Sól á sól ofan

Já það er svo sannarlega yndislegt hér í Bergen. Við höfum það ótrúlega gott og veðrið er búið að vera með besta móti. Í dag gleymdi ég mér svo í sólinni að það stórsér á mér. Sagan var að sjálfsögðu smurð í bak og fyrir og sér ekki á henni.
Við erum búnar að hafa það æðislegt. Búnar að borða ís og fersk ber í tonnatali og Saga Guðrún er sérlega hrifin af kirsuberjum eða moreller eins og það heitir á norskunni. Hindber finnst henni líka algjört nammi. Maja frænka fór heim í gær og þegar við gengum á Sögu og spurðum hvar Maja væri kom bara eitt stórt: “o ó” og var hún mjög hissa. Við höfum nú ekki gert mikið af okkur síðan síðast, bara legið í leti og notið lífsins. Hún er orðin algjör hundastelpa og ég hálfvorkenni hundunum að þurfa að umbera lætin í henni:D Ég er búin að vera dugleg með myndavélina og reyni að setja inn myndir úr ferðalaginu þegar verður farið að hægjast um helgina. Við Saga ætlum á morgun að kíkja í Lagunen sem er verslunarmiðstöð hérna rétt hjá og versla aðeins og kíkja síðan með litla “vatnsköttinn” á ströndina þegar Steina kemur heim. Svona helst til þess að geta sagt að Saga hafi komið á ströndina :)
Jæja - ætla að láta þetta heita gott í bili…

Ein athugasemd við “Sól á sól ofan”

  1. Óli skrifaði:

    Kannski fæst hún til að baða sig í sjónum.. hver veit :)