Fyrstu fréttir frá Noregi :)

Við erum búnar að hafa það ótrúlega gott hér í Bergen. Saga Guðrún leikur á alls oddi og hefur verið ótrúlega dugleg og skemmtileg - jafnvel þótt að hún sé nær svefnvana. Hún náði nú reyndar að sofa í 13 tíma í nótt og er í banastuði núna.
Við erum búnar að fara niður í bæ 2x og í gær fórum við líka Toys ‘R us við mikinn fögnuð dömunnar. Verðlagið er samt mjög svipað og heima en við fundum samt gott tilboð og fékk stóran Fisher Price kassa. Fyrsta daginn rigndi á okkur en í gær var mjög gott veður - og í dag stefnir eiginlega í betra veður en í gær. Við höfum verið í rólegheitunum bara í morgun og daman skottast um út á palli og leikið sér.
Það er ekki að sjá að daman sé að hitta Valdemar og ferfætlingana í fyrsta sinn og Steinu frænku í fjórða sinn - það er eins og hún hafi aldrei gert annað en að vera prinsessan hér á bænum!
Við ætlum eitthvað á röltið í blíðunni hér í dag og ég giska á að daman eigi eftir að hesthúsa nokkrum ísum í viðbót við þann sem hún fékk í eftirrétt í morgun. Það eru ófáir ísarnir sem hún er búin að sporðrenna. Síðan hefur hún drukkið endalaust mikið af vatni með einhverju berjabragði sem er ægilega gott og með sérlega handhægum stút fyrir stúlkur eins og Sögu. Við mæðgurnar höfum engin sérstök plön fyrir næstu viku, ég er að spá í að fara með hana þó á Aquarium-ið sem gæti verið skemmtileg upplifun fyrir svona títlur. Aðalmálið er þó að njóta lífsins og liggja í leti með góðu fólki og yndislegum hundum :D
Þó að Saga hafi það mjög gott þá skyggir pínulítið á gleðina þegar daman er orðin þreytt þá saknar hún pabba síns. Í gærkvöldi í matartímanum fór hún að hvísla að mér að hún vildi fara í bílinn og fljúga. Þegar ég gekk á hana þá vildi hún fljúga heim til pabba. Það var svo afar sæl lítil Saga sem fékk að horfa og hlusta á pabba sinn í webcamerunni í gærkvöldi en að sama skapi leið lítil Saga þegar búið að var að slökkva. Hún sofnaði þó fljótt og hefur bara einu sinni minnst á hann síðan. Hún virðist sakna hans mest þegar við sitjum öll saman - eins og eitthvað vanti. Enda væri ótrúlega gaman að hafa hann hérna hjá okkur :)
En jæja - við stelpurnar ætlum að tygja okkur af stað … þið fáið áreiðanlega fleiri fréttir þegar líður á vikuna. Skiljiði nú endilega eftir comment fyrir okkur ferðalangana :)

2 athugasemdir við “Fyrstu fréttir frá Noregi :)”

  1. Steinunn skrifaði:

    Frábært að heyra að þið hafið það gott=) Um að gera að njóta þess að slappa af á góðum stað! Við Anna Petrea bíðum spenntar eftir því að þið komið heim, langar svo að leika við ykkur!

  2. Íris skrifaði:

    mikið öfunda ég ykkur! varla mikið ísveður hérna á klakanum ;) hehe.. en það lítur út fyrir að það skáni eftir helgi.. eins gott!!
    hafið það sem allra beeeeest…..
    kv íris