Gleðilegt ár :D
Þá er yndislegt ár að baki og nýtt og spennandi ár tekið við. Saga er með það á hreinu - þetta er árið sem Arney verður 1 árs. Stór áfangi enda er enginn maður með mönnum án þess að eiga afmæli.
Nýja árið byrjaði heldur ekki illa því þegar að árið var nýgengið í garð kom Ída María Valdemarsdóttir í heiminn og heldur betur finnst okkur erfitt að vera á Íslandi í dag. Nú eru stelpurnar orðnar stóru frænkur og það er mikið ábyrgðarhlutverk. Eitthvað gleymir hún fljótt því hún er búin að ganga um með þykjustunni Ídu litlu í lófunum í allan dag og gestir hafa þurft að kyssa hana bless og dást að henni án þess að neinu tauti sé við hana komið. Undanfarna daga hefur líka góðvinkona hennar, Gunna Adólfsdóttir tekið virkan þátt í lífi okkar í Sólheimunum og er með eindæmum dugleg og skemmtileg stúlka. Besta er að henni fylgja engar kvaðir og hún gerir yfirleitt alltaf akkúrat það sem maður ætlast til af henni. Við þurfum lítið að gera nema kyssa hana góða nótt og kaupa handa henni nammi. Ömmu hennar fannst þetta frekar fyndin vinkona og minnti mömmuna á það að hún hefði ósjaldan þurft að binda hundinn hennar fyrir utan leikskólann. Þeir sem ekki átta sig á alvöru málsins, þá er það ímyndunarafl mæðgnanna sem á heiðurinn að Gunnu, Ídu litlu og hundinum. Ída María er samt í alvöru fædd í Noregi en þessi örsmáa er bara til hjá okkur.
Við höfum haft það rosalega gott um jólin í faðmi fjölskyldunnar og mættu þau nú alveg vera aðeins lengri. Mikið borðað, sofið og slakað á. Á morgun er alvara lífsins hjá pabbanum og Sögunni en mamman á jólafrí fram í miðjan mánuðinn. Alvara lífsins er nú ekki mikil hjá Arneyju Vöku sem hefur notað jólafríið til að verða duglegri að borða og er nú farin að ganga með á fullu, sama hvort það séu húsgögn eða fólk sem hún styður sig við. Hún er nú komin með 6 tennur og er alveg ótrúlega fyndin krakki.
Að sjálfsögðu fengu systurnar fullt af pökkum á aðfangadag en það var með eindæmum hvað þær voru samt góðar. Saga var auðvitað dálítið æst en hver láir henni það? Arney var pollróleg, tætti nokkrar slaufur og aðstoðaði systur sína við nokkra pakka. Þegar að gestirnir voru farnir og við vorum fjögur í kotinu þá rauk hún um alla íbúð til að fá útrás fyrir hreyfihvötina sem hafði vrið dálítið hömluð á meðan pakkaopnuninni stóð.
Á gamlárskvöld vorum við samkvæmt venju á Álftanesinu. Það var ósköp rólegt og notalegt. Saga smakkaði hreindýr og líkaði vel og borðaði fullt fullt af kjöti sem telst sko til tíðinda. Þær voru báðar mjög rólegar yfir þessu nema það voru mistök að hleypa Sögu út. Hún var mjög hrædd þegar þau komu aftur inn. Við tókum svo Ólöfu með okkur heim svo það voru sælar systur hér í dag enda Ólöf frænka með eindæmum vinsæl af þeim systrum.
Jæja látum gott heita í bili:)
Nýárskveðjur
Soffía.
2. janúar 2008 kl.14:40
Gleðilegt nýtt ár kæra fjölskylda! Ég er sjálf í skýjunum yfir fréttunum frá Bergen í Noregi og þurfti að sjálfsögðu að segja öllum frá sem ég hitti, ég er svo ánægð fyrir þeirra hönd!
Hlökkum til að sjá ykkur á nýja árinu
2. janúar 2008 kl.19:38
Langaði bara að benda á: http://www.mbl.is/mm/frettir/forsida/2008/01/02/fyrsta_islenska_barn_arsins_faeddist_i_bergen
Gleðilegt ár!