Skjalasafn fyrir mars, 2008

Eins árs í dag

22. mars, 2008

Í dag er eitt ár síðan að þessi mynd var tekin, örfáum mínútum eftir að Arney Vaka kom í þennan heim

Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli hún Arney
hún á afmæli í dag

Til hamingju með afmælið elsku litla snúllan okkar!

Það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt!! Litla skottið okkar er orðið 1 árs, hvorki meira né minna. Þessi yndislega stelpa hefur sko verið dugleg að halda okkur við efnið og hefur svo sannarlega glatt okkur mikið! Ég held í alvöru að ég hafi aldrei kynnst jafn geðgóðu barni, hún er alltaf glöð og kát!!

Það er sko ekkert smá sem maður hefur afrekað á einu ári. Hún tók hlutverk sitt alvarlega strax í upphafi og hefur verið dugleg að stækka og dafna. Hún hefur verið mikið lasin þetta fyrst ár sitt en þó ekki verið að láta það hafa of mikil áhrif á sig heldur bara brosað og hlegið - sama hvort að veikindin séu hlaupabóla eða lungnabólga…

Hvernig getur tíminn liðið svona rosalega hratt? Afmælisbarnið fæddist í gær en er núna strax búin að halda upp á fyrsta afmælið sitt með veglegri veislu. Mömmumús með meiru tók veislunni vel og var hrifin af pökkunum og gestunum, svo lengi sem foreldrarnir voru í návígi við hana. Afmælisbarnið ætlar að eiga góðan dag með mömmu, pabba og stóru systur sem eru svo heppin að eiga þessa frábæru stelpu!

Klárlega yndislegust! Elsku litla paddz, þú er best!
Endum svo þennan væmna lofsöng sem er nú ekki daglegt brauð á þessari síðu á dauðþreyttri afmælisstelpu!

Nú ætla ég að skríða upp í rúm og knúsa og kyssa afmælisstelpuna og stóru systur sem er búin að bíða spennt eftir þessum merkisdegi. Litla mús verður svo vakin með afmælissöng og pökkum frá okkur í fyrramálið - svo gaman!!

Knús og kossar á línuna í hamingju dagsins

Bóla verður 1 árs

12. mars, 2008

Arney hefur fengið nýtt viðurnefni og er núna oftast kölluð Bóla. Nei, það er svosem ekki satt en aumingjans stelpan er búin að vera með risavaxna bólu á auganu í marga daga sem er búin að vekja mikla athygli. Mamman háði mikla baráttu við sjálfa sig að láta ferlíkið vera en það gerði hún og stúlkan sá sjálf um að gera það á sunnudaginn og hefur hún minnkað ört síðan. Annars verður Bóla litla 1 árs eftir TÍU DAGA og er það alveg með ólíkindum hvert árið hefur farið!

Saga er alltaf jafn hress og kát og svosem ekkert að frétta. Nú fer að líða að því að það verði vaktaskipti í fjölskyldunni og pabbi taki við litlu stelpunni á daginn. Það verður spennandi að sjá hvernig það gengur, þau eiga pottþétt eftir að hafa gott af því bæði tvö. Mig hlakkar líka soldið til að komast út en samt sem áður væri fínt að koma heim og vera búin í vinnunni og þurfa ekki að fara að læra.

Við erum að bíða eftir að pabbinn á bænum setji nýju síðuna þeirra upp og að mamman geti farið að fikta í henni en það verður fljótlega vona ég. Svona áður en ég hætti langar okkur að bjóða litlu fallegu vinkonu okkar sem fæddist í síðustu viku velkomna í heiminn en Steinunn vinkona min (en ekki Steinunn hans Halla) er mamma hennar :D Sögu fannst að sjálfsögðu tilvalið að fyrst að snúllan eigi ekkert nafn ennþá að gefa henni til dæmis Ída eða Arney Vaka :D