3ja mánaða Vaka & lasarusar Saga
24. júní, 2007Þá er Arney Vaka orðin 3ja mánaða gömul og fór í skoðun af því tilefni. Hún var orðin 6340 gr og 63 cm - heldur sínu striki bara vel. Er bara ótrúlega flott stelpa sem við að sjálfsögðum vissum. Hún fékk síðan sína fyrstu sprautu og varð alveg skelfilega móðguð yfir þessu öllu saman og lét alveg hvína í sér.
Saga Guðrún vaknaði rauðeygð og pínu þrútin á föstudaginn og eftir leikskóla var aðeins farið að vella úr auganu. Þetta var nú alls ekkert mikið fyrr en eftir annasaman laugardag. Eftir ferð á læknavaktina og tilheyrandi grát og dramatík var farið að blæða úr auganu og stelpurófan uppgefin. Í morgun tók það hana svo heila tvo tíma að opna augun en hún átt svo ágætan dag frameftir degi. Eftir síðdegisblundinn var allt upp í loft og daman ómöguleg. Ef hún verður ekki betri í fyrramálið ætla ég að hafa aftur samband við lækni. Hún er nú ansi gjörn á að fá þessar sýkingar en hún hefur aldrei fundið svona til með sýkingunum. Hún grét hérna á okkur í dag: “taktu sýkinguna taktu sýkinguna.” Litla lúsin!
Í gær fórum við foreldrarnir í brúðkaup. Arney Vaka fór í fyrsta sinn í pössun og var eins og ljós hjá ömmu Eddu og var alsæl þegar mamman kom og fyllti á hana. Saga átti síðan yndislegan dag með Iðunni & Ara (og Maju og Brynjari), keypti blóm og fór í sund og svona ýmislegt brallað. Leiðinlegur endir á annars frábærum degi hjá dömunni. Í dag fórum við mæðgurnar þrjár saman í Húsdýragarðinn og dobbluðum afa með okkur. Sögu fannst það mjög spennandi og skemmti sér vel við að snúa afa sínum í kringum sig
Hún er orðin ansi heimavön á þessum slóðum og bað meira að segja um að fá að skoða dýrin á heimleiðinni. Eitthvað er hún ekki með dýrin á hreinu, kallaði folaldið kiðlinga og hestana kusur og svona ýmislegt en maður getur nú ekki haft allt á hreinu! Við fórum líka í Húsdýragarðinn í vikunni og vorum svo heppnar að sjá Skoppu&Skrítlu í boði Krafts sem stóð fyrir fjölskylduhátíð. Saga var ekki jafn hrifin af Dýrunum í Hálsaskógi og vildi bara fara heim! Svo spókuðum við okkur í Miðbænum og borðuðum svo kvöldmat úti hjá ömmu Eddu þar sem Saga mátti ekki vera því að borða því trampolínið trekkti svo.
Þetta er síðasta vika Sögu á leikskólanum í bili þar sem hún er að fara í sumarfrí eins og fleiri. Vonandi dregst þessi sýking ekki á langinn svo hún komist þangað enda verður svolítið erfitt að fara í frí þar sem hún elskar leikskólann! Hún verður í fríi í ca. 5 vikur - spurning hversu fljótt aftur hún fer á leikskólann eftir Noregsferðina. Hún er voða spennt og allt sem kallast eitthvað sumar á að taka með sér til Noregs. Hún sagði líka í gærmorgun þegar pabbi hennar var að reyna að sannfæra hana um að Kolur ætlaði með henni í sund: “mamma mannstu þegar Steina frænka setti buffið mitt á hundinn sinn?!” en það átti sér einmitt stað í Noregsferð síðasta sumars. Mér finnst nú eiginlega ótrúlegt að barnið muni svona langt og hallast að því að myndir af Frk. Frigg með buffið hafi varðveitt þessa minningu. Steina frænka náði þeim áfanga í kvöld að skilja allt sem frænka hennar sagði henni í símanum svo samskiptaörðugleikarnir ættu ekki að verða miklir og vonandi verður Saga jafn fáránlega fljót að aðlagast Noregsbúunum okkar og í fyrra