Skjalasafn fyrir apríl, 2008

Frábær helgi

20. apríl, 2008

Við höfum nú aldeilis átt æðislega helgi í þetta skiptið.  Nóg að gera enda leiðist okkur nú afar sjaldan því það er mikið fjör með tvær brjálaðar skottur :)

arneysandur

Í gær fórum við í göngu/hjóla/vagnaferð en öll dekk voru að verða loftlaus.  Saga hjólaði eins og mesti garpur þegar dekkin voru orðin full af lofti og Arney fékk að prófa sætið á mömmuhjóli og líkaði það vel. Arney bragðaði á sandinum (og mamman gladdist yfir að hafa hreinsað kassann af sígarettu stubbum og öðrum aðskotahlutum um síðustu helgi) og fannst hann ógeðslegur.  Við Saga fórum svo í leiðangur til að kaupa vindgalla og versla í matinn og hittum Skoppu og Skrítlu á opnunarhátíð Holtagarðanna.  Saga var að sjálfsögðu sæl að hitta þær og skemmti sér mjög vel :)  Við elduðum síðan góðan mat um kvöldið og Maja og Iðunn komu í heimsókn og fóru með okkur í gönguferð í ísbúðina og Saga Guðrún sýndi þeim hjólalistirnar.

vinkonurarneyleikhússkrítlur

Í dag byrjuðum við svo daginn á því að fara í leikhúsið að sjá Skoppu og Skrítlu.  Saga hafði beðið þessa með mikilli eftirvæntingu og Arney Vaka var að fara í fyrsta sinn.  Systurnar urðu sko ekki fyrir vonbrigðum og skemmtu sér ótrúlega vel.  Við Saga höfðum svo planað skemmtilegan dag með Soffíu og Sigríði Björgu og pabbi kom og sótti litluna sína til að stelpudagurinn gæti gengið betur.  Leiðin lá úr leikhúsinu á kaffihús þar sem bleikur snúður hvarf ofan í Söguna og kíktu svo á mávana á tjörninni.  Það er sko hreinlega ekkert skemmtilegt að fara á tjörnina og gefa máfunum, eymingja endurnar þora ekki að borða brauðið!

kaffihusavinkonurtjarnarferd

Eftir það lá leiðin á skauta.  Það hefur staðið til lengi og jafnvel þó að Sögu hafi ekki litist á blikuna í vikunni var þetta stórskemmtilegt.  Það kom mér á óvart hvað Saga var dugleg á skautunum, hún var með svona grind og hélt sér í hana til að byrja með en svo var hún bara ágætlega brött miðað við aldur og fyrri störf á renna sér ein :)  Við eigum sko án efa eftir að endurtaka þetta á næstunni. Eftir skautana kíktum við í Húsdýragarðinn og fórum aftur á kaffihús til að hlaða batteríin :)

Skautasagaklessuskautar

Í kvöld fékk Arney Vaka í fyrsta skipti að sukka aðeins í mataræðinu.  Samt ekki svo en ég bjó til avocado súkkulaðimús með bönunum, kókosolíu og kakói ásamt smá agave sírópí og litlan fékk smakk.  Þetta fannst henni sko heldur betur gott og fékk að borða þetta sjálf sem var sennilega hálft gamanið.  Það þarf varla að taka fram að Saga sætindagrís var ekki hrifin af svona hollustudóti og bara frekar súr þar sem kvöldmaturinn var kláraður með loforði um súkkulaðimús.

Jæja, ég ætla þá að hætta að þykjast vera að læra og leyfa pabbanum að fara að vinna.  Það er sko nóg að gera á stóru heimili og því unnið og lært á undarlegum tímum.  Ég held ég skríði bara í bælið með litlu Vökunni minni sem er eiturhress að æfa sig í að ganga.  Það gengur langbest hjá henni í rólegheitunum á kvöldin þegar Saga sefur en þá notar hún labbið lang mest.  Kannski hún óttist að vera hlaupin niður sem gæti hreinlega alveg gerst.  Annars er “hæ” mikið uppáhaldsorð og mikið notað og Óli heyrði hana í kvöld segja “hæ Saga” þar sem hún stóð við rúmið og reyndi að ná sambandi við grjótsofandi uppgefna systur sína :D

Brjáluð Bína

18. apríl, 2008

Já litli göngugarpurinn okkar er sko ekkert venjuleg!  Hún er orðin rosalega dugleg að ganga hérna inni en hefur líka með þessari nýju færni orðið enn kræfari í klifrinu.  Áðan greip ég hana þegar hún datt niður úr glugganum í Sögu herbergi og í gær gerði hún nokkuð góða tilraun til þess að klifra upp rennibrautina í garðinum. Andlitið ber afrekunum glöggt merki en daman er ansi marin eftir allskonar  föll…

Já nú er víst kominn tími til þess að endurraða í barnaherberginu og hækka viðbúnaðarstigið, ég held að við munum neyðast tilað brynja okkur fyrir fleiri óhöppum enda tók Saga fáa sénsa í lífinu :)

Labba…

13. apríl, 2008

Það má segja að Arney Vaka hafi byrjað að labba um helgina. Hún er búin að taka sér góðan tíma en hún tók fyrstu skrefin um 10 mánaða. Hér er lítið vídeó af duglegu stelpunni

Nýtt útlit

11. apríl, 2008

Jæja, þá e rnýja síðan komin upp en þessi er sko miklu þægilegri í umsjón fyrir mömmuna sem er svona sæmilega tæknihæft!

