Ferðahugur
Saga Guðrún er bara töluvert spennt útaf yfirvofandi flugferð. Hún er hörð á því að hún ætli í allar flugvélarnar sem hún heyrir í eða sér bregða fyrir auk þess sem hún er viss um að bæði ég og pabbi hennar ætlum með. Hún samþykkir alveg að Maja frænka ætli með en er ekki lengi að bæta við “og pabbi minn?” þegar það mál hefur verið rétt. Daman er farin að herða sig aðeins í mömmusýkinni aftur og vonandi lagast það þegar hún verður frá pabba sínum í svona langan tíma.
Við erum búin að skoða myndir af öllum Noregsbúunum okkar. Garpur er jú hundur og segir voff en hún er eitthvað efins með hana Frigg. Stundum er hún hundur og segir voff en aðra stundina er hún ljón með tilheyrandi hljóðum. Hundinn Frigg er hún fús til að hitta en sömu sögu er ekki að segja um Ljónið Frigg. Hún er ákveðin í því að hún ætlar að lúlla með Garpi eftir að hafa skoðað myndir af mér&Garpi síðan 2004. Hún þekkir nú frænku sína strax og fagnar ákaft - enda er hún viss um að vinsældirnar fylgi nafninu. Það gengur ekki eins vel með Valdemar því hún er þess fullviss að þar sé pabbi sinn á ferðinni.
Fyrsti dagurinn okkar í sumarfríi var annars í dag. Við stússuðumst heil ósköp með Ólöfu frænku og náðum ágætis afköstum, fórum 2x í heimsókn í Kópavoginn, heimsóttum svo afa Adda, pabba og Guðrúnu öll í vinnuna auk þess sem við kíktum heim til Beintu Maríu. Það var frekar sæl lítil Saga Guðrún sem fór með mömmu sinni í bankann í dag og var leyst út með gjöfum. Georgs baukurinn vakti mikla lukku og var troðið í hann af mikill áfergju í dag þó að litlir puttar hafi stundum ruglast og stungið peningunum upp í sig. Öllu vinsælli var þó Latabæjarbolurinn sem hún fékk gefins og það skemmdi ekki fyrir að Ólöf frænka fékk eins bol! Á morgun ætlum við að rúnta um bæinn og stússast aðeins fyrir ferðalagið okkar og auðvitað pakka niður. Saga tók sér bessaleyfi að hjálpa til í Kópavoginum að þjappa í töskurnar með að setjast ofan í þær en þær eru á leið í sólina. Hún ætti því að vera í fínni æfingu á morgun þegar við pökkum saman enda bara gaman
Svona frá og með kl.21 á morgun verð ég síðan ekki viðræðuhæf því þá verður stressið komið í hámark.
12. júlí 2006 kl.18:30
Góða ferð ungfrú Saga Guðrún og Soffía Ösp!
Njótið ykkar í botn í útlandinu, og sjáumst svo (!) þegar þið snúið aftur…