Stoltust!!

Í morgun fékk stóra stelpan okkar nóg af bleyjunni! Hún bað að fyrra bragði um að fá að pissa í klósettið á leikskólanum og hefur verið ótrúlega dugleg! Pissaði 3x í klósettið í morgun á leikskólanum og svo aftur eftir hádegi á heilsugæslunni eins og stór kona. Nú verður þetta tekið markvisst fyrir og ef allt gengur sem stefnir þá verður næsta viku bleyjulaus á leikskólanum :)
Við erum frekar stolt og ánægð með dömuna okkar. Hún hringdi líka í pabba sinn afar ánægð með sig og er líka búin að tala við báðar ömmur sínar mjög sæl með árangurinn sinn. Hún er kannski ekki alveg jafn fúsí bleyjuleysið hérna heima en með nóg af hrósi og hvatningu kemur þetta allt saman :) Á morgun förum við í stóra sónarinn og höfum ákveðið að kíkja í pakkann! Það verður fróðlegt - eins og fyrr þá er ég viss um að ég gangi með stelpu en Óli að ég sé með strák :D

Lokað er fyrir svör.