Same old…
24. júní, 2008Þrátt fyrir að nú sé sumar hafa pestirnar ekki alveg kvatt okkur hér í Sólheimunum. Í þetta skiptið er það sú óvinsælasta en litlasta skottan er með upp og niður :( Hún ætlar líka að taka góðan tíma í þetta því þetta hófst á föstudagskvöldið og tók svo góða pásu þar til á mánudagskvöld og hélt svo áfram í dag. Vonandi er þetta þó búið núna … eru komnir 8 tímar án ælu og slatti farinn ofan í hana síðan þá. Hún ákvað í gær að feta í fótspor systur sinnar með skrautleg sundlaugarafrek og í stað þess að kúka í laugina eins og Saga var vön að gera ældi hún. Það vildi svo vel til að þetta var nú bara mest vatn sem hún hafði gleypt í köfunarleiðangri.
Arney Vaka er algjör sundgarpur. Sund er klárlega það skemmtilegasta sem hún veit og eru Grafarvogslaugin og nýja sundlaugin í Mosó í miklu uppáhaldi. Hún fór ábyggilega svona 150 ferðir í rennibrautinni í vaðlauginni í Mosó og fór líka í stóru rennibrautirnar með miklum ánægjuhljóðum og dembir sér á milli lauga sama hvað. Það er ekki margt sem hún hræðist þessi stelpa þegar það kemur að sundinu og hún hefði alveg verið til í stóru rennibrautina í Laugardalnum í gær ef mér hefði ekki fundist of langt upp fyrir hana
Saga Guðrún vill stanslaust vera úti. Úti að hjóla, úti að hoppa eða úti að leika við Kjartan sem er nýi vinur hennar. Hann býr hérna í húsinu hjá okkur og þau eru rosalega miklir vinir. Göngutúrar eru líka í miklu uppáhaldi - hvort sem það er með litlu systur í bandi eða ekki. Henni finnst það gjörsamlega óviðjafnanlegt að fara með Arneyju Vöku í göngutúr í bandi, hlær og hlær. Eiginlega finnst henni systir sín og uppátækin hennar bara ótrúlega fyndin og það er frekar skemmtilegt að horfa upp á þær. Saga bíður spennt eftir morgundeginum - eða næstu nótt því þá koma langþráðu frænkur hennar til landins. Sögulúsin var frekar miður sín þegar við pökkuðum niður rúminu hennar til að gera pláss fyrir frænkurnar … hafði miklar áhyggjur af því hvar hún ætti að sofa … barnið hefur ekki sofið í sínu eigin rúmi í einhverja mánuði. Síðan kom í ljós að hún stefnir á að sofa inni í herbergi með þeim - spurning hversu lengi það endist hjá henni
Jæja, litli ælupésinn er vaknaður og ég ætla að stinga mér upp í til hennar og halda í draumalandið.