Prímadonnan í kúlunni…

Kúlubúinn virðist vera eitthvað skyldur Sögu Guðrúnu prímadonnu sem er nú ekki þekkt fyrir að láta segja sér fyrir verkum! Hún ætlar að láta mömmu sína hafa töluvert meira fyrir sér en systir hennar á sínum tíma … við fórum upp á deild í gærkvöldi en vorum send heim aftur og ég fékk bara verkjatöflur með mér heim til að fara að sofa! Ekki skemmtilegt - svaf svo ekkert í nótt og er ennþá með einhverja verki en ekki nógu mikið til að vera the real thing. Daman er ekki búin að skorða sig og þær töluðu um að þessir verkir gætu stafað af því…
En eitthvað er samt að gerast og vonandi tekur þetta ekkert voðalega langan tíma í viðbót…bumbuskottið gæti því væntanlega farið að láta sjá sig hvað á hverju og erum við bara þó nokkuð spennt…

Ein athugasemd við “Prímadonnan í kúlunni…”

  1. íris skrifaði:

    ú ú ú.. vonandi gengur allt vel :D sendi ykkur góða strauma
    kv íris

Svara