Skjalasafn fyrir apríl, 2007

30. apríl, 2007

Það er óhætt að segja að tíminn fljúgi áfram og mér finnst það bara hafa verið í gær sem Arney Vaka kom í heiminn. En það er víst ekki svo, heldur er daman að verða sex vikna gömul og farin að brosa í allar áttir og spjalla heil ósköp :) Hún er alveg yndisleg og eiginlega bara synd hvað þessi tími líður hratt því maður sér framfarir hjá henni á hverjum degi! Þess er víst stutt að bíða að þær systur verði farnar að skottast saman og ég á sennilega eftir að vera alveg jafn hissa þegar þar að kemur hvert þessi tími eiginlega fer!
Eins og venjan er í maí er prófatíminn genginn í garð. Það er í síðasta skipti í bili sem pabbinn á heimilinu er í prófum því ef allt gengur eftir útskrifast hann frá HÍ í sumar. Sem betur fer þá er ekkert próf í þeim áföngum sem ég var í í vetur og þegar að Óli er búinn í skólanum fer ég aðeins á vettvang og þarf svo að skrifa eina ritgerð fyrir ágúst. Það verður lítið mál og ég er þvílíkt fegin að vera ekki í prófum í þessum töluðu orðum!

Við höfum haft nóg að gera það sem af er sumri. Pabbinn að læra eins og vera ber og Saga í leikskólanum og við Arney að brasa ýmislegt. Við erum búin að vera dugleg að arka hér um hverfið okkar og Laugardalinn, heimsækja Húsdýra- og Grasagarðinn og líka búin að fara í fullt af heimsóknum. Síðasta vika var líka viðburðarík á leikskólanum því Saga og pabbinn fóru í sveitaferð með leikskólanum á miðvikudaginn. Sögu leist ekkert sérlega vel á dýrin og sagðist bara hafa verið hrædd við kindurnar - pabbinn leiðrétti það og sagði að hún hefði verið hrædd við allt nema 2ja vikna hvolpana og viku gömlu kanínuungana. Leiksvæðið féll þó auðvitað vel í kramið og var daman í heildina mjög ánægð með ferðina. Daginn eftir var svo brúðuleikhús í leikskólanum og sýnt leikritið um Pétur&úlfinn. Saga skemmti sér ljómandi vel og var bara örlítið hrædd - og viðurkenndi það ekki einu sinni!! Ég og Arney Vaka gerðum okkur ferð niður á Klambra til þess að horfa með henni og fannst henni það æðislegt. Iðunn frænka kom í heimsókn til okkar á laugardaginn og fékk Saga Guðrún stjörnumeðferð eins og venjulega - enda á hún pínulítið bágt þessa dagana, því það er ekkert grín að vera orðin stóra systir. Hún var svo alveg í skýjunum á sunnudaginn þegar við fórum í heimsókn til ömmu og afa og Iðunn reyndist líka vera þar í heimsókn! Ýmislegt annað var brasað um helgina - leirað, krítað, litað, pússlað, farið í mat á Kópavogsbrautina og auðvitað sofið - svo aðaliðjan hennar Arneyjar Vöku verði ekki útundan.
Arney Vaka fer í 6 vikna skoðun á heilsugæslustöðinni á miðvikudaginn og verður það fyrsta læknisskoðunin frá því á spítalanum. Við erum alveg sannfærð um að stelpurófan standist hana með prýði enda ótrúlega flott og fullkomin stelpa - alveg eins og systir hennar!

