Skjalasafn fyrir ágúst, 2006

Veturinn kominn..

25. ágúst, 2006

Já við fjölskyldan erum búin að bjóða veturinn velkominn! Daman er orðin lasin eftir 4ra mánaða sumarfrí frá veikindum og pestum. Að sjálfsögðu - af sinni allskunnu snilld ákvað hún að veikjast í þeirri viku sem ég er í skólanum, 5 staðlotan sem ég fer í og hún hefur alltaf orðið veik :) En hún var nú samt svo tillitsöm að taka bara föstudaginn. Hún er ósköp lasin, með hita og beinverki og ferlega aum. Foreldrakjánarnir fengu eiginlega áfall í gær þegar þeir sáu hana, en hún var í pössun hjá Steinuninni og við vorum búin að gleyma hvað maður getur orðið lasin. Hún hefur líka greinilega þroskast og fullorðnast síðan í síðustu veikindum því hún stendur sig vel í að segja okkur hvar hún finnur til og hvað hún vill. Stubbaknús er í sérlegu uppáhaldi í dag :) Vonandi hressist hún um helgina því við stefnum á að fara í Ikea og kaupa ný húsgögn í herbergið hennar :D
Annars erum við með hugann langt langt í burtu. Elsku Iðunn frænka er í keppnisferðalagi í Bangkok og garmurinn okkar grái fékk matareitrun og liggur núna á spítala! Saga Guðrún brast nú bara í grát þegar hún heyrði að afi væri í Langtíburtistan að passa lasarusinn okkar en það er óljóst hvort að það hafi verið af feginleik eða afbrýðissemi :D Við erum í því að senda fallegar hugsanir og knús og kossa og bíðum eftir frekari fréttum af lúsinni okkar!

Betra seint en aldrei…

20. ágúst, 2006

Núna er lífið að færast í fastar skorður. Sumarfríið búið og kæruleysið sem því fylgdi og á morgun tekur alvaran við hjá okkur foreldrunum þegar skólinn byrjar aftur. Saga Guðrún er hæstánægð með að vera komin aftur á leikskólann og er alltaf jafn sæl og ánægð þar. Það eru engar smá framfarir sem barnið hefur tekið undanfarið - orðaforðinn eykst og eykst og ekkert lítið gaman að spjalla við hana og fylgjast með henni.
Við erum ýmislegt búin að brasa undanfarnar vikur en efst á blaði hjá dömunni er án efa sundferðirnar. Henni finnst það bara skemmtilegt en hún varð svo góðu vön að fara í sund með vinkonum sínum að það var ekkert sérlega vinsælt að fara bara með mömmu sinni og pabba! Hún er búin að fara á GayPride og Menningarnótt, upp í sumarbústað og líkaði þetta allt saman vel.
Loksins eru ágúst myndir komnar inn - sumum líður án efa betur að vita af því :D Við ætlum að reyna að nýta góða veðrið í dag aðeins og gera eitthvað sniðugt :D Endilega verið svo dugleg að kvitta fyrir komuna - miklu skemmtilegra að skrifa þegar fólk skilur eftir sig fótspor. Íris fær hrós mánaðarins fyrir að vera dugleg að kvitta fyrir sig :D

Fjör í fríinu

3. ágúst, 2006

Við mamma erum aldeilis búnar að hafa það gott þessa vikuna! Við erum búnar að fara hvorki meira né minna en 5x í sund og mér finnst það ÆÐI. Við erum reyndar í sundpásu núna því að ég er orðin svo svo slæm í húðinni minn en mamma er bara dugleg að bera á mig svo við getum kíkt í laugarnar um helgina. Við erum búnar að fara með Ingunni&Tinnu Mjöll í sund og ég er með Tinnu á heilanum. Tala um hana allan daginn og passa mig á að allir viðstaddir viti að Tinna fór líka í sund og eigi líka kúta og sundbol eða bleyju. Svo erum við bara búnar að snúast og stússast og njóta þess að vera í sumarfríi. Loksins erum við að fatta hvernig þetta virkar þetta frí. Ekki seinna vænna því við förum báðar á leikskólann á þriðjudaginn.
Iðunn er búin að vera hjá okkur í gær og í dag og svo kom Ari líka í dag. Þvílíkur lúxus - ég fæ aðdáendur til að leika við mig og mamma fær að lúra lengur :D Allir sáttir og ánægðir! Í dag kom Ólöf líka í heim (og Guðrún) og tvær vinkonur hennar með henni og ég var rosalega sæl með það.

Eins og maður á að gera í sumarfríi vaki ég frameftir og er dálítið óþekk. Við ætlum að reyna að snúa sólarhringnum mínum við svo ég geti vaknað kl.7 á þriðjudaginn. Ég er bara soldið spennt að fara á leikskólann aftur enda orðin krakkasjúk. Má ekki heyra í krökkum. Við fórum reyndar í Grasagarðinn og þar hitti ég Kötlu sem er með mér á leikskólanum og var alveg upprifin :D Hún var einmitt sú eina sem ég var búin að spyrja um í fríinu mínu af leikskólanum! Jú svo hitti ég auðvitað Írisi kennara á Sigurrósartónleikunum á sunnudaginn og varð alveg þvílíkt ánægð. Sýndi henni öll nýju trixin mín og knúsaði hana og kyssti. Það verður ósköp gott að komast aftur í rútínuna. Mamma og pabbi byrja svo í skólanum fljótlega líka svo það verður nóg að gera. Í september þá ætlum við að fara á tónlistarnámskeið fyrir svona grísi eins og mig. Þau voru að spá í að fara með mig á íþróttanámskeið líka en mamma er farin að hallast að því að sundferð 1x í viku geri alveg það sama því ég umturnast í lauginni. Ég breytist bara í brjálæðing og mamma ræður varla við mig - ég sem er alltaf svo róleg og góð :D En það er auðvitað bara gaman!

Nýjasta æðið hjá mér er að spyrja: Hvað er þetta & hver er þetta. Mamma má ekki heilsa neinum án þess að ég byrji að toga í hana og spyrja. Ferlega fyndin! Við pabbi vorum síðan að taka upp úr innkaupapokum í dag og hann pabbi varð að gjöra svo vel og segja mér hvað ALLT var í pokunum. Ég er fróðleiksfús mús - það er sko greinilegt. Mamma varð frekar vandræðaleg í sundi þegar ég fór að spyrja hvern hún væri að tala við og hún gat ómögulega munað hvað hún hét sem hún var að spjalla við :blush: Híhíhí - þessar mömmur!

Jæja, ég er löngu komin í draumalandið og Steinunn fór með mig í rúmið í kvöld. Ég var bara ótrúlega stillt og góð eins og mér einni er lagið. Mamma ætlar að vona að ég sé tilbúin í að sofa lengi á morgun því nú er fríið alveg að klárast. Það er frekar líklegt þar sem ég fór alltof seint að sofa í gær og svaf ekkert í dag. Svo ætlar Iðunn að koma til okkar um hádegi og hver veit nema við bröllum eitthvað skemmtilegt skvísurnar! Við ætlum svo bara vera í bænum um helgina - nennum ekki neinu ferðastússi þegar það er svona mikið að gera!