Heimkoma

Já við mæðgurnar eru komnar heim eftir yndislega dvöl í Noregi! Það var nú ósköp gott að koma heim og knúsa og kyssa pabbann eftir fjarveruna og Saga var yfir sig ánægð með að hafa endurheimt hann og eins litla Rauð (bíllinn). Noregsbúanna okkar er samt sárt saknað og það verður frábært að koma til þeirra næst, því þá fer pabbinn með.

Ég skrifa ferðasöguna fljótlega hérna inn og reyni að setja inn myndir í kvöld - ég veit að það bíða margir spenntir. Nennan er samt í sögulegu lágmarki svo ég sé til :) Við mæðgurnar erum jú ennþá í sumarfríi og ætlum að bralla ýmislegt saman næstu daga. Stungum sól og hita niður í ferðatöskuna frá Bergen og stefnum á að taka það upp fljótlega :)

Lokað er fyrir svör.