Gleðilegt ár :)

Þá er árið 2007 runnið upp og hefur farið vel af stað hjá dömunni. Við eigum ekki von á öðru en að þetta verði viðburðarríkt ár enda merkilegir atburðir framundan - fyrst ber að nefna flutninga í lok mánaðarins og svo auðvitað koma bumbubúans.
Saga Guðrún naut þess bæði að hanga heima með mömmu sinni og kíkja í mýflugumynd í leikskólann sinn á milli jóla og nýárs. Hún var hrædd við stjörnuljósin og sprengjurnar - en lætur sig hafa það svo lengi sem hún er innandyra og dyrnar lokaðar. Við eyddum áramótunum úti á Álftanesi, en Saga Guðrún hefur gert það öll sín þrjú áramót. Við borðuðum góðan mat og daman borðaði eins og hestur - bæði af aðal & eftirrétt auk þess sem hún hesthúsaði heilum banana í millitíðinni. Við gerðum svo heiðarlega tilraun til þess að fara á brennu en hún dreif bara út í kerru og var þá ofurliði borin af hræðslu við sprengingarnar svo hún fór aftur inn í hlýjuna til ömmu og afa og Ólafar og Óttars með pabba sínum. Eftir miðnætti kíktum við svo á Kópavogsbrautina og sátum þar aðeins - svo daman fór ekki að sofa fyrr en seint og um síðir.

Núna er það svo aftur á móti alvara lífsins og ekkert annað. Mamman byrjuð að vinna, Sagan byrjuð aftur á leikskólanum & pabbinn kominn í vinnuna og byrjar í skólanum eftir helgi. Í lok mánaðarins erum við svo að fara að flytja og kominn fiðringur í mannsskapinn. Við höfum nú samt haft það fínt hérna í Fellsmúlanum en það verður ósköp gott að komast á jarðhæð :) Auk þess sem nýja íbúðin okkar er með aðgengi að garði með leiktækjum sem á eftir að þóknast dömunni ágætlega. Saga Guðrún hefur þó ýmsar efasemdir um þessa flutninga. Í fyrsta lagi leist henni ekkert á að eiga heima rétt hjá ömmu Rönku, þetta “rétt hjá” skilur hún ekki alveg og stendur föst á því að amma eigi að vera bara heima hjá sér en hún má þó koma í heimsókn. Svo finnst henni alveg með eindæmum asnalegt að eiga að flytja í Sólheima, því hún vill alls ekki hafa sólina heima hjá sér!! Hún er samt dálítið spennt fyrir að fá nýtt herbergi og heldur því fram að hennar gamla sé pínulítið bilað :) Enda ekki við öðru að búast - gamli bíllinn bilaði og við fengum okkur nýjan - af hverju ætti hún að fá nýtt herbergi ef það er allt í lagi með það gamla?

Hún var ótrúlega glöð og ánægð á miðvikudaginn þegar hún mætti í leikskólann eftir frí. Þessa þrjá daga í vikunni hefur hún verið svo ótrúlega hamingjusöm og sæl - greinilegt að hún elskar leikskólann sinn og líður vel þar og er komin með alveg nóg af veikindum og hangsi heima við. Til stendur á næstu vikum að hún verði lengur á leikskólanum á daginn enda maður orðinn stór stelpa, þarf að sofa minna og hefur bara gott af því að vera með öllum vinum sínum á Holti aðeins lengur.

Það er mikið að gerast hjá henni dóttur minni og hún er síblaðrandi. “Ég held það” og “Æi plís” eru vinsælustu setningarnar þessa dagana. Það er líka mikið að gerast í skilningnum hjá henni og margt sniðugt sem vellur upp úr henni. Hún er duglegust að teikna og kríta og er alveg sami bókaunnandinn og áður. Saga er líka endalaust góð og meðfærileg við að dunda sér hérna heima, finnst gaman að kubba og leika sér með allskonar leikföng, “matar matinn” í nýja eldhúsinu sínu og stundum liggur við að maður gæti bara gleymt henni því hún er svo góð :) Hún fékk mikið af fötum í jólagjöf og er með fatadellu á háu stigi og hefur miklar skoðanir á fötum og litum. Grænn litru á t.d. alls ekki upp á pallborðið hjá henni. Sum föt hefur hún tekið ástfóstri við en svo eru önnur sem hún hreinlega þolir ekki. Hvernig verður þetta þegar hún eldist? Gulur og bleikur eru uppáhaldslitirnir hennar og er helst allt í þessum litum!

Meðgangan gengur bara ágætlega og það er ekki annað að sjá (og finna) að bumbubúinn dafni vel og er hann afar duglegur að láta okkur finna fyrir sér. Stóra systirin verðandi er mikið fyrir að strjúka kúlunni og spyrja um ýmislegt og er mikið rætt um stóru-systurhlutverkið sem bíður hennar. Hérna í lok ársins sat hún upp í sófa og var að strjúka kúluna og svo segir hún upp úr eins manns hljóði: “mamma, pabbi minn er ekki með neina stóru systur í maganum” Ég staðfesti náttúrulega þessa staðhæfingu hennar en þá klárar þessi snillingur þessa pælingu með því að segja: “pabbi er bara með mat í maganum.”

Ein athugasemd við “Gleðilegt ár :)”

  1. íris skrifaði:

    sæl og blessuð og gleðilegt nýtt ár!
    mikið er gott að sjá hvað allt gengur vel hjá ykkur :D ætla að loksins að láta verða að því að koma í heimsókn núna í vikunni.. hehe.. gengur ekki lengur.. allir örugglega orðnir huge og farnir að tala endalaust.. eins og litla skutlan ;) hlakka til að hitta ykkur í vikunni :D kv íris

Svara