
Það er ekki ofsögum sagt að við höfum átt æðislega helgi fjölskyldan!! Við Saga fórum á föstudagsmorguninn í sund með Soffíu & Sigríði Björgu og er Saga alveg eins og bavíani í sundi. Það var rosalega gaman hjá þeim vinkonunum, en þó að Saga sé dugleg leggur hún ekki í rennibrautina en fannst ægilega gaman þegar S&SB fóru í rennibrautina, klappaði saman lófunum og hrópaði aftur aftur!! Síðan brunuðum við heim og fórum beint niður í bæ með ömmu og Mörtu og röltum um miðbæinn og fórum á kaffihús og svona. Þegar heim var komið fluttum við okkur út í garð og Soffía & Sigríður Björg komu í heimsókn og sprelluðu vinkonurnar lengi vel í garðinum á meðan mömmurnar flatmöguðu á teppi í sólinni.
Á laugardagsmorgninum héldum við mæðgurnar aftur í sund og sprikluðum vel og vandlega. Eftir blund seinnipartinn fórum við í gönguferð í Elliðaárdalnum sem byrjaði með miklum látum - Saga rak tærnar í stein og grét heil ósköp yfir þessum hrakförum. Þegar lengra var liðið á gönguferðina sáum við að hún hafði hruflað á sér allan handlegginn og átti hún þá aftur voða bágt. Eftir gönguferðina fórum við í mat á Kópavogsbrautina, þar sem var hoppað og skoppað og öllum stjórnað með harðri hendi.
Við tókum daginn snemma á sunnudaginn og byrjuðum í Grafarvoginum. Þar var Iðunn kvödd en Steinunn er að hita upp fyrir stórjfölskylduna með að stjana við Iðunni í heimsókninni þessa dagana
Síðan ókum við beinustu leið í Dýragarðinn í Slakka og hittum þar Elvar, Erlu & Daníel Breka í steikjandi sól og hita. Saga var á þunnum kjól og Arneyju var stórlega misboðið og grét sáran þar til við áttuðum okkur á að fækka þurfti fötum á henni og hún varð ekki ánægð fyrr en hún var bara á samfellu með hatt. Lá þannig spriklandi í vagninum og leið mjög vel. Eftir að hafa skoðað dýrin og prófað leiktækin og hesthúsað tveimur ísum og einum svala var haldið í Árnes, þar sem við keyptum pylsur og svona og brunuðum svo upp í Búrfell að grilla. Við lágum í garðinum og höfðum það rosa gott og fórum svo á róló - allan tímann var þessi líka blíða og allir glymrandi hressir. Saga klifurköttur prófaði klifrugrind og fannst það gaman svo lengi sem hún vissi að mamman hélt við hana.
Það eru komnar inn myndir frá helginni, óhemju margar en það var svo erfitt að velja.
Á laugardagskvöldið byrjaði Saga að segja brandara. Hér á eftir koma tveir góðir:
“Á ég að segja þér brandara? Keyptu þér brjóstahaldara…og nærbol”
“Á ég að segja þér brandara? Keyptu þér stól”
Það er mikið búið að hlæja og segir hún “á ég að segja þér brandara” í mörgum útfærslum og alltaf finnst henni hún jafn sniðug. Svo segir hún tómatabrandarann í styttri útgáfu og skemmtir sér vel. Orðið “tómatsósa” hefur einhvern töframátt held ég bara 
Allir fjölskyldumeðlimir hér í Sólheimunum eru orðnir vel útiteknir og bakaðir og allir farnir að hlakka til ferðalagsins nema Vakan sem veit ekkert hverju hún á von á. Ég hef nú ekki trú á öðru en að hún verði vær og góð eins og venjulega, svo lengi sem við höldum ró okkar. Reyndar hefur hún átti ansi erfiða daga undanfarið, eða þessir erfiðu koma og fara og ekki endilega tveir í röð. Eina sem huggar hana er fingurgómur að naga eða kaldur þvottapoki svo við höllumst að tönnslunum. Síðan er hún voða þreytt á okkur, vill bara liggja sjálf í vöggunni og sofna á meðan við göngum með hana um gólf og skiljum ekkert í því að hún vilji ekki sofna
Í kvöld vildi hún síðan bara liggja á teppinu sínu en ekki sitja hjá þessum leiðinda foreldrum sínum. Hún er farin að brosa um leið og hún heyrir hláturinn í systur sinni en stundum fer Sagan yfir strikið og Arney beygir af. Hún er farin að gera svona smelluhljóð með tungunni þegar við gerum það fyrst og er markvisst farin að grípa og toga í dót og hluti sem vekja áhuga hennar. Svo fór hún í sturtu í fyrsta skipti með mömmu sinni, brá svolítið fyrst en leist svo bara ljómandi vel á og skældi heilmikið þegar sturtuferðinni var lokið.
Látum þettagott heita í bili, ég sem ætlaði ekkert að skrifa…