4 vikur til stefnu
Það styttist óðum í bumbubúann okkar, ekki nema 26 dagar í settan dag svo að við ættum kannski að fara að gera eitthvað af viti til að undirbúa komu dömunnar. Saga Guðrún er svolítið hissa á því að núna er þetta “bráðum” að verða raunverulegt - við erum búnar að vera að tala um páskaeggin sem hafa veitt athygi hennar í búðum undanfarið og henni finnst voða skrýtið að litla systir komi áður en að hún fái páskaegg. Hún er samt með flest allt á hreinu, t.d. ætlar hún ekki að vera eins og Snuðra&Tuðra við litlu systur sína heldur passa hana mjög vel þar til hún er orðin nógu stór til að leika við.
Annars gengur lífið sinn vanagang hjá okkur - Saga fer sæl og ánægð á leikskólann á hverjum degi og er í frábæru formi. Koppurinn er aftur komin á dagskrá og gengur alveg ágætlega þó að áhuginn sé ekki alveg jafn mikill og í fyrra skiptið sem þetta small hjá henni. Hún er ólíkt spenntari fyrir klósettferðum á leikskólanum en skv. henni þá er hún stundum eina stelpan á Holti sem er með bleyju og stundum þá eru það bara litlu krakkarnir á Holti em eru með bleyju og hún líka (NB hún skilgreinir sjálfa sig ekki sem litla barn þó hún sé yngst). Við tökum þetta nú samt bara á rólegheitunum og engin pressa, þetta kemur allt þegar hún er tilbúin til þess. Pabbinn á bænum er alltaf á fullu, að vinna og í skóla og að sjá um stelpurnar sínar enda mamman ekki til stórræðanna. Hún er reyndar búin að standa sig vel í að læra og “bara” eitt verkefni eftir sem hún getur klárað fyrir fæðinguna. Á næstu dögum fer hún kannski að týna lítil föt í þvottavélina og svona til að barnið eigi einhverja hreina leppa þegar hún kemur! Annars erum við furðu róleg, það reddast alltaf allt ![]()
Við Óli fórum í foreldraviðtal á leikskólanum á þriðjudaginn og að sjálfsögðu kom allt gott út úr því. Stóra stelpan okkar er dugleg, glaðvær og góð og ekkert vandamál með hana. Hún stendur sig rosa vel í hvíldinni, fékk reyndar smá bakslag eftir veikindin um daginn en finnst þetta nú lítið mál. Við vorum (og erum) að sjálfsögðu ferlega stolt enda flottasta stelpan á ferðinni. Við erum líka búin að taka eftir því undanfarna daga og vikur hvað hún er að taka rosalegum framförum t.d. í fínhreyfingum. Það er alveg magnað að sjá hana lita núna - í staðinn fyrir að krassa bara yfir alla myndina er hún farin að lita eftir línunum og jafnvel inn í pínulitlar jólakúlur! Það þarf líka að sjálfsögðu ekkert að nefna það að hún er síblaðrandi og hefur sko mikið að segja, allt sem er eins og allt sem er til heima hjá henni er óþrjótandi uppspretta samræðna frá hennar hálfu og virðsit vera ansi mikið sem hún á heima hjá sér sem hún sér annars staðar
Jæja, mamman virðist vera óþrjótandi við að blaðra um þennan snilling sem hún á enda lítið að gera hjá henni akkúrat núna.
Einu sinni enn langar mig til að hvetja ykkur til að skilja eftir kveðju
Annars erum við að hugsa um að gera nýja síðu fyrir þær systurnar og jafnve flytja hana en það kemur allt í ljós…
4. mars 2007 kl.18:07
Hæ Saga Guðrún!
Það er margt spenandi að gerast hjá þér.Ég kíki stundum á síðuna þína og er alltaf jafn gaman að sjá hvað þú ert dugleg og frábær stelpa.
kær kveðja Lulla
6. mars 2007 kl.18:30
Jæja, núna er maður farinn að kíkja daglega, þetta fer nú bara að bresta á fljótlega að þú verðir stóra systir