Ennþá bara ein stelpa
Bumbuskottið okkar hætti bara við í síðustu viku. Henni finnst greinilega við hæfi að láta bíða eftir sér - miðað við systur hennar gæti ég alveg trúað því að hún væri svolítil prímadonna nefnilega! Við förum í mæðraskoðun+monitor í fyrramálið og þá fáum við sennilega að vita meira um framhaldið - en núna eru ekki nema 8 dagar í settan dag og þar með fer gangsetningin að færast nær sem raunverulegur möguleiki. Ég sem treysti á skottuna mína að koma bara sjálf…
Saga Guðrún hefur það fínt þessa dagana, er ótrúlega dugleg að pissa í koppinn og jafnvel gera stærri stykki. Við erum aftur á móti aðeins smeyk við að taka af henni bleyjuna með tilliti til þess sem er á döfinni svo við tökum þessu bara rólega. Við fórum í fermingarveislu um helgina og var hún í essinu sínu og naut sín alveg í botn. Þegar við komum heim, seint og um síðir vildi hún fara strax í Iðunnar veislu en hún fermist í byrjun apríl
Mikið partýdýr hún dóttir mín! Annars er hún búin að vera dugleg út að leika og í fyrsta skipti í dag sagði hún nei við því þegar henni var boðið út eftir leikskólann! Hún er samt með einhverja voða “ég get ekki” complexa þessa dagana - ýmist af því að hún er ekki sterk eða þá að hún sé ekki strákur. Stundum er hún líka bara pínulítil og getur lítið gert!! Það er kannski ekki skrýtið að hún sé svolítið aum og lítil af og til því þa er ekki sérlega spennandi heimilislífið núna, hlutirnir eru svolítið bara á hold hjá okkur! Við reynum nú samt að brasa ýmislegt skemmtilegt svona eins og getan leyfir en kannski er samviskubitið meira hjá mömmunni en í raun og veru hjá stelpunni?!
Á föstudaginn varð stelpan svo frekar glöð. Eins og fleiri jafnaldrar hennar hefur hún verið mikill aðdáandi Stubbanna og er búin að eiga lengi þrjá stubba bangsa. Í kringum flutningana fór hún að tala um að hana vantaði Pó og var oft að biðja okkur um að kaupa Pó í búðinni. Á föstudaginn fékk hún svo Pó en Iðunn & Maja frænka færðu henni gripinn. Hún var frekar hamingjusöm með sitt og kom hlaupandi heim og beint inn í herbergi, þar sem hún safnaði Stubbunum sínum öllum saman og hrópaði: “sjáiði hver er komin!” Greinilegt að það var ekki bara hún sem hafði saknað Pó. Allur skarinn þurfti svo að borða kvöldmat með okkur í gær og Pó og Saga hafa verið óaðskiljanlegar síðan á föstudaginn ef leikskólinn er ekki talinn með!
Jæja, ég er bara að drepa tímann á meðan skottan mín horfir á barnaefnið og Óli sér um matinn. Ákvað að skrifa hérna nokkrar línur en ég er líka búin að vera frekar öflug í því að setja inn myndir undanfarið. Ég vona samt að ég sjái ekki ástæðu til að skrifa hér aftur fyrr en að Saga sæta verður orðin stóra systir og býst jafnvel við því að það verði ekki ég sem færi ykkur þær fréttir
Það væri rosa gaman að sjá kveðjur frá ykkur gott fólk
20. mars 2007 kl.11:21
Saga alltaf sama krúttið :o) Vonandi ákveður yngri daman að láta sjá sig áður en þú verður sett af stað…Hlakka til að lesa fjölgunarfréttir! Hafðu það rosalega gott á endasprettinum Soffía :o)
21. mars 2007 kl.21:49
hvaða hvaða.. hvað er í gangi?!?
vonandi er eitthvað að gerast / fara að gerast núna.. bíða held ég allir spenntir eftir fréttum enda ekki leiðinlegt að fá fleiri lítil skott í heiminn..
hehe
bið að heilsa tilvonandi stóru systur og stubbunum.. hverjir elska ekki stubbana?!?! ég bara spyr
gangi ykkur vel!! dúdúrúúú
kv íris
22. mars 2007 kl.19:29
Elsku litla prinsessa, velkomin í þennan heim!
Elsku Soffía, Óli og Saga stóra litla systir, til hamingju með nýjasta fjölskyldumeðliminn!
Hlakka til að hitta ykkur öll með hækkandi sól…
Þúsund kossar,
Sandra
23. mars 2007 kl.00:07
Innilega til hamingju með litlu prinsessuna
kveðja Steinunn Sævarsd.
23. mars 2007 kl.13:26
Innilega til hamingju með nýja fjölskyldumeðliminn! Hlakka til að sjá mynd af prinsessunni…vonandi gekk allt vel :o)
23. mars 2007 kl.14:09
Ég er enn ad dast ad myndunum af ther elsku Arney Vaka, thu ert alveg otruleg!
Og elsku Saga Gudrún,thú átt eftir ad vera flottasta stóra systirin…
Knús frá einni á bleiku Skýi!