Skjalasafn fyrir október, 2007

3ja ára

30. október, 2007

Hún átti afmæli í gær
Hún átti afmæli í gær
Hún átti afmæli hún Saga
hún átti afmæli í gær

Já ótrúlegt en satt, stóra stúlkan okkar varð þriggja ára gömul í gær. Tíminn hefur flogið áfram og mér finnst örstutt síðan að hún fæddist. Hún er algjör gleðigjafi þessi stelpa og klárlega það besta sem hægt er að hugsa sér! Besta stóra systir sem um getur og bara æðislegust! Það er sko ekki leiðinlegt að vera ótrúlega sæt, góð, klár, skemmtileg, þrjósk og bara allt sem þessi yndislega dóttir mín er.

Við héldum veglega veislu hér á sunnudaginn og ótrúlegt en satt þá var bara enginn fjölskyldumeðlimur veikur. Við fengum fullt af góðum gestum sem fögnuðu þessum tímamótum með okkur og naut Saga sín í botn eins og til er ætlast! Það var Kitty þema í veislunni auk Bangsímon ísköku sem sló í gegn. Stúlkan fékk að sjálfsögðu fullt af fallegjum gjöfum og sofnaði í fyrsta skipti í miðri bók þegar komið var í rúmið.
Hún átti nokkur góð moment - eins og á laugardeginum þegar amma hennar gaf henni Söngvaborg4 á dvd. Hún gerði sitt til að afþakka þessa gjöf, stakk meira að segja upp á því að afi hennar og amma myndu bara gefa einhverjum öðrum hana. Það er skemmst frá því að segja að hún hefur aldrei komist lengra í myndinni en fyrstu þrjú lögin því þá kemur ógnvekjandi sjóræningalag og þá hefur verið slökkt. Hún fékk líka prinsessudót sem hún sérstaklega pantaði en hún vildi alls ekki kórónuna - þar sem hún átti kórónu fyrir. Hún stakk upp á því að gefa bara Sigríði Björgu hana. Síðan kom á daginn að allt sem hún var ekki æsispennt yfir, það vildi hún bara gefa Sigríði Björgu! Tilbúin til að deila öllu með bestu vinkonunni! Hún fékk líka hina langþráðu ryksugu og er búið að ryksuga íbúðina nokkuð oft síðan á sunnudag!

Hún átti svo yndislegan afmælisdag fram eftir degi, fór í leikhús með leikskólanum og skemmti sér vel, fékk afmæliskórónu og tilheyrandi og fór að renna í útivistinni. Þegar ég sótti hana mátti hún velja um að gera hvað sem hana langaði til. Elsku litlu lúsinni minni langaði mest af öllu að fara heim að leggja sig með mömmu sinni. Ég gat að sjálfsögðu ekki annað en orðið við þessari bók og eftir tveggja tíma blund vaknaði hún bara sárlasin og er enn. Það hafa nú ekki komið nema þrír eða fjórir veikindalausir dagar síðan að hlaupabólan bankaði upp á þessu heimili í byrjun október. En þær systur hafa gefið mér loforð um að vera orðnar frískar og sprækar í næstu viku en þá ætlum við mæðgurnar að leggja land undir fót og skreppa til Bergenbúanna okkar í eina viku. Hvernig mér datt sú geðveiki í hug man ég ekki alveg en það er alveg rosalega mikið að gera í skólanum. En ég get nú alveg eins lært í Bergen þar sem mig grunar að þær systur fái smá athygli þar úti :) Svo fer að styttast í jólin og er mikil tilhlökkun og spenna í mér … en ég ætla að sitja aðeins lengur á mér að byrja að ræða við Söguna um jólin. Fyrst Bergen - svo má fara að ræða jólin :)
Svo má ekki gleyma að litla skotta fékk fyrstu tönnina þann 26.október og aðra á sjálfan afmælisdaginn :)

ooooog meiri veikindi…

19. október, 2007

já við verðum nú seint þekkt í þessari fjölskyldu fyrir að gera hlutina ekki almennilega. Í morgun fann mamman, sem sjálf er orðin þokkalega lasin fyrstu hlaupabóluna á Arneyju Vöku svo það stefnir í dágóða törn hjá okkur.

Nú er stefnan bara sett á það að láta okkur batna hratt og örugglega svo við getum fagnað 3ja ára afmæli um næstu helgi…því jú - ótrúlegt en satt þá er elsku besta sætasta og yndislegasta Sagan okkar verður 3ja ára eftir 10 daga. Vá mér finnst svo ótrúlega stutt síðan ég sat og beið eftir henni … og núna á ég bara tvær prinsessur … öss hvað tíminn líður hratt.

Veikindi á veikindi ofan

15. október, 2007

Hér er bólan komin og farin og hefur ekki gert vart við sig á Arneyju Vöku. Þegar bólan var hætt að hrjá Sögu sérlega mikið - þá fékk hún hálsbólgu með hita. Sú veiki heimsótti líka litla stýrið okkar og er hún sárlasin með háan hita, en samt alltaf stutt í brosið og það er nú meira hvað er hægt að vera sætur og yndislegur þó mann líði greinilega alveg ferlega illa. Hún liggur nú steinsofandi í fanginu á mér á meðan hin multitasking ég skrifa þessa færslu. Saga Guðrún er ekki búin að fara á leikskólann síðan á föstudaginn fyrir viku og je minn eini hvað við þurfum þessa rútínu. Það er enginn í jafnvægi … allir þreyttir og pirraðir að vera undir sama þakinu í svona langan tíma og geta ekkert gert. Hún ætlar að fara á morgun en jafnvel vera bara hálfan daginn. Í gærkvöldi var ástandið svo slæmt að Óli ákvað að vera heima til að deila með mér ábyrgðinni á lasarusunum. Í tilefni þess voru þær ótrúlega duglegar að sofa í dag!

