Duglegasta stelpan :D
Ég er svo ótrúlega dugleg! Síðustu mánuðina eru mamma og pabbi næstum því búin að þurfa að berjast við mig til að fara í bað og sund því ég er búin að vera svo rosalega vatnshrædd.
En á miðvikudaginn fór ég með mömmu í bað því mamma sagði að þegar maður væri búinn að fara í bað þá fengi maður eitthvað gott. Viti menn, ég fór í bað og mér fannst það alveg æðislega gaman og pabbi tók mig upp úr eftir 45 mínútur því ég var orðin alveg ísköld.
Í morgun fórum við mamma svo í sund með Steinunni&Önnu og ég stóð mig alveg eins og hetja. Ég var bara pínu smeyk í fyrri sturtuferðinni, en svo svamlaði ég um allt, hoppaði út í laugina og var órúlega dugleg og skemmti mér þvílíkt vel
Mamma er ekkert smá ánægð með mig núna! Það var svo gaman að við ætlum að reyna að fara aftur á morgun og hinn og hinn…alveg þar til leikskólinn byrjar
Ykkar Saga Sundgarpur