Litla systir komin í heiminn :)

Loksins kom litla systir til okkar - fimm dögum fyrir settan dag :) Hún fæddist í gær, 22.mars kl. 16:50. Litla stelpan okkar hún Arney Vaka var 3825 gr eða rúmar 15 merkur og 52 cm. Fæðingin gekk ótrúlega vel og tóm hamingja á bænum. Saga Guðrún stóra systir kom við í dótabúð og færði systur sinni bangsa. Henni leist ekki vel á að bumban væri horfin en tók gleði sína á ný þegar hún ljómaði eins og sólin við að sjá systur sína.
Það koma fleiri myndir með tíð og tíma enda búið að taka nokkrar. Akkúrat núna langar okkur bara að knúsa stelpurnar okkar og ætlum að njóta þessara daga alveg í botn sem nú fara í hönd.

11 athugasemdir við “Litla systir komin í heiminn :)”

  1. Sólveig og Tristan skrifaði:

    Jiiii krúttið og vá hárið :o) Enn og aftur til hamingju með Arneyju Vöku, hún er yndisleg! Elsku Saga Guðrún, til hamingju með að vera orðin stóra systir!

  2. íris skrifaði:

    innilega til hamingju með nýjasta fjölskyldumeðliminn!! og til hamingju með fallega nafnið Arney Vaka :) hafið það sem allra best öll saman :D kv íris

  3. Tinna, Gunni og Darri Jökull skrifaði:

    Innilega til hamingju með dótturina/litlu systur! Hún er algjört krútt og nafnið mjög fallegt :)

  4. Svava skrifaði:

    Innilega til hamingju með litlu systurina.. Hún er alveg yndisleg, myndin af þeim saman er æði:)
    Nafnið passar henni svo vel! Hafiði það alveg rosalega gott!!

  5. Hafdís og Róbert Máni skrifaði:

    Oh hún er dásamleg, jiminn, fékk bara tárin í augun. Aftur innilega til hamingju með hana, hún er fullkomin.

  6. Sigurborg skrifaði:

    Til hamingju með litlur systur. Ohh hvað hún er sæt :) Held að hún sé bara alveg eins og þú Saga Guðrún, bara aðeins stærri en þú þegar þú fæddist.
    Frábæert að allt gekk vel hjá ykkur. Ofsalega fallegt nafnið hennar :) Hafið það rosa gott næstu dagana saman í kúri.
    Sjáumst, kveðja Sigurborg og Lúðarnir :**

  7. Elva, Signý og Sunna (vinkonur Iðunnar) skrifaði:

    Hæ, hæ. Við erum vinkonur Iðunnar frænku ykkar, hún sagði okkur frá þessari síðu fyrir löngu. Okkur langaði aðeins að kíkja hér við og gá hvort ekki væru komnar myndir af litlu dömunni, Iðunn var að rifna úr stolti í skólanum í dag, það var ekki talað um annað. Innilega til hamingju með Arneyju, hún er ekkert smá sæt, eins og systir sín. Gangi ykkur vel,

    kv. Elva Björk, Signý Rut og Sunna

    P.S. Þótt við þekkjum ykkur eiginlega ekkert (höfum hitt ykkur einu sinni), langaði okkur að kommenta smá :o)

  8. Bergdís skrifaði:

    Kæra fjölskylda.
    Innilegar hamingjuóskir með nýjasta fjölskyldumeðliminn. Bjarta og gæfuríka framtíð.
    kær kveðja
    Bergdís, Elberg Logi og Hákon Garðar

  9. Árni Þór Finnsson skrifaði:

    Hæhæ,

    innilega til lukku með litla engilinn! Hún er engin smá dúlla, þvílíkt hár sem hún er með :D Algjör dúlla…

    Bið að heilsa mömmu og pabba, þið standið ykkur frábærlega!

    kv. Árni orðinn meiri frændi en hann var :D

  10. Margrét Þórunn skrifaði:

    Til hamingju með lilluna! Hún er æði og nafnið hennar er ofsalega fallegt. Kossar og knús til stóru systu og ykkar allra.

    Kv. Margrét

  11. Birna, Krissi og Ari Þór skrifaði:

    Innilega til hamingju með þessa stóru og flottu stelpu og fallegt nafn :)

Svara