð mömmu sinnar til mikillar skelfingar :S Meira ógeðið !! Í flugvélinni svaf hún svo sem betur fer í svona klukkustund og var alveg í essinu sínu síðari hluta ferðar. Hún er snillingur í að velja sér stund og stað og hljóp bara á bleyjunni um flugvélina á meðan ég gerði örvæntingarfulla tilraun til þess að ráða við gripinn… Það þarf varla að minnast á það að Saga Guðrún var sjálfri sér lík og eins og draumur í dós. Þessi stelpa reddaði ferðalaginu algjörlega - spurning hvort við hefðum komist á áfangastað ef þær systur væru báðar eins og Arney Vaka í fyrirferð.
Við höfum svo haft það ósköp gott. Við vorum svo heppnar að frænka hennar Ídu Maríu, hún Jóhanna er búin að vera með okkur frá því strax á fimmtudag. Þær voru nú ekki lengi að verða vinkonur og þvílíkt gaman. Hún fór samt heim til sín áðan og það er bókað mál að við eigum eftir að sakna hennar helling. Saga Guðrún berjastelpa er búin að upplifa alveg heilmikið. Hún er búin að tína rifsber, bláber, hindber og sjá að auki kirsuber og plómur og síðan fann hún meira að segja eplatré í garðinum. Áðan reyndi hún svo að veiða maura og það gekk ekki betur en það að það skreið á hana maur og það líkaði minni konu sko ekki! Við sáum norskar kindur og svona sem eru nú frekar furðulegar. Í dag er svo alveg frekar fínt veður á okkar mælikvarða, þó að það sé nú ekki alveg glampandi sól þá fórum við á róló í morgun og enduðum bara á bol og pilsi og nutum sko góða veðursins. Spáin segir okkur svo að það sé von á góðu og við erum bara bjartsýnar.