Skjalasafn fyrir maí, 2007

Hvítasunnuhelgin

29. maí, 2007

Það var sko meira en nóg að gera hjá fjölskyldunni hér í Sólheimunum um Hvítasunnuhelgina. Á laugardaginn fór pabbinn á námskeið á meðan við mæðgurnar fórum að hitta aðrar mömmur og unga á ýmsum aldri og skemmtum okkur stórvel. Um kvöldið fengum við svo Erlu, Elvar & Daníel Breka í mat og Saga Guðrún var alveg í essinu sínu. Það kom klárlega í ljós að dóttir okkar kann ekki að umgangast yngri börn enda var hún vön að vera allsstaðar minnst þar sem hún kom þar til að systir hennar fæddist. Hún þarf því að læra ýmislegt þegar að Arney Vaka verður orðin stærri. Á sunnudeginum tókum við daginn snemma og fórum í Húsdýragarðinn í blíðskaparveðri. Þar spókuðum við okkur með Erlu, Elvari og Daníel Breka og nutum veðursins í dágóðan tíma. Þegar að við fengum nóg af garðinum röltum við mæðgurnar yfir á Rauðalækinn þar sem Sandra tók á móti okkur. Hún var búin að bíða spennt eftir að fá að berja Vökuna okkar augum og varð að sjálfsögðu ekki fyrir vonbrigðum með gripinn!
Óli kom svo og náði í ykkur og við fórum beint upp í Grafarvog þar sem heiti potturinn hjá Maju frænku beið eftir prinsessunni og svamlaði hún lengi í honum með frændsystkinum sínum á meðan við hin grilluðum. Hún fékk svo frænku sína lánaða með sér heim og þær sváfu stærstan hluta næturinnar í flatsæng á gólfinu í Sögu herbergi. Á sunnudaginn hringdi Saga sundgarpur svo í ömmu Eddu og bað hana um að fara í sund. Amma gat náttúrulega ekki staðist stelpuna og þær fóru því í sund og að bralla ýmislegt. Á meðan lágum við hin í leti og höfðum það kózý.

Arney Vaka er búin að eiga frekar erfiða viku. Hún er mjög kvefuð og stífluð og virðist lítið hægt að hjálpa henni. Eitthvað virðist maginn vera að angra hana líka en hún er samt svo yndisleg og góð að það hálfa væri nóg. Undanfarna daga hefur verið mikill munur á henni, hún brosir og hlær og spjallar þvílík ósköp við okkur. Henni virðist líka alveg stórvel við okkur foreldra sína og að sjálfsögðu flottustu stóru systurina. Það er þó engum blöðum um það að fletta að pabbi hennar er flottastur af öllum. Hjúkrunarkonan kom í heimsókn í síðustu viku og mældist daman tæp 5700gr. Hún þyngist bara ósköp rólega en alveg nóg þar sem hún er dugleg að drekka og að pissa og kúka!

Annars er lítið í gangi á bænum. Mamman er á kafi í verkefnavinnu og Vakan fylgir henni. Sagan aðlagast vel lífinu á Túni og er mjög upptekin af því hvað hún er orðin stór. Pabbinn vinnur og vinnur og nú fer að styttast í útskriftina hjá honum en hún er 16.júní. Upp úr því ætti mamman líka að fara að losna úr verkefnavinnunni og sumarið farið að byrja fyrir alvöru. Stelpurnar finna þó lítið fyrir því enda kom Sagan ekki inn hérna í dag fyrr en klukkan að ganga 19 því það er alveg frábært að leika hér út í garði. Hún fór líka í hjólatúr með pabba sínum og Vakan svaf á sínu græna út í vagni í tvo tíma eftir leikskóla hjá Sögu.

Það eru nýjar myndir eins og alltaf en það eru líka nýjar myndir í MaíII albúminu. Svo reyni ég að gera mé grein fyrir magninu hér eftir og vera skipulagðari :D

Stórust!!

22. maí, 2007

Þessi stóra flotta stelpa er sko orðin Túnari! Hún semsagt skipti um deild í dag og er núna komin á Tún! Það er soldið undarlegt hvernig er hægt að vera svona stór og lítill á sama tíma! Það er sko ýmislegt sem breytist þegar maður er orðinn Túnari - enda fylgir ansi mörgum setningum: ,,já ég er sko stór stelpa…túnarastelpa” Fyrsti dagurinn gekk rosalega vel og daman hæstánægð :)
Litla Vakan okkar fór til læknis í gær til að róa taugar áhyggjufullra foreldrana og allt var í góðu lagi með hjartað hennar. Á morgun kemur svo hjúkkan og framkvæmir 9 vikna skoðunina og verður spennandi að sjá. Ég spái því að hún verði ekki svo þung en þeim mun lengri því mér finnst hún setja allt í lengdina. Spennandi en það verða fluttar fréttir af því fljótlega :)

Kveðja til Beintunnar okkar

21. maí, 2007

Elsku besta Beintan okkar er komin á spítala í langtíburstistan - eða Orlando :( Við vildum bara senda henni knús og kossa og batakveðjur! Hún er sko hörkutól með meiru og hefur kannski bara viljað fá að vera lengur í útlöndum! Við hlökkum samt mikið til að fá hana heim og heyra ferðasöguna svo það er alveg bannað að ílengjast eitthvað þarna úti!
Láttu þér nú batna kjánastelpa!