Gleðilegt sumar :)

20. apríl, 2007

Systurnar sætu í Sólheimunum vilja endilega óska aðdáendum sínum nær og fjær gleðilegs sumars :) Sumarið byrjaði með ágætum hjá þeim - þær fengu smá sumargjafir í morgun og jafnvel þó að Sögu fyndist illa gert að skilja foreldrana út undan leist henni alveg hreint ágætlega á sandkassaleikföngin sem hún fékk. Arney Vaka fékk svo bara litla hringlu enda ekki mikið á leiðinni út að leika þetta sumarið.
Í tilefni dagsins ákváðum við líka að skella okkur í Húsdýragarðinn. Það er á hreinu að hún Saga Guðrún er óttalega smeyk við ansi marga hluti. T.d. fékkst hún ekki inn í fuglahúsið, fraus næstum því hjá kúnum og svínunum og sýndi bara hreinlega engan áhuga á neinum dýrum nema bara selunum og já þakka ykkur fyrir ROTTUNUM - mömmunni til mikillar skelfingar!! Við borguðum okkur inn í hringekjuna en fengum vinsamlegast endurgreitt og snérum við og ekki fékkst hún heldur til að prufa lestina. Fjölskyldugarðinn leist henni betur á, hoppaði svolítið þar með pabba sínum, sprellaði í kastalanum, prufaði snú-snú og fór í bíltúr á eigin vegum… Þrátt fyrir allt er hún strax byrjuð að tala um að fara aftur í Húsdýragarðinn og er voðalega stolt af sér að hafa pissað í klósettið þar! Arney Vaka tók þessu öllu með jafnaðargeði en fannst við vera helst til kærulaus á klukkunni og lét okkur heyra það þegar við hlupum heim á leið til að fóðra blessað barnið! Eftir að systurnar voru búnar að fá sér blund fórum við í heimsókn í Kópavoginn, Arney Vaka í fyrsta skipti og síðan brunuðum við í mat til ömmu og afa. Saga Guðrún eins og henni einni er lagið blikkaði afa sinn út að leika og skemmti sér ljómandi vel þar til hún fékk sér smá flugferð og sprengdi vörina! Það gekk fljótt yfir en hún bólgnaði töluvert og á heimleiðinni stakk ég upp á því að koma við í ísbúð. Barnið var yfir sig hneykslað á því - hún var nefnilega búin að fá ís hjá ömmu og afa. Þegar ég spurði hvort hún vildi ekki bara annan var hún ekki lengi að svara “júúúúú” og hvarf bólgan eiginlega barasta með ísnum. Útsmogin mamma en hún virtist alveg vera búin að jafna sig þegar ísinn var búinn.

Vikan hefur gengið sinn vanagang - Saga Guðrún er duglegust að vera bleyjulaus og Arney er duglegust við sína iðju. Stóra systirin duglega á soldið erfitt á morgnana að fara á leikskólann en er að sjálfsögðu alltaf ánægð þegar þangað er komið. Hún sagði reyndar við mig þegar ég fór með hana um daginn að ég gæti ekki farið heim því ég ynni nefnilga þarna :) Algjör rófa þessi stelpa!
Arney Vaka er orðin algjör brandarakelling - finnst pabbi sinn alveg ótrúlega flottur og fyndinn (að sjálfsögðu) og baðar sig í athyglinni sem hún fær þegar hún brosir alveg niður í tær. Hún verður að mati mömmunnar bara líkari og líkari stóru systur sinni eftir því sem hún þroskast enda ekki leiðum að líkjast! Þessi stelpa er sko ekki að spara brosin og er hreint út sagt ómótstæðileg eins og sjá má í myndaalbúminu. Eftir því sem brosin aukast þá fara líka að heyrast meiri óhljóð og varð mömmunni pínu létt þegar þessi ljúflingur lét í ljós að hún er með skap! Sennilega þyrftum við að hafa áhyggjur af hún hefði það ekki enda stóra systirin með stórt skap þó hún sé að sjálfsögðu ljúf og góð og kann oftast að fara með það.

