Oooog hún er veik!!
20. febrúar, 2008Enn og aftur hafa veikindin bankað upp á hjá okkur! Stelpurnar eru báðar búnar að vera með slæman hósta í lengri tíma. Sagan er að hressast og líður mun betur en hún náði þó aldrie að verða veik. Vakan litla hélt aftur á móti áfram að versna þar til að okkur stóð ekki á sama og kom í ljós að snúllan er með bronkítis. Ég veit hrenlega ekki, en mér finnst þetta vera orðinn dágóður veikindaferill hjá ekki eldra barni. Hún er búin að fá 2x eyrnabólgu, 1x bara vökva, barkabólgu, hlaupabólu, lungnabólgu og núna bronkítis! Vonandi er hún bara að klára pakkann - það líst mér og verði stálslegin þegar hún eldist!
Þetta var samt ekki orðið mjög alvarlegt og hún vildi að við reyndum að vera dugleg með astmapústin hennar og sá ekki ástæðu til að gefa henni sýklalyf enn sem komið er. Við vorum ánægðar með það og ætlum að vera duglegar að knúsast og kyssast og pústa og vona að það dugi til. Hún er nefnilega hörkudugleg að kyssa núna og vill voðalega mikið kúra með mömmu sinni. Þrátt fyrir veikindin er hún á fullri ferð að verða fullorðin, búin að standa upp á miðju gólfi eins og ekkert sé (með hita auðvitað - til að gera afrekið enn stærra) og í gærkvöldi klifraði hún upp á stofuborð takk fyrir! Ekkert mál fyrir Arneyju stál