Sumar og sól

15. maí, 2007

Við höfum reynt að vera dugleg að nýta blíðuna undanfarna daga til útiveru. Í því felst að sjálfsögðu sundferðir, Húsdýragarðurinn, gefa öndunum og að leika úti í garði. Við fórum líka að kíkja á Risessuna á laugardaginn. Saga Guðrún var ekki sérlega spennt á meðan á því stóð en eftir að við fórum heim hefur hún mikið talað um hana og skemmdarverkinn sem skrýtni pabbi hennar olli í borginni. Hún virðist vera að mestu leyti komin yfir þetta tímabil sem ég talaði um í seinustu viku, sem betur fer. Við erum samt vel vakandi og tilbúin til að takast á við það ef áframhald verður á. Í síðustu viku áttu Klambrar 5 ára afmæli og við Arney fórum á afmælishátíð þangað og síðan fórum við aftur á leikskólann á föstudaginn til að vera með á vinafundi en ég var búin að lofa Sögu í margar vikur að fara að koma og vera með henni þar.

Í dag fórum við í Húsdýragarðinn með Sigríði Björgu vinkonu hennar af leikskólanum og það var svo spennt stelpa hér í morgun þegar hún vaknaði. Hún var búin að bíða eftir því lengi að hitta hana utan leikskólans og ekki fannst henni verra þegar að Sigríður Björg kom í heimsókn til okkar og borðaði með okkur kvöldmat. Arneyju Vöku fannst þetta líka ekki leiðinleg heimsókn því þarna hafði hún tvær flottar stelpur til að dást að og brosti út að eyrum á meðan hún fylgdist með þeim leika sér. Hún sýnir meiri og meiri áhuga á hverjum degi og dáist takmarkalaust að systur sinni og svo finnst henni pabbi sinn flottastur af öllum! Hún er farin að valda höfðinu svona 95% og finnst orðið óþarfi að liggja eins og ætlast er til að ungbarni, spyrnir vel og vandlega í og vill helst af öllu sitja - það er auðvitað ekkert vit í því að haga sér eins og 7 vikna gamalt barn!

Nú ferð að líða að lokum fyrsta áfanga í fæðingarorlofi hjá pabbanum því á föstudaginn fer hann aftur að vinna. Núna er hann búinn með skólann og bara alvara lífsins að taka við - af því að það er að sjálfsögðu tómt kæruleysi að vera í háskólanámi með tvö börn og svona … híhíhí. Þá fer lífið að færast í fastari skorður hjá okkur mæðgunum, við Arney þurfum að fara að vakna og fara á fætur áður en dagurinn er hálfnaður hjá flestum öðrum. Það er bara fínt enda ómögulegt að liggja bara í letinni. Þetta verður líka skotfljótt að líða því að Saga fer í sumarfrí strax í byrjun júlí og pabbinn viku á eftir henni. Svo er það auðvitað Noregsferðin okkar sem við bíðum spennt eftir - Saga er hörð á að ætla að fara með sólgleraugun, buffið, sumarhattinn og sandalana sína til Noregs. Hún virðist tengja sólríkar sumarmyndir við Noregsferð síðasta sumars og heldur því alltaf fram að á þeim sé hún með Steinunni og Valdemar. Í dag sagði hún mér í óspurðum fréttum að Steinunn frænka væri vinkona hennar og líka Maja frænka og hún færi alltaf með þeim í Kringluna … það sem henni getur dottið í hug! Steinunn frænka er held ég bara ólíklegasta frænkan til að fara með hana í Kringluna og þá ekki bara með tilliti til staðsetningar!

7. maí, 2007

Í síðustu viku fór Arney Vaka í 6 vikna skoðun. Hún var að sjálfsögðu stórglæsileg og fullkomin í alla staði, var orðin 5190 gr og 59.5 cm. Hún tók þessu bara með jafnaðargeði, gargaði aðeins á lækninn en sjarmeraði hjúkrunarkonuna upp úr skónum eins og henni einni er lagið!
Saga Guðrún á dálítið erfiða daga um þessar mundir og þá er nú aldeilis gott að eiga góða að því hún er búin að fá nokkrar dekurstundir undanfarið. Hún og pabbi eru byrjuð að fara aftur í sund og það finnst henni æðislegt, svo fór hún í Húsdýragarðinn og Grasagarðinn með Iðunni um daginn - þar sem þær meira að segja læstust inn í Húsdýragarðinum - hún fór til ömmu Eddu á laugardaginn og naut sín þar og svo reynum við líka að vera dugleg að dunda ýmislegt skemmtilegt hérna heima. Við höfum líka verið dugleg að nýta okkur Laugardalinn, förum í Húsdýragarðinn og Grasagarðinn og tökum göngutúra um dalinn og hverfið. Í dag sóttum við stelpuna snemma og fórum að gefa öndunum og tókum hjólið hennar með niður í Grasagarð og hún æfði sig að hjóla þar. Þegar við komum heim komu Ingunn og Tinna í heimsókn til okkar. Þær vinkonurnar voru dásamlegar saman - mikið hlegið að þeim. Í Bónus stóðu þær fyrir framan rekka með svitalyktareyðum og þóttust setja þá á sig og fannst þær bara fyndnastar af öllum. Við bökuðum svo pizzu og þær vinkonurnar hjálpuðu til við baksturinn, léku sér og skruppu svo saman út í garð að leika sér. Saga var svo frekar sæl þegar hún fór að sofa enda dagurinn í dag mjög svo að hennar skapi :D
Eitthvað erum við ekki búin að standa okkur í myndatökunum en það er að rætast úr því og nokkrar ómótstæðilegar komnar í maí-albúmið.