Það var ótrúlega stolt stóra systir sem sýndi vinum sínum og kennurum á leikskólanum systur sína í vikunni þegar við komum að sækja hana. Ég er ekki frá því að með stóru systur titlinum og bleyjuleysinu hafi tognað aðeins úr henni enda er það á hreinu að hún er sko ekki lítil stelpa lengur :D

Flottustu systur í bænum :)

13. apríl, 2007

Það er ekki ofsögum sagt að við eigum flottustu systurnar í bænum! Saga Guðrún stóra er búin að fara bleyjulaus í leikskólann alla vikuna og verið bleyjulaus hér heima og gengið ótrúlega vel! Ég sagði við hana á mánudaginn að hún færi bleyjulaus í leikskólann á þriðjudaginn og hún var bara ótrúlega sátt við þessa ákvörðun. Við vorum eitthvað að reyna að bíða eftir að hún tæki svona frumkvæði sjálf en það virðist hafa hentað henni vel að ég gerði það fyrir hana. Hún var frekar stolt þegar hún kom heim í gær og ekkert slys hafði orðið á leikskólanum :D Svona ykkur að segja var mamman ekkert mikið minna stolt heldur en stelpan :) Arney Vaka er algjör draumur. Hjúkrunarkonan kom í vikunni og mín kona hafði þyngst um heil 400 gr á rúmri viku sem er ótrúlega flott. Ég var að hafa áhyggjur af því hvað hún svæfi mikið á nóttunni en hjúkkan hló næstum að mér þegar hún sá töluna á vigtinni og sagði mér að njóta þess bara! Hún er núna orðin tæp 4700 gr og er bara langflottust!

Á morgun ætla Saga Guðrún & pabbinn að fara á skauta með vinnunni hans pabba. Það olli Sögu smá áhyggjum að hún ætti ekki skauta svo það verður spennandi að sjá hvernig fer. Svo fer pabbinn á árshátíð og verður stelpustund á heimilinu á meðan! Í gær komu Ágústa og Þórdís vinkonur mínar í heimsókn og það var á hvorugri dótturinni að finna að þær þekktu þær ekki neitt. Saga Guðrún reyndi að bjóða þeim upp í mömmurúm að skoða bók en þegar það gekk ekki þá bara að skoða herbergið hennar sem hún er rosalega stolt af. Arney Vaka kíkti síðan á þær og steinsvaf svo hjá þeim báðum - þo hún hafi soldið verið að æsa sig í fanginu á Ágústu - ég vil meina að það sé vegna þess að bumbubúinn hennar sé strákur :) Þegar Sagan kemur heim af leikskólanum í dag þá ætlum við að fara út að kaupa smá verðlaun í tilefni bleyjuleysis :D

Páskar :)

9. apríl, 2007

Við erum búin að hafa það alveg rosalega gott yfir páskana. Á skírdag fórum við í fermingarveislu hjá Iðunni. Saga partýdýr naut sín alveg í botn og Arney Vaka steinsvaf í moby pokanum sínum hjá mömmu sinni megnið af veislunni. Við fórum svo upp í Vættaborgir eftir á og fylgdumst áhugasöm með pakkaflóðinu og Saga Guðrún fékk að aðstoða frænku sína við að opna suma pakkana. Á föstudaginn langa vorum við bara heima í rólegheitunum, fengum gesti og fórum líka í stuttan göngutúr. Arneyju Vöku leið ákaflega vel í vagninum sínum, greinilega góður andi sem fylgir honum :) og steinsvaf allan tímann. Saga stóð á brettinu sínu megnið af tímanum og fannst það líka mjög gaman! Við Arney erum svo bara búnar að liggja í leti og sofa heilmikið á meðan pabbinn og Sagan hafa verið úti að leika sér í góðum gír. Í gær fórum við í mat til ömmu og afa, Arney Vaka kippti sér ekki mikið upp við það - steinsvaf allan tímann - rétt lét rifa í augun til að kíkja á afa sinn og langömmu og hélt svo áfram að sofa. Á morgun tekur svo við alvara lífsins, vika í að Óli byrji í fæðingarorlofinu og Saga mætir á leikskólann! Litla stýrið okkar byrjaði aðeins að brosa framan í mömmu sína í dag - töluvert fyrri til en systir sín með það en hún er búin að vera mjöööög alvarleg hingað til! En hún er svo dugleg að sofa og safna kröftum og stækka að það hlaut að koma að þessu :) Hún á náttúrulega svo ótrúlega skemmtilega mömmu!

