18 dagar…

Saga Guðrún ákvað um leið og mamman á bænum kvað um þann úrskurð að litla systir mætti fara að láta sjá sig að verða veik :( Ég sótti hana lasna í leikskólann á hádegi á miðvikudag og hún hefur verið heima síðan. Hún er samt ekki almennilega veik, ekki með hita en mikla hálsbólgu og frekar pirruð. Hefði alveg getað farið á leikskólann í dag en var bara heima í rólegheitunum. Það er eins gott að hún nái þessu úr sér fljótlega - nú virðist bara wiský röddin vera eftir. Það er náttúrulega með öllu ófært að verðandi stóra systir sé síðan kannski bara lasin þegar litla snúllan mætir!

Af bumbunni er allt gott að frétta! Það er nóg að gera, vel upp á okkur bumbulíus passa og það er hér um bil fullt prógramm að fara í skoðanir. Skv nýjustu mælingum þá virðist daman ætla að verða töluvert stærri heldur en systir sín því hún mældist í fyrradag heilar 15 merkur. Saga Guðrún var bara 12 merkur eftir 40vikur svo þessi verður líklega heldur stærri og feitari! Auðvitað eru þetta bara mælingar og alltaf einhver skekkjumörk en engu að síður gaman að spá í þetta ;) Þegar við komum síðan heim úr sónarnum kom stóra systirin hlaupandi á móti okkur og spurði: “er hún komin? er hún komin úr mallanum?” Þannig að hún er að verða eins spennt og það nær svona þegar maður er bara 2ja ára.

Saga Guðrún fór í klippingu í dag. Miðað við hvernig hefur gengið að klippa hárið á henni hingað til var mamman með svolítinn hnút í maganum. En við fórum til Stóru-Nönu og það voru bara smá byrjunarörðugleikar - svo stóð hún sig bara rosa vel og það var bara allt annað barn sem labbaði út af stofunni. Henni fannst þetta bara gaman svona eftir á og er rosalega stolt með fastar fléttur og bleikar teygjur í hárinu :D

Svara