23 mánaða í dag :)
29. september, 2006Vetrarstarfið á heimilinu er að skríða í fastar skorður og því lítið í fréttum. Saga Guðrún er reyndar búin að fá slæma augnsýkingu í þessari viku. Byrjaði í hægra auganu á miðvikudaginn og við fengum dropa í augun á Barnaspítalanum og augað leit strax betur út. Svo á fimmtudeginum var sýkingin komin í vinstra augað en núna er hún bara soldið rauð og þrútin en alveg hætt að grafa
Hún áttar sig á því að kremið (droparnir ;)) hjálpaði henni - því hún bað um það í dag þegar augun voru orðin vel þrútin og svo aftur núna í kvöld
Við mæðgurnar dúlluðum okkur bara heima í gær, mamman lærði með dyggri aðstoð Sögunnar og hún var dugleg að lita allskonar greinar og glósur fyrir mig
Síðan síðast hefur hún loksins fengist til að fallast á það að hún heiti jú Saga Guðrún en hún hefur aldrei viljað setja Guðrúnar nafnið fyrir aftan þó hún hafi getað sagt það í nokkra mánuði. Svo vorum við að merkja fötin hennar fyrir leikskólann og núna les hún skýrt og greinilega í morgunblöðum, bókum, auglýsingapésum og jafnvel á netinu: “Æja Hulllllún” eins og það hljómar á Sögu máli
Hún er ótrúlega dugleg að tala og eiginlega óstöðvandi.
Um helgina ætlum við að fara í Veröldina okkar og hitta alla októbervinina
Það verður ábyggilega mikið fjör þó að Saga vilji bara hitta Tinnu sína! Ótrúlegt en satt þá er bara mánuður í stóra daginn … tíminn bara flýgur. Saga Guðrún er dugleg að minna okkur á að hún eigi afmæli og er núna í nokkra daga búin að tauta: “fyrst mamma, svo Tinna og svo ég.” Hún er alveg á því að í pökkunum eigi að vera afmæliskaka og hún ætlar að gefa mér afmælisköku í afmæligjöf ![]()
Það hlægilega sem ég gleymdi síðast var að við fórum í Grasagarðinn fyrr í mánuðinum með Tinnu Mjöll og Hafrúnu Örnu. Saga og Hafrún voru að gefa gæsunum brauð og eitthvað leist einni gæsinni illa á hvað Saga var lengi að rífa niður brauðið svo að hún gerði sér lítið fyrir og beit aðeins í brauðið, barninu til mikillar skelfingar. Leiðindamamman gat ekki vorkennt henni mikið því hún hló bara að henni :blush: Svipurinn á barninu var bara svo óborganlegur og hún talar ennþá um að gæsin hafi bitið hana