Systurnar sætu eru að komast í jólaskap
A.m.k. Saga sem staðhæfir að hún sé ekkert hrædd við jólasveininn lengur … en harðneitar samt sem áður að fá í skóinn. Dagatalið hennar er að slá í gegn og eiginlega bara allt þetta jólastúss.
Hún er mikið að spá og spæla, t.d. í jólagjöfunum. Ég útskýrði fyrir henni að við gæfum gjafir til fólks sem okkur þætti vænt um sem var ekkert ægilega sniðugt þar sem þessi elska er með svo rosalega stórt hjarta að hún vill gefa bara næstum því öllum. Sem er svosem alveg rétt hjá henni, okkur tækist seint að gefa öllum sem okkur þykir vænt um
Hún er líka hörð á að vilja gefa pabba sínum kubba því þegar við ræddum um hvað við gætum gefið honum þá spurði ég hvað honum fyndist gaman að gera? Jú auðvitað að kubba með stelpunum sínum!
Litla stýrið okkar er ekkert að kippa sér neitt svakalega upp við þetta. Henni finnst samt nýji jólasveinadiskurinn ægilega skemmtilegur og hristir sig alla í tilraun til að dansa. Reyndar finnst henni bara öll tónlist, jafnvel þó að það sé mamma hennar að syngja (ef það getur kallast tónlist), mjög skemmtileg
Hún er farin að standa upp allsstaðar og skríður á ljóshraða. Í alvöru talað, hélt ég að hún hefði bara gufað upp í dag því hún var svo fljót að hverfa út úr stofunni. Nú fer hún bara og eltir þá sem reyna að stinga hana eftir og þeim systru finnst miklu skemmtilegra að leika sér saman núna en bara fyrir tveimur vikum síðan.
Nú er mamman að leggja lokahönd á skólann og þá verður jólastússið klárað. Á föstudaginn er jólaball í leikskólanum og mikil spenna fyrir því. Það er ótrúlegur léttir að vera búin og vonandi hægt að slaka vel á núna fyrir næstu törn. Við erum farin að huga að því sem tekur við þegar fæðingarorlofinu mínu lýkur en þá verða Óli & Arney saman heima í 6 vikur meðan ég fer í vettvangsnám. Svo er spurning hvenær ég fer aftur að vinna en það gæti jafnvel orðið ekki fyrr en í júní. Arney Vaka verður bara orðin hálf fullorðin þegar það verður hægt að klippa almennilega á naflastrengin á milli okkar! Æi það er nú allt í lagi að maður sé háður mömmu sinni þegar maður er svona lítill.