Hér hefur margt gerst og breyst síðan við skrifuðum síðast.  Arney Vaka varð alveg rosalega veik nóttina eftir afmælið sitt en hristi það fljótt af sér.  Svo er Saga Guðrún búin að vera veik núna í fjóra daga og er bara með hita en eiturhress og hálfgert málæði með því.

Nú er ég byrjuð í verknámi og Óli er heima með skottuna.  Það gengur ótrúlega vel þó að vissulega sé þetta kúnst að pússla saman en Óli er bara  50% orlofi.  Hann á því eftir að vinna þegar ég kem heim og svo á eftir að læra en þetta er allt bara tímabundið.  Svo skemmir ekki fyrir að það gengur vel hjá þeim og mér finnst virkilega gaman á vettvangi :)  Svo allir eru sáttir og sælir nema Saga á pínu bágt með sig ef að það sést of lítið af pabbanum.  Svo bíðum við núna eftir að vita hvort að hún komist inn á leikskólann í haust og vonum það besta því annars erum við í vondum málum tralalalala.  Arney er farin að sofa í vagninum úti á daginn en það hefur lítið farið fyrir því hjá okkur í vetur, vegna stöðugra veikinda, kulda.

Arney Vaka hefur þroskast mikið, enda orðin 1 árs.  Allt í einu er hún farin að segja nokkur orð, hún segir “blessbless” “hæ” “sjáðu” og fullt af nýjum hljóðum.  Hún er ekki byrjuð að labba en það eykst með hverri klukkustundunni núna hvað hún tekur mörg skref, á milli hluta eða á móti manneskjum.  Hún klifrar upp i stóla, rúm og sófa en er ekki jafn lunkin að koma sér niður aftur.  Saga aftur á móti hjálpar henni svo þetta er lítið mál.  Mig grunar að hún ætli ekkert að byrja að labba heldur skella sér strax í að hlaupa enda er það rosalega mikið hún.   Hún er mikill göslari og fjörkálfur og þessa dagana er hún sífellt að prófa sig áfram.  Að kasta sér í gólfið og grenja er sérlega vinsælt :)
Núna er hún líka að fá að smakka ýmislegt sem við höfum verið að halda frá henni vegna ofnæmishættu.  Hún er mjög hrifin af osti en finnst jógúrt ekki spennandi.  Það langbesta sem hún hefur fengið er samt soðin ýsa með kartöflum og smjöri en það var bara gargað.  Henni fannst laxinn reyndar mjög góður líka :D
Nú er svo komið að henni finnst næstum því allt gott sem hún fær að borða en borðar samt frekar lítið.
Hún fór í 1 árs skoðun í vikunni og var 10.3 kg og 79 cm, bara mjög flott stúlka eins og við var að búast og hikstaði ekki einu sinni þegar hún fékk sprautuna.

Saga Guðrún er sama yndið eins og alltaf og er sérlega ánægð og hamingjusöm þessa dagana.  Hún er alltaf svo glöð og skælbrosandi.  Hún sá mjaltir í Húsdýragarðinum um síðustu helgi og var gjörsamlega heilluð!  Í fyrsta skipti sem hún hefur sýnt áhuga þar held ég bara!  Henni finnst ótrúlega merkilegt að ég fari á leikskóla á hverjum morgni og “minn leikskóli” og “þinn leikskóli” eru vinsælt umræðuefni.  Hún er orðin rosalega dugleg að teikna og klippa og er búin að læra að skrifa nafnið sitt :)  Kann fullt af stöfum og hefur mjög gaman af þeim pælingum.  Ég fór líka í foreldraviðtal í vikunni og eins og við var að búast var allt í góðu :) Hún er dugleg að leika sér, er stillt og prúð og góð stúlka.  Þrátt fyrir að ég vissulega viti þetta vel er aldrei leiðinlegt að heyra þetta :)  Hún er eins og fíllinn, er með svo ótrúlegt minni :)  Síðan er hún byrjuð að æfa sig að hjóla á tvíhjólinu sínu og það gengur nú alveg ágætlega!

Í febrúar fengum við okkur barnapíu sem kemur til okkar einu sinni í viku.  Saga er ótrúlega hrifin og grætur þegar hún fer, vill bjóða henni að borða með okkur og bíður spennt eftir henni þegar hún á að koma.  Arney er ekki alveg jafn hrifin en við erum að vinna í þessu með hægfara nálgun en afmæli, veikindi og ýmislegt hefur sett strik í reikninginn :)  Síðan skemmir ekki fyrir að vinkona okkar barnapíu passar hana Sigríði Björgu okkar á sama tíma svo þær eru stundum saman.

Nú viljum við fara að fá almennilegt vor og frí frá veikindum.  Við teljum okkur vera búin með okkar skammt í bili og getum ekki beðið eftir að flytja aftur í Húsdýragarðinn og gera sumarlega hluti.  Síðan erum við mikið mikið spennt fyrir sumarfríinu okkar en í fyrsta lagi koma Steinunn og Ída María til Íslands og í öðru lagi ætlum við mæðgurnar að eyða mörgum vikum í Noregi með þeim.  Pabbinn kemur líka - en bara ekki jafn lengi þar sem hann verður nýfarinn að vinna aftur þegar við förum út.  Við erum búnar að panta sólina og viljum meina að hún skuldi okkur nokkra sólardaga í Bergen síðan síðasta sumar!

Jæja, meira hvað þessi kona getur blaðrað … alveg biluð!

Ég er annars að vinna í að bæta og breyta öllu hérna þannig að það er komið nýtt á flestar undirsíðurnar.  Gullkornasíðan er í vinnslu en mamman er bara eitthvað stífluð … man svo fátt akkúrat núna og finnur ekkert niðurskrifað!