Jólajól
27. desember, 2006Þá er stærsti hluti jólanna, eða a.m.k. mestu hátíðarhöldin liðin hjá og við búin að hafa það afskaplega gott. Saga Guðrún er loksins orðin sæmilega hress og hefur verið alveg ótrúlega stillt og góð. Hún stóð sig eins og hetja í öllu pakkaflóðinu á aðfangadag, varð pínu spennt en alveg í ótrúlega góðu jafnvægi og náði á endanum að klára alla pakkana. Hún fékk mikið af fallegum gjöfum og er alsæl þessa dagana að vinna í því að skoða og prufa það sem hún fékk. Það er alveg ótrúlegt hvað þetta er heppin stelpa sem við eigum
Hún fékk lítið eldhús frá okkur sem hún hefur mikið leikið með og eins fékk hún krítartöflu úr Ikea sem hefur ekki fengið mikinn frið. Bleika krítin úr pakkanum sem fylgdi er orðin áberandi minnst
Henni finnst líka eiginlega jafngaman að þrífa töfluna eins og að kríta á hana. Við fórum síðan í jólaboð bæði á jóladag og annan, á jóladag var hún svo þreytt að hún gat varla notið sín eins og venjulega en í gær var hún í miklu stuði og vældi alla leiðina heim yfir því að þurfa að hætta að leika við Kolbrúnu og Drífu. Við mæðgurnar erum svo í fríi í dag og eins og á morgun og sofum til hádegis og dúllum okkur síðan. Ætlum svo á leikskólann á föstudaginn í rólegheitastemminguna sem án efa ríkir þar. Hún bað reyndar um að á að fara á Holt til Erlu sinnar í dag en skemmti sér vel heima í staðinn.
Tíminn líður ótrúlega hratt og erum við í flutningahugleiðingum núna. Ef allt gengur upp ættum við að vera flutt eftir ca. mánuð í annað húsnæði, en það verður bara að koma í ljós hvernig það fer. Það eru líka bara þrír mánuðir í litla bumbubúann, alveg með ólíkindum. Það var nefnilega bara í gær sem við vorum að bíða eftir Sögu Guðrúnu - jafnvel þó hún sé orðin svona stór. Það eru semsagt frekar spennandi tímar framundan hjá okkur og áðru en við vitum af verðu við farin að ferma