Arney Vaka settist upp sjálf á laugardaginn - ótrúlega dugleg. Og ótrúlega stolt. Hún var líka mikið farin að spá í að standa upp og skríða en vantar aðeins upp. Um leið og þunginn kemur á hendurnar þá skellur hún á andlitið og það finnst minni konu ekki gaman. Hún er líka á fullu að búa til allskonar hljóð - ætli hún verði ekki bara á svipuðu róli með fyrstu orðin sín og Saga en eins og margir vita var hún rosalega fljót og altalandi frekar snemma. Enda snillingur með meiru og ekki ástæða til annars en að Arney Vaka verði það líka.

Núna eru bara 14 dagar í afmæli og 13 dagar í afmælisveisluna langþráðu! Allt sem stóð í vegi fyrir þessum áfanga er liðið hjá svo Saga Guðrún er í alvörunni næst og vá hvað hún hlakkar til. Hún er ekki enn búin að gera upp hug sinn varðandi þema - en hana langar í Kitty köku og ísköku… Til stendur að gera okkur ferð í partýbúðina til þess að skoða úrvalið og sjá hvað verður. Það sem hefur dottið upp úr henni sem hana langar í afmælisgjöf, fyrir utan ryksuguna sem er nr.1,2 og 3 er: opnir spariskór (orðrétt) og prinsessudót. Það á eftir að fara í afmælisklippingu enda kominn tími til og kaupa bol við afmæliskjólinn… og baka og baka og baka og baka aðeins meira og já, síðan kannski elda eitthvað smá. Það verða sko alvöru hátíðarhöld í tilefni dagsins. Og já - fyrir þá sem eru eitthvað að efast er mamma pínu spennt líka.

Jæja, ætla að fara að sinna litla fallega lasarusnum mínum og koma Sögunni í rúmð á eðlilegum tíma sem gæti reynst erfitt. Mamman freistast alltaf í svona veikindum og fríum til að færa háttatímann til svo hún fái að sofa aðeins lengur á morgnana :D

Bústaðaferð,afmæli, hlaupabóla og ýmislegt fleira

8. október, 2007

Það er nú aldeilis margt búið að gerast síðan við skrifuðum síðast. Fyrst ber að nefna að mamman á bænum átti afmæli og var því fagnað með pompi og prakt. Það er ekki oft sem að Saga Guðrún er tilbúin að vakna við fyrstu tilraun en hún var sko tilbúin til þess þann daginn :) Hún fór með pabba í Kringluna að kaupa afmælisgjöf - stóð sig eins og hetja að segja ekki frá því hvað var í pakkanum. Hún sagði mér hinsvegar strax að hún hefði keypt Kitty kort, yfir sumum hlutum er hreinlega ekki hægt að þaga yfir!! Svo fengum við fullt af góðum gestum sem Sögunni leiðist náttúrulega aldrie og allir, nema Arney Vaka ánægðir með daginn. Óánægja yngri dömunnar var mjög skiljanleg. Þrátt fyrir að vera ljúf og góð og allt það er hún með stórt skap eins og aðrir á heimilinu og fannst henni afar slæmt að eiga að bíða eftir mömmu sinni þann daginn á meðan á undirbúningi stóð auk þess sem húsið fylltist af fólki sem vildi ólmt berja hana augum og það var aðeins of mikið fyrir stubbuna litlu sem sofnaði síðan bara sæl í poka hjá mömmu sinni.

Um helgina lögðum við síðan land undir fót ásamt Erlu,Elvari og Daníeli Breka. Ferðinni var heitið í sumarbústað og hefur annar eins farangur aldrei sést áður. Við höfðum það rosalega kózý, vorum í bústað rétt hjá Seljalandsfossi. Okkur leist samt ekki sérlega vel á blikuna þegar við komum að bústaðnum um 21 á föstudagskvöldið og húsið var rafmagnslaust og strákarnir þurftu að fara inn í ótrúlega lítið geðslegt eyðibýli að skipta um öryggi. Bústaðurinn leit mun betur út baðaður í ljósum heldur en rafmagnslaus og höfðum við eins og ég sagði ótrúlega gott. Það fylgdi þó leiður laumugestur með okkur í bústaðinn því að á laugardagsmorgninum fundum við Óli fyrsta stykkið. Hálftíma síðar, þegar sýna átti Erlu laumugestinn voru þeir orðnir sex og hratt og örugglega fjölgaði þeim. Jú það var hlaupabólan sem gerði sig heimakomna á Sögunni. Við þessar fréttir var hún drifin í snjógalla og út að leika sér til að ferðin yrði nú ekki algjört klúður hjá henni því við bjuggumst við að hún myndi veikjast fljótlega. Hún varð nú ekki almennilega veik fyrr en heim var komið og er frekar bólótt og lasin núna, með hita og svaf illa í nótt og þannig!
Við sjáum fram á að vera heima saman mæðgurnar þessa vikuna og er litlan skönnuð ansi reglulega til að athuga hvort að hún sé komin með bóluna líka. Já þetta er heilmikið fjör … adrei dauður tími á bænum og að sjálfsögu bara fínt að afgreiða bóluna núna. Það hefði samt verið ótrúlega gaman að klára sundnámskeiðið en því lýkur með því að börnin verða ein í lauginni með sýningu á því sem þau hafa lært. En við förum nú bara aftur seinna enda efnileg sundkona hún Saga Guðrún og nægur tími framundan!