Leikskólasnillingur
31. maí, 2008Arney Vaka snillingur er byrjuð á leikskólanum og gengur alveg stórvel hjá henni
Hún varð síðan reyndar veik á föstudeginum en það er nú bara í takt við hana og hennar sögu
Ég er svo ótrúlega stolt af henni, henni er svo eiginlega alveg sama þó að mamma hennar sé að þvælast þarna og þannig og hefur bara verið aðeins að tuða en varla mikið meira heldur en það
Hún meira að segja sofnaði í hvíldinni inni á miðvikudeginum sem mér finnst magnað
Á fimmtudeginum svaf hún út í vagninum og vaknaði alveg syngjandi sæl með lífið og tilveruna! Ég held hún hafi verið alveg akkúrat tilbúin í þennan pakka og sé bara að sýna okkur það
Saga Guðrún hefur pínu áhyggjur af þessu og galar á mig út um gluggann hvar hún sé, hver er að passa hana og svona ýmislegt. Ég er ekki frá því að henni finnist það nú bara ósköp ljúft að geta skotist og fengið sér mömmuknús af og til yfir daginn og hitta systur sína líka! Eins og mig grunaði er Saga miklu uppteknari af þessu heldur en Arney sem er að drekka allt umhverfið í sig.
Í síðustu viku fórum við í sveitaferð með leikskólanum og það var stórskemmtilegt. Saga Guðrún sá lamb fæðast sem auðvitað var magnað en það tók svolítið á litla hjartað hennar þegar lambið reyndist vera dáið. Hún var rosalega miður sín og talaði mikið um það. Arney Vaka var hrifnust af einum hesti en t.d. frekar hrædd við Þorgerði hænu. Nokkrir hvolpar komu og stálu samlokunni hennar og hún var sko ekki hrædd við þá en Saga hafði ekki húmor fyrir samlokustuldinum. Ég held að rútuferðin hafi staðið upp úr hjá Sögu enda ekki á hverjum degi sem farið er í rútu.
Um helgina fórum við svo í sveitina með Erlu, Elvari og Daníel. Við fórum á laugardeginum og fórum inn í Þjórsárdal í piknik og Saga var alveg í essinu sínu. Krakkarnir léku sér síðan úti á palli og voru flottust. Við borðuðum pantaða sveitapizzu og Saga drakk bjór (sjá gullkorn). Á sunnudeginum fórum við svo í alvöru sveitina - kíktum í fjósið, fjárhúsið, kirkjuna og kirkjugarðinn auk þess að fá að sjá kettlinga. Saga Guðrún er orðin svo stór og hefur þroskast svo mikið - hún var eins og hörku sveitakona og það bar varla nokkuð á hræðslu og óöryggi í henni eins og hefur nú svolítið einkennt hana hingað til
Hún fóðraði kálfana með styrkri hendi og var rosalega flott í fjárhúsinu. Arney Vaka virðist síðan vera fædd með svona sveitakonugen og var bara flott í fjárhúsinu
Í fjárhúsinu að þessu sinni sáum við tvö lömb fæðast og var það eiginlega plástur á sárin hjá Sögu að sjá þau fæðast og taka fyrstu skrefin og vera hjá mömmu sinni eftir dána lambið í hinni sveitaferðinni. Við enduðum svo ferðalagið á því að fara í sund á Selfossi og borða kvöldmat í bílnum sem sló í gegn hjá Sögu. Þær eru algjörir sundgarpar systurnar og þá kannski sérstaklega litli brjálæðingurinn sem hendir sér á hvern sem er og á bólakaf og er bara pínu hættuleg
Við fórum svo í Nóatún á Selfossi þar sem við keyptum bleikar gúmmítúttur handa Sögu sem slógu algjörlega í gegn.
Við fundum að sjálfsögðu fyrir jarðskjálftana þrátt fyrir að stelpurnar hafi ekki fattað neitt. Saga hefur aftur á móti drukkið allt í sig um þetta mál og er ótrúlega mikið að brjóta heilann um þetta. Henni fannst t.d. stórmerkilegt að skoða myndir af eyðileggingunni í Nóatúni enda heimsóknin þangað í fersku minni! Hún hefur líka töluverðar áhyggjur af sundlauginni og hvað gæti hafa skemmst í henni… Hún skilur þetta samt mjöööög takmarkað þannig en er mikið að spá og spæla
Það eru komnar fullt af nýjum myndum í tveimur albúmum og ég er líka búin að bæta aðeins í gullkornin.