Saga Guðrún var hálfmóðguð í gærmorgun þegar við færðum henni páskaegg. Okkur tókst þó að sýna henni fram á að þetta væri ekki alvitlaus hugmynd. Hún er svo ennþá að vinna á sínu eggi - en hefur fengið hjálp við það og nartað í það sem henni líkar úr okkar súkkulaði! Hún er ósköp róleg yfir þessu öllu saman og finnst þetta bara ekkert sérlega merkilegt. Hún var líka stórlega hneyksluð yfir þeirri hugmynd að gefa systur sinni páskaegg … er sko með það á hreinu að hún á bara að fá mjólk!

Að sjálfsögðu er kominn ágætis skammtur af myndum inn í páskaalbúmið.

Páskafrí :)

4. apríl, 2007

Nú eru pabbinn og stóra systirin á heimilinu komin í páskafrí. Þó að okkur Arneyju Vöku líði ósköp vel saman á daginn og finnist gaman að skottast bara tvær þá er samt mikið skemmtilegra að hafa þau heima - svona ennþá a.m.k. Páskafríið leggst vel í Söguna, hún er bæði búin að horfa lengi á páskaegg sem við fengum gefins auk þess sem hún fór í gær og bjó til páskaegg með Steinunni & Halla. Á morgun er síðan veislan hennar Iðunnar (fermingarveisla) sem hún er búin að bíða eftir töluvert spennt síðan við fórum í aðra fermingu um miðjan mars. Síðan ef veðrið helst gott og Arney Vaka hættir við að verða kvefuð þá ætlum við líka út að ganga og hafa það notalegt um páskana. Þessir dagar verða nú án efa skotfljótir að líða og án efa verður amstur hversdagsins tekið við. Engin ástæða til að misskilja samt - mér finnst amstur hversdagsins mjög skemmtilegt þessa dagana :D
Stelpurnar mínar eru báðar snillingar á sinn hátt. Arney Vaka er ljúf og góð og lætur lítið fyrir sér hafa. Jú, henni finnst best af öllu að sofa í mömmu fangi eða hafa mömmu sína hjá sér á meðan hún sefur en maður er nú ekki einu sinni orðin tveggja vikna gömul svo maður má alveg fá svoleiðis hluti í gegn. Hún er dugleg að drekka, var mæld í gær og orðin 4260 gr - búin að þyngjast um 310gr á einni viku sem er mjööög fínt. Hjúkkunni í ungbarnaverndinni fannst hún bara ótrúlega flott og skýr og fín og við eins og grobbnum foreldrum sæmir brostum út að eyrum. Hún fór í fyrsta baðið sitt á sunnudaginn og fannst þetta hálf ömurlegt og leist stóru systur ekkert á blikuna! Saga Guðrún er hún sjálf, ótrúlega fyndin og skemmtileg eins og alltaf. Hún er ótrúlega góð við systur sína og er alltaf viss um að hana vanti annað hvort mömmu sína eða stóru systur þegar hún er aðeins að kvarta. Hún passar vel upp á að hún sé kysst góða nótt og góðan dag og litlu systurina vantar sko ekki knúsin. Hún á reyndar pínu bágt með að fara í leikskólann á morgnana núna, vill bara fá að vera heima hjá mömmu sinni en það rjátlast fljótt af henni þegar komið er á leikskólann. Hún sýnir bæði systur sinni og mömmu mikla þolinmæði þegar sú litla vill vera að drekka út í eitt en best af öllu þessa dagana er að fá að vera bara ein með mömmu og fá mömmuknús og kossa. Við reynum að fara saman í háttinn á hverju kvöldi og hafa það kózý bara tvær. Hún sýnir síðan gestum og gangandi samviskusamlega systur sína, heldur bókhald yfir hver er búinn að sjá hana og það er mismunandi hversu mikla athygli þú mátt veita Arneyju Vöku eftir því hversu hátt þú skorar á vinsældalista Sögu Guðrúnar. Því yngri sem þú ert því minni áhuga máttu sína henni t.d. :D