3ja daga gömul
Fyrst af öllu langar okkur að þakka fyrir allar kveðjurnar
Það er alveg yndislegt að heyra frá ykkur og æðislegt líka að sjá öll kommentin við myndirnar!
Hér gengur allt ótrúlega vel og Arney Vaka gerir allt sem hægt er að ætlast til þess að maður geri þegar maður er þriggja daga gamall og gerir það með stæl. Saga Guðrún er ótrúlega dugleg og tekur þessu öllu með sínum hætti og eins og við bjuggumst við er hún bara duglegust við að hjálpa til. Hún hjálpar til við bleyjuskiptin og dáist takmarkalaust að systur sinni þegar hún sefur í vöggunni. Hún er dugleg að hnoðast í kringum okkur og vill mikið fá að halda á henni og kyssa hana. Hún er líka meira en lítið til í að lána Arneyju leikföngin sín en sú stutta er ekki alveg jafn hrifin. Í gærkvöldi t.d. lenti eitt kökukefli ofan í vöggunni hjá þeirri stuttu …
Lífið er yndislegt þessa stundina og við höfum það alveg stórfínt. Saga Guðrún fór í heimsókn í gær og aftur í dag á meðan við foreldrarnir og Arney Vaka hlóðum aðeins batteríin. Það var svo ansi sæl stóra systir sem fór í rúmið með mömmu sinni núna í kvöld og hélt svo fast utan um hana að hún ætlaði aldrei að sleppa frá henni
26. mars 2007 kl.16:38
Yndislegt ad heyra hvad thad gengur vel hjá ykkur. Knus