Stóra systir
Samkvæmt stóru systurinni verðandi á litli bumbubúinn bæði pils og skó. Pilsið er s.s. legið sjálft á sónarmyndunum og skórinn er tásumyndin. Það leit allt mjög vel út í sónarnum og krílið snéri sér á alla kanta og var fúst til að sýna okkur allt sem við vildum sjá. Dagsetningin passaði upp á hár svo að settur dagur er 27.mars. Við kíktum líka í pakkann og eigum von á annarri stelpu og erum að sjálfsögðu alsæl með það! Ekki það - við hefðum verið alveg jafn sæl með strák en það er æðislegt að vita af þessu! Saga Guðrún segir þeim sem spyrja hana að barnið sé sko stelpa og hún sé stóra systir.
Annars erum við mæðgurnar bara heima í dag. Litla stýrið er með þvagfærasýkingu og búin að vera mjög kvalin. Hún hefur ekki sofið að ráði í tvo sólarhringa og við ákváðum að vera heima í dag enda byrjaði hún daginn á mjög erfiðum nótum og ekki hægt að leggja það hvorki á hana né leikskólann í þessu ástandi. Við erum bara búnar að dúlla okkur við að baka bollur og þrífa og er daman vægast mjög útkeyrð - en svo virðist samt sem lyfin séu að virka á hana því hún er ekki jafnkvalin og í gær. Annars er hún búin að hafa það alveg mjög gott - fyrir utan þessa sýkingu - rosa dugleg að fara á koppinn og vera bleyjulaus enda ólíkt þægilegra.
Við fórum í Kolaportið um helgina og keyptum okkur báðar kínaskó. Þaðer nú ekki í frásögu færandi nema að Saga hefur varla farið úr sínum skóm, fyrsta daginn var hún varla vöknuð þegar hún var komin fram á gang að leita að skónum. Svo talar hún afar mæðulega um það að pabbi hafi nú bara enga skó fengið. Alveg hræðilegt ástand!!
En jæja … látum þetta gott heita að sinni því við mæðgurnar ætlum að fara og fá okkur nýbakaðar bollur áður en við kíkjum í